Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2005, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2005
Fréttir DV
Þórir Karl Jónasson, fyrrverandi formaður Sjálfsbjargar, segist engan áhuga hafa á
afsökunarbeiðni frá Birni Elíasi Halldórssyni sjómanni, sem er sagður hafa sparkað
í hann eftir að þeir deildu fyrir utan Europris í Dugguvogi. Þórir hefur kært Björn
og vill að honum verði refsað. Björn Elías heldur fram sakleysi sínu og segist ekki
hafa komið við Þóri.
Meiri snjór
Veðurklúbburinn á
Dalbæ á Dalvík kom sam-
an á dögunum. Eins og
vanalega leit klúbburinn
yfir veðurfar mánaðarins
sem er að renna sitt skeið
og spáði í veðurfar kom-
andi mánaðar. Fundurinn
var almennt ánægður með
spána sem klúbburinn
gerði fyrir nóvember og
taldi að hún hafi staðist.
Hvað desember varðar,
voru félagar-sainmála um
að hann yrði mjög líkur
nóvember, en að öllum
líkindum kaldari. Snjó-
koma verður þó meiri en
ekki til baga.
Karlar ræða
jafnrétti
í dag frá klukkan níu til
tólf er ráðstefna um jafn-
réttismál í
Salnum í
Kópavogi.
Ráðstefnan
er eingöngu
ætluð körl-
um en Vig-
dís Finn-
bogadóttir
mun sitja
hana sem
verndari og heiðursgestur.
Á ráðstefnunni mun Þrá-
inn Bertelsson rithöfund-
ur auk fjölda annarra karla
flytja erindi. Egill Helga-
son sjónvarpsmaður mun
svo stýra pallborðsum-
ræðum karla. Aðgangur er
ókeypis meðan húsrúm
leyfir. Karlar eru hvattir til
að sækja ráðstefnuna.
Skákbærinn
Hafnarfjörður
Hafnarfjarðarbær í slag-
togi við Kátu biskupana,
Hrókinn, Skákfélag Hafnar-
fjarðar og menntamála-
ráðuneytið ætla að hefja
skákkennslu í grunnskólum
bæjarins. Gott gengi Kátu
biskupanna og Hauka
ásamt gríðarlegri skákvakn-
ingu í Hafnarfirði hefur
orðið til þess að bæjaryfir-
völd vilja leggja frekari
áherslu á skákiðkun barna
Sagt hótað af ríkislögreglustjóra og ákærður fyrir vínauglýsingu
„Hann var nú ekki einu sinni í hjólastól," segir Björn Elías Hall-
dórsson, 21 árs sjómaður, sem í gær var kærður til lögreglu af
Þóri Karli Jónassyni, fyrrverandi formanni Sjálfsbjargar, fyrir lík-
amsárás. Þórir og Björn deildu eftir að Björn hafði lagt pallbíl
sínum í stæði fyrir hreyfihamlaða og lauk deilunum að sögn Þór-
is með því að Björn sparkaði í maga hans.
Átökin áttu sér stað seinni part
þriðjudags fyrir utan Europris-versl-
unina í Dugguvogi.
Björn Elías segist hafa lagt pallbíl
sínum að hluta í bflastæði ætlað
hreyfihömluðum. „Ég rétt stökk inn
til að kaupa rúðupiss og skildi bílinn
eftir í gangi," segir hann sársvekktur
yfir þeim afleiðingum sem búðar-
hopp hans hefur haft.
Ekki einu sinni í hjólastól
„Þegar ég kom út var þessi maður
bandbrjálaður yfir því að ég hefði
lagt í þetta stæði. Hann bakkaði svo
bílnum sínum í veg fyrir bílinn minn
svo ég komst ekki út úr stæðinu."
Björn segir að þá hafi hann misst
þolinmæðina og látið Þóri Karl fá
það óþvegið. „Eg sagði honum að
drulla bílnum í burtu svo ég gæti
bakkað út. Annars mundi ég bakka
yfir hann. Það gerði hann. Ég veit
ekki hvað hann var að æsa sig svona
„Ég vil að þessidreng-
ur fái þá refsingu sem
hann á skilið."
mikið yfir því að ég hafi lagt í þetta
stæði. Hann er ekki einu sinni í
hjólastól," segir Björn Elías.
Vill að Birni verði refsað
„Það er bara hans vandamál,"
segir Þórir Karl Jónasson þegar hann
heyrði af frásögn Björns af atburð-
unum fyrir utan Europris en hans
frásögn er nokkuð frábrugðin því
sem Björn heldur fram. Þórir segist
hafa vitni sem staðfesta það sem
hann hefur áður sagt - að Björn hafi
sparkað í maga hans og ekið svo á
brott. Aðspurður hvort Björn hafi
hringt í sig og beðist afsökunar svar-
aði Þórir: „Nei. Og ég hef engan
áhuga á að heyra hana. Ég vil að
þessi drengur fái þá refsingu sem
hann á skilið."
Kom ekki við þennan kall
Þórir Karl hefúr um langt skeið
verið baráttumaður fyrir réttindum
hreyfihamlaðra. Hann var um tíma
formaður Sjálfsbjargar og lætur
gott aðgengi hreyfihamlaðra sig
mikluvarða.
„Þetta dæmi sýnir hversu
litla virðingu margir bera fyrir
P-stæðum,“ segir Þórir og
bendir á að það sé lögbrot að
leggja í slík stæði. „Þau eru
nauðsynleg fyrir hreyfihamlaða
svo þeir geti á greiðan hátt komist
inn og út úr bifreið sinni án vand-
ræða.“
Þórir gaf skýrslu hjá lögreglu
vegna kæru sinnar í gær. Björn verð-
ur kallaður í skýrslutöku innan
skamms.
„Já, er það? Ég er reyndar
á leiðinni á sjóinn,"
segir Björn og óttast
ekki kæru Þóris
Karls. „Ég er sak-
laus, kom aldrei
við þennan
kall.“
Tekið skal frarn að það er alrangt
sem sagt var haft eftir Birni í
fréttatíma Stöðvar 2 í gær að DV
hefði greitt honum fyrir viðtal.
andri@dv.is
ásamt hefðbundnum fög-
um. Gunnar Svavarsson
bæjarfulltrúi er fullviss um
að Hafnarfjörður eigi eftir
að verða leiðandi í skák-
menningu íslands í fram-
tíðinni.
Læknir dreginn í dómsal
lögreglustjóri var sagður hafa hótað
honum lífláti á Vínbarnum fyrir
nokkrum árum. Ingvar taldi sig
þekkja gamlan skólabróður sinn,
Sigurð, og ávarpaði Harald Johann-
essen sem slíkan. Ríkislögreglu
stjórinn mun hafa brugðist illa
við og staðið upp. Vitni herma
að hann hafi sagt með þjósti
að hann héti Haraldur og væri
ríkislögreglustjóri og síðan
skvett úr glasinu framan í
Ingvar.
Líflátshótunin var, að sögn
vitna að atburðinum, borin fram í
„Það liggur áaðná sambandi við allsherjarnefnd Alþingis og ræða þetta nýja frumvarp um rétt-
arstöðu samkynhneigðra, sambúð, ættleiðingar og tæknifrjóvgun," segir Gunnar Þorsteinsson í
Krossinum.„Ég sé ekki tvo karla ganga inn í sólarlagið hönd í hönd. Ég held að það verði
að gera þessum háu herrum grein fyrir því."
„Þetta er út af meintum áfengis-
auglýsingum sem birtust fyrir mörg-
um árum," segir Ingvar Jónadab
Karlsson læknir um mál sem Lög-
reglustjórinn í Reykjavík hefur höfð-
að gegn honum.
Ingvar hefur undanfarin ár rekið
litla áfengisheildsölu til hliðar við
læknastörfin og flutt inn léttvín.
Auglýsing sem hann birti í Gestgjaf-
anum fyrir tæpum fjórum árum er
nú orðin að dómsmáli sem fyrirhug-
að var að þingfesta í gær.
Ingvar komst í fréttir
eftir að Haraldur Johannessen ríkis-
framhaldinu. í ítarlegri úttekt sem
Mannlíf gerði nýlega á Haraldi var
sagt að kæru um líflátshótun Har-
alds hafi verið breytt í
dagbók lögregl-
unnar.
Ekki
náðist að j
þing-
festa
málið í'
dab í jarðarför. Hann segist ekki vita
hvernig hann muni svara ákærunni
en ætlar að ráðfæra sig við verjenda.
Aðspurður hvort málið sé nokkuð
runnið undan rifjum rík-
islögreglustjórans eftir
orðaskak þeirra á Vín-
barnum um árið svar-
aði Ingvar:
„Nja, nei. Það get ég
ekki ímyndað mér.“
andri@dv.is
gær
enda var
/
Ingvar
Jóna-
Haraldur Jo-
hannessen
Sagður hafa hót
að Ingvari lífláti.
Ingvar Jónadab
Karlsson læknir
Auglýsti léttvín í
Gestgjafanum.