Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2005, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2005
Fréttir 0V
Músarhaus í
hátíðablöndu
Músarhaus er ástæða
þess að um-
hverfissvið
Reykjavíkurborg-
ar lét innkalla
blöndu af frosnu
grænmeti, svo-
kallaða Hátíða-
blöndu, sem
skráð er best til
neyslu fyrir átt-
unda nóvember 2007.
Langmest af vörunni hefur
skilað sér nú þegar, en það
var talið nauðsynlegt vegna
heilbrigðissjónarmiða.
Vörumerkið er íslenskt
meðlæti hf. en hráefnið er
unnið erlendis og er talið
að músarhausinn hafi
borist með því. Búkurinn er
enn ófundinn.
Hjálpa ekki
Hjálparstarfi
„Samþykkt
samhljóða að
veita einn styrk ef
ættingjar viðkom-
andi eru í Rangár-
þingi ytra," sagði
hreppsráð
Rangárþings ytra
um styrkumsókn
vegna svokallaðs
Snorraverkefnis. Verkefnið
snýst um dvöl Vestur-ís-
lendinga á íslandi.
„Hreppsráð sér sér ekki
fært að verða við erindinu,''
sagði ráðið síðan við styrk-
umsókn Hjálparstarfs kirkj-
unnar. Sama svar fékk Lati-
bær við sinni styrkumsókn.
Hins vegar samþykkti
hreppsráðið samhljóða að
styrkja Kvennaathvarfið
með 50 þúsund krónum.
„Ég er að keyra heim upp á
Akranes," segir Heiður Hall-
freðsdóttir, ungfrú Vestur-
land.„Ég er á fullu í prófum
þessa dagana. Imorgun tók
é9 5anMMMPÁL<ia!É£*
mælti
iíkt og
hálfur skólinn og skilaði auðu.
Ég veit ekki hvað ég hefði ann-
ars fengið hátt í því en ég leit
yfirþað og það virtist ekkert
erfitt."
Landsímixm
Markús Már Árnason og Karen Haraldsdóttir eiginkona hans í Mark-Húsi ehf.
voru ekki fyrr búin að gera tilboð í Heilsuverndarstöðina við Barónsstig en lagt
var til að byggingin yrði friðuð. Kemur það í veg fyrir að þau geti breytt ytra
byrði hússins og alls ekki rifið það og byggt annað á lóðinni
sem ætla má að sé meðal þeirra verðmætustu í höfuðborginni.
stöðvarinnar Viö engu verð-
ur hróflað. Bandaríska sendi-
ráðið hafði áhuga en friðunin
hefði sett strik í reikninginn
hjá því eins og öðrum.
nMenn eiga ekki að
kaupa hús til að breyta
þeim. Þeir eiga að líta á
friðunina sem heiður."
Markús Már Árnason, byggingaverktaki í Mark-Húsi, stendur
frammi fyrir vanda nú þegar hann hefur gert tilboð í Heilsu-
verndarstöðina við Barónsstíg fyrir tæpan milljarð. Blekið var
vart þornað af tilboðinu þegar út spurðist að til stæði að friða
bygginguna og koma þar með í veg fyrir allar breytingar á ytra
byrði hússins.
Friðunin kemur einnig í veg fyrir
að kaupandi geti rifið húsið og byggt
þar annað hagstæðara á lóðinni sem
hlýtur að teljast með þeim verðmeiri
í höfuðborginni.
Þetta er heiður
„Menn eiga ekki að kaupa hús til
að breyta þeim. Þeir eiga að líta á
friðunina sem heiður," segir Magn-
ús Skúlason, framkvæmdastjóri
Húsafriðunarnefndar, sem vinnur
að undirbúningi friðunarinnar. „Ég
var að fara að senda eigendum
byggingarinnar, ríki og borg, bréf
varðandi friðunina þannig að menn
gætu nýtt andmælarétt en hætti við
þegar ég frétti að til stæði að selja
húsið. Ég er í biðstöðu og bíð eftir að
nýir eigendur taki við," segir Magn-
ús Skúlason.
980 milljónir
Eiginkona Markúsar Más Árna-
sonar, Karen Haraldsdóttir, sem sér
um bókhaldið fyrir bónda sinn og er
aðili að kaupunum á Heilsuverndar-
stöðinni, vildi ekki ræða fyrirhugaða
friðun á húsinu við DV í gær: „Eg er
upptekin," sagði hún.
Kauptilboð Mark-Húss hljóðar
upp á 200 milljónir króna við undir-
ritun kaupsamnings og svo 780
milljónir við útgáfu afsals í ágúst á
næsta ári.
Virki í borginni?
Vitað er að bandaríska sendiráð-
ið hafði áhuga á að kaupa Heilsu-
verndarstöðina fyrir starfsemi sína
og segir Magnús Skúlason hjá Húsa-
friðunarnefnd að sendiráðsmenn-
irnir hefðu þá getað grafið síki um-
Seljavallalaug Verður friðuð og Rjómabúið
á Baugsstöðum líka.
hverfis húsið enda sé síkið þegar til
staðar að hluta.
„Ég veit að þeir höfðu áhuga en
auðvitað er Heilsuverndarstöðin allt
of stór fyrir eitt sendiráð," segir
Magnús.
Fyrir utan Heilsuverndarstöðina
stendur til að friða Sjómannaskól-
ann við Háteigsveg, Rjómabúið á
Baugsstöðum, gamla vitann á Dala-
tanga og svo Seljavallaiaug undir
Eyjafjöllum.
Óskalistinn
„Annars er efst á óskalistanum
hjá mér að fyrirbyggja að gamli mið-
Sjómannaskólinn Næstur á dagskrá hjá
Húsafriðunarnefnd.
bærinn verði lagður í rúst með vit-
lausu skipulagi eins og sjá má af
hugmyndum um byggingar við
Lækjargötu," segir Magnús Skúla-
son, framkvæmdastjóri Húsafriðun-
arnefndar.
NÝ ÚTGÁFA KOMIN TIL LANDSINS
KLASSISKAR BARNABÆKUR
Þessar skemmtilesu os spennandi sösur hins
kunna höfundar Enid Blyton fjalla um nokkur
börn os vini þeirra úr dýraríkinu sem lenda
í ótrúlesustu aevintýrum.
Hver man ekki eftir Fimm-bókunum
os Ævintýra-bókunum. Hér eru
þær komnar aftur i nýrri útsáfu til óbland
innar ánæsiu fyrir öll börn os unsllnsa
- os jafnvel foreldra þeirra, afa
os ömmur!
lUÍGIlítffllIHS
í fjársjóðsleit
á Fagurey
i roíWiwii
IMmím íklr/ áÉB&m