Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2005, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2005, Page 14
J 4 FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2005 Fréttir DV Jakob Bjarnar Grétarsson • Kolbrún Bergþórsdóttir blaða- maður Blablaðsins þótti áður harð- asti bókmenntakrítíker landsins og ávann sér viðurnefnið Kolla kúpa þegar hún starfaði á Pressunni sál- ugu en þá gaf hún bókum hauskúp- ur á báða bóga. Hún er komin í sitt gamla form í nýútkomnu Mannlífí eftir reyndar að hafa gefið út yfirlýsingar þess efnis að hún væri hætt að gagn- rýna. Kolla kúpa fer vítt og breitt yfir sviðið og er ekki hrifin - sér ekkert já- kvætt nema ef vera kynni Jón Hall með Krosstré... • Þeir sem meðal annarra fá á baukinn hjá Kollu kúpu eru höfund- ar sem hún hefur áður haft í háveg- um. Amaldur Indriðason stendur ekki undir miklum væntingum hennar. Kolla segir Vetrarborgina langdregna, daufa og stirðlega skrif- aða. Og HaUgrímur Helgason er nú óvænt fallinn í ónáð en Kolbrún segist hafa gefist upp á 69. blaðsíðu, slík var raun hennar við lest- urinn... • DVbirti frétt á dögunum um sögusagnir þess efnis að hljómsveit- in Rolling Stones væri jafnvel á leið til landsins. Hafði blaðið Dr. Gunna fyrir þessum stórtíðindum en svo virðist sem einhverjir óprúttnir aðil- ar innan tónlistarbransans hafi farið býsna frjálslega með sannleikann í eyru þéssa helsta rokksagnfiræðings og spekings þjóðarinn- ar. Og þá stendur eftir stóra spurning- in: Hver er svo bí- ræfinn?... • Nokkur ólga virðist vera meðal starfsfólks Amþrúðar Karlsdóttur á Útvarpi Sögu. Þannig mun ein helsta skrautfjöður stöðvarinnar, Rósa Ingólfsdóttir, hafa látið af störfum og mun dráttur á launa- greiðslum vera ástæða brotthvarfs hennar. Þrátt fyrir þetta er engan bil- bug að merkja á Arn- þrúði. Hún ver sig sjálf í héraðsdómi gegn Ingva Hrafni og Sigurði G. og leggur fram gagnsókn. Segir þá skulda stöðinni stórfé. Auk þess hyggst hún á næstunni kynna til sögunnar nýja dagskrárgerðarmenn sem taisvert kveðji að... • Menn rýna nú í listann yfir hand- hafa diplómatapassa þann sem MörðurÁmason sveið út úr utanrík- isráðuneytinu. Á list- anum em aðskota- dýr og pólitískir gæðingar ekki áber- andi þótt finna megi nöfn sem má setja spurningamerki við hvort eigi þar heima. Meira um það síðar. Sá eini sem fellur undir 2. grein 19. liðar sem em „þeir listamenn sem um langt skeið hafa skarað fram úr á alþjóðavett- vangi og öðlast hafa heimsfrægð" er Vladimir Ashkenazy en þar hefði mátt búast við Björk, Erró og Krist- jáni Jóhannssyni í það minnsta. Ráðu- neytið hafði þrjóskast við að svara að því er virðist mest til að þrjóskast við en þá er líka kerf- ið í essinu sínu... Séra Vigfús Þór Árnason, sóknarprestur í Grafarvogskirkju, fagnar því að Björgólf- ur Guðmundsson, Finnur Ingólfsson og Jóhannes í Bónus hafi skotið saman fé til kaupa á nýju orgeli fyrir kirkjuna. Og ítrekar að sælla sé að gefa en þiggja. Auðmenn neta orgel Þrír helstu auðmenn þjóðarinn- ar hafa sammælst um að gefa Graf- arvogskirkju nýtt orgel fyrir 40 milljónir króna. Var það ákveðið eftir að séra Vigfús Þór Árnason sóknarprestur fékk þremenningana í heimsókn þar sem farið var yfir málið. Þörfin var brýn og þeir félag- ar, Björgólfur Guðmundsson í Landsbankanum, Finnur Ingólfs- son í VÍS og Jóhannes í Bónus, voru ekki lengi að ákveða sig: Orgelið skyldi keypt. Um þetta allt fjallar séra Vigfús Þór Árnason í leiðara Logafoldar sem er safnaðarblað Grafarvogs- kirkju. Þar segir presturinn meðal annars: Ógleymanleg stund „Þessir höfðingjár og viðskipta- jöfrar komu saman í kirkjunni og áttu þar saman ógleymanlega stund. í kjölfar fundarins tilkynntu þeir að þeir ætluðu að gefa hina „í kjölfar fundarins tílkynntu þeir að þeir ætluðu að gefa hina höfðinglegu gjöf; eitt stykki orgel. Já, hvílík- ur höfðingsskapur." höfðinglegu gjöf; eitt stykki orgel. Já, hvílíkur höfðingsskapur." Og séra Vigfús Þór heldur áfram: Sælt að gefa „Við þessi tímamót í lífi Grafar- vogssafnaðar koma upp í huga minn orð úr hinni helgu bók er segja: Fagn- ið fyrir Guði styrkleika vorum, látið gleðióp gjalla Guði Jakobs. Hefjið lof- söng og berjið bumbur, knýið hinar hugljúfu gígjur og hörpur," segir séra Vigfús Þór þegar hann fagnar orgel- inu og klykkir út með hinni vfðfrægu setningu úr Biblíunni: „Sælla er að gefa en þiggja." Gott nefndarstarf Nú á bara eftir að smíða orgelið en Hörður Bragason, organisti í Grafar- vogskirkju, á von á að geta leikið á það í fýrsta sinn eftir tvö ár. Veririð verður boðið út og alls ekki ólíklegt að orgel- ið verði smíðað hér á landi. Sérstök orgelnefnd var starfandi í Grafarvogskirkju og er ekki síst starfi hennar að þakka að orgelmálið í Graf- arvogi fékk þá farsælu lendingu sem að framan greinir. í orgelnefndinni sátu þeir Finnur Ingólfsson, forstjóri VÍS, Ari Edwald, ffamkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Gylfi Am- bjömsson, framkvæmdastjóri ASÍ, Tryggvi Jónsson, forstjóri Heklu, tveir fulltrúar úr kór Grafarvogskirkju og svo organistinn og presturinn. Tilhlökkun „Auðvitað er þetta frábært. Ég hlakka til," segir Hörður Bragason, organisti í Grafarvogskirkju, sem fýrstur fær að leika á nýja orgelið sem auðmennimir þrír hafa nú tryggt að keypt verði til safnaðarins. FH ekki meö í jólaþorpinu í Hafnarfirði Ákærðir fyrir að ræna Lyf og heilsu Gámurinn ekki nógu hátíðlegur „Þetta væri ákveðið fordæmi," segir Ellý Erlingsdóttir, formaður Skipulags- og byggingarráðs Hafnar- fjarðar, aðspurð hvers vegna íþrótta- félagið FH fær ekki að hafa sölugám við jólaþorpið í Hafnarfirði. FH-ingar hafa hingað til starifækt verslunar- ;ám fyrir jólin á lóð sinni í Kaplakrika. jólaþorpinu á Thorsplani em smá- kofar þar sem fólk getur selt vömr sín- ar. Skipulags -og byggingarráð synj- aði FH um pláss vegna þess að það telur gáminn draga úr heildarútlitinu þar sem lögð er áhersla á litla bjálka- kofa, grenitré og jólaljós til þess að gleðja augað. „Það var eitthvað í umræðunni að vera með en þeir em með reglur um Gleði í Jólaþorpinu „Ég skil alveg að þeir séu með sinn stíl," segir Pétur Stephensen, framkvæmdarstjóri FH. að hafa húsin öll eins og ég skil alveg að þeir séu með sinn stfl," segir Pétur Stephensen ffamkvæmdarstjóri FH. Hann býst við að gámur félagsins verði fýrir framan verslunarmiðstöð- ina Fjörðinn. Helga Magnúsdóttir, verkefna- stjóri Jólaþorpsins, telur að um 2000 manns hafi sótt jólagleðina á laugar- dag þegar þorpið var opnað. „Þetta var eins og lítið hringleikahús," sagði Helga. Leið aðeins klukku- tími á milli rána Gísli Valur Eggertsson og Andri Ragnarsson eru ákærðir fýrir að hafa framið vopnað rán í lyfjaversluninni Lyf og heilsu við Egilsgötu sunnu- daginn 10. júlí. Mál þeirra var þing- fest í Héraðsdómi Reykjavíkur á þriðjudag. Gísli Valur neitaði að tjá sig um sakargiftir. Andri játaði vörslu fíkni- efna en vildi bíða með að taka afstöðu til ránanna þar til að aðalmeðferð kæmi. Gísli er sakaður um að hafa verið vopnaður hnífi og ■ Andri skrúfjárni sem þeir ógnuðu starfs- manni með. Andri á að hafa spurt af- greiðslustúlkuna hvar lyfið Mogadon væri geymt en fíklar leysa gjaman efnið upp og sprauta sig í æð með þvf. Andri neitaði því við þingfestingu að hafa haft skrúfjárnið í hendi sér Lyf og heilsa Rán varframið viðEgilsgötuíjúlí 0PIÐ heldur hafi það verið í töskunni hans allan tímann. Gísli er einnig sakaður um að hafa aðeins klukkustund síðar farið vopnaður hnífi í Dominos þar sem hann ógnaði starfsmanni og skipaði honum að láta sig fá peninga úr sjóðvél starfsmanna. Gísli átti að hafa komist á brott með 10.500 krónur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.