Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2005, Page 18
18 FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER2005
Sport DV
Sunna í
Breiðablik
Sunna Gestsdóttir, frjáls-
íþróttakona, hefur ákveðið
að ganga í
Breiðablik úr
sínu gamla fé-
lagi, USVH. Hún
dvaldi í Dan-
mörku síðastlið-
ið ár og gaf til að
mynda ekki kost
á sér í landsliðið
í sumar en segist
nú vera reiðubúin að end-
urskoða sína afstöðu í því
máli. Sunna er íslandsmet-
hafi í 100 metra hlaupi og
langstökki.
Ferill Solskjær
á enda?
The Sun
greindi frá því í
gær að ferill
Ole Gunnar
Solskjær gæti
verið á enda
kominn. Félag
hans,
Manchester
United, sé þeg-
ar búið að skipuleggja
kveðjuleik fyrir hann, svo-
kallaðan „testimonial" leik,
þar sem aliur aðgangseyrir
rennur beint í vasa leik-
mannsins. Sjálfur er Sol-
skjær ekki búinn að útiloka
neitt og vonast að verða
klár aftur í jólavertíðinni.
, Hann hefur þó varla spilað
neitt með félaginu í tvö ár
vegna meiðsla. Samkvæmt
The Sun gæti Solkskjær
fengið allt að 600 milljónir
krónar í vasann vegna
kveðjuleiksins. Hann kom
til United árið 1996 og skor-
aði til að mynda ótrúlegt
sigurmark úrslitaleiks
Meistaradeildarinnar gegn
Bayern Múnchen árið 1999.
Adu á HM?
Bandaríski táningurinn
Freddy Adu hefur verið val-
inn í æfingahóp bandaríska
' landsliðsins í
knattspyrnu
sem kemur
saman í janúar
næstkomandi.
Adu er einung-
is 16 ára gam-
all en hefur
þegað spilað
tvö tímabil í
bandarísku at-
vinnumanna-
deildinni,
MLS, með DC
United. Hann
hefur átt í nokkrum erfið-
leikum með að stimpla sig í
byrjunarlið félagsins en hef-
ur þó gert nóg til að lands-
liðsþjálfarinn kalli á hann.
Möguleikar hans á að vera í
HM-hópi landsliðsins eru
þó fremur litlar.
EKKIMISSA
AF ÞESSU
19.15 Haukar-KR í
Iceland Hxpress deild
kvenna.
19.15 Heii untferð í
Iceland Express deild
kvenna. Höttur-Njarð-
vík, Hamar/Sel-
foss-I Iaukar, Grinda-
vík-Fjölnir, Haukar-KR,
Keflavík-Þór, IR-KR,
Snæfell-Skallagrímur.
Áttunda umferð Iceland Express deildar karla í körfubolta fer fram í kvöld. Njarð-
víkingar eru eina ósigraða liðið í deildinni en lið Snæfells og Þórs hafa vakið at-
hygli að undanförnu fyrir góða sigra. Hrafn Kristjánsson, þjálfari Akureyringa,
hefur stýrt sínu liði í gegnum mikið mótlæti.
Þórsarar mæts hrosandi
Mikill missir Óðinn
Ásgeirsson spilar ekki
meira i vetur eftir að
hann sleit hásin i leik
gegn Njarðvik.
Þórsarar eru komnir í hóp þeirra bestu í körfunni á nýjan leik eft-
ir fjögurra tímabila fjarveru, en fyrstu mánuðir tímabilsins hafa
reynt mikið á hið unga lið Hrafns Kristjánssonar. Eftir sigur í
fyrsta leik og tvo nauma ósigra gegn Grindavík og Fjölni dundi
áfallið yfir í fjórða leik gegn Njarðvík. Hrafn missti þá tvo stiga-
hæstu leikmenn sína á einu bretti, Bandaríkjamaðurinn Mario
Myles fór illa úr lið á tá um miðjan leik og Óðinn Ásgeirsson sleit
síðan hásin í lok hans. Saman höfðu þeir félagar verið með 40,3
stig og 14,3 fráköst að meðaltali í leik þegar þeir voru heilir í
fyrstu þremur leikjunum en nú þurfti Hrafn að leita nýrra leiða.
„Markmiðið okkar var að komast
í úrslitakeppnina áður en þessi áföll
dundu á okkur og það markmið er
óbreytt. Nú þurfum við bara að leita
annarra leiða til þess að ná því. Við
höfum verið að skerpa á áherslum í
varnarleiknum og það hefur verið að
skila sér. Það er mjög gaman og gef-
andi að þjálfa þessa stráka. Ég held
að þetta fjárhagslega skipbrot sem
félagið lenti í á sínum tími hafi bara
hreinlega kennt þessum strákum að
vinna fyrir sínu bæði utan vallar sem
innan hans,“ segir Hrafn Kristjáns-
son, þjálfari Þórsara sem hafa unnið
tvo leiki í röð í Iceland Express deild
karla.
Hafa sýnt andlegan styrk
„Við höfum sýnt andlegan styrk.
Við vorum í byrjun að reyna að
keyra mikið upp hraðann með Óð-
inn og Mario báða í fararbroddi
enda eru þeir báðir mjög góðir
íþróttamenn. Svo missum við Óðinn
og Mario var bara sem hálfur maður
þó svo að hann vaxi nú með hverj-
um leik. Nú snýst þetta ekki lengur
um það hjá okkur að skora meira en
hitt liðið heldur reynum að þvinga
þá til að skora minna en við,“ segir
Hrafn.
Tókauka áhættu
Hrafn tók líka auka áhættu með
því að spila með meiddan Banda-
ríkjamann. „Mér finnst þetta kana-
stand vera það mikið lotterí ekki síst
þegar kemur að því að fá til sín góða
karaktera. Við tókum þá ákvörðun
að standa með honum í gegnum
þessi meiðsli og ég er að vona að fá
það margfalt borgað til baka þegar
upp er staðið," segir Hrafn um þá
ákvörðun að senda Myles ekki heim
eftir að hann meiddist. Fimm leik-
menn Þórs skoruðu á bilinu 10 til 17
stig í sigurleiknum gegn Haukum og
breiddin í liðinu er áfram styrkur
þess þótt að það hafi misst út jafn-
sterkan leikmann og Óðinn Ásgeirs-
ÍRHSÞHOUH EHf
*
son sem var með 21,3 stig og 51%
skotnýtingu í fyrstu fjórum leikjun-
um.
Vantaði ógnun undir körf-
unni
„Nú þurfa stóru mennirnir undir
körfunni að taka rrieiri ábyrgð. Okk-
ur hefur oft á tíðum vantað þessa
ógnun undir körfunni sem gerði lið-
unum auðveldara fyrir áð klippa út
hjá okkur skotmennina," segir Hrafn
en næst á dagskrá er heimsókn til fs-
landsmeistaranna.
„Við mætum brosandi í leikinn í
Keflavik í kvöld og ég get
ekki séð að það sé mikil
pressa á okkur í þeim
leik. Við höldum
bara áfram að
gera það sem
við höfum
lagt áherslu
á sem er að
geta gengið
út af leik-
vellinum,
vitandi það
að við gáf-
um allt sem
við gátum í
leikinn og ör-
lítið meira en
það. Ég get ekki
gert meiri kröfur
strákanna en það,“
segir Hrafn en leikur
Keflavíkur og Þórs
hefst klukkan 19.15 í
Keflavík í kvöld.
Eraðná miklu
út úr Þórslið-
inu Hrafn Krist-
jánsson, þjálfari
nýliða Þórs hefur
komið liðinu í
gegnum mikið
mótlæti í vetur.
Hannes Þ. Sigurðsson hefur ekkert æft með Stoke í vikunni
Lenti í bílslysi um helgina og er stífur í hálsi
Hannes Þ. Sigurðsson knatt-
spyrnumaður í íslendingaliðinu
Stoke lenti í heldur óskemmtilegri
reynslu um síðustu helgi. Hann var
að aka á bíl sínum en missti stjórn á
honum og lenti utanvegar. Hann
hefur verið frá æfingum síðan þá en
ætti að byrja aftur af fullum krafti í
dag.
„Þetta var bara smá óhapp,“
sagði Hannes um atvikið við DV
Sport í gær. „Ég missti bara stjórn á
bflnum og keyrði út af veginum "
Eins og alkunna er aka Bretar „öfugu
megin" á veginum en Hannes segir
að það hafi ekki orsakað slysið. „Nei,
alls ekki. Það var reyndar furðu fljótt
að venjast."
Hannes hefur fengið meðhöndl-
um hjá sjúkraþjálfurum liðsins
vegna stífleika í hálsi og hefur aðeins
skokkað í vikunni. Hann býst þó við
að byrja aftur að spila aftur á æfingu
í dag og ætti því að vera orðinn klár
fyrir næsta leik sem er á mánudag er
Stoke tekur á móti QPR.
Hann gekk til liðs við félagið frá
Viking í Noregi í sumar en þurfti að
ná sér af meiðslun áður en hann gat
farið á fullt með nýju félagi. Hann
fékk sitt fyrsta tækifæri með liðinu í
byrjun október og hefur komið við
sögu í öllum leikjum síðan þá nema
einum, ýmist í byrjunarliði eða sem
varamaður. Hann hefur aðallega
verið á hægri kantinum en fékk
að spila „sína stöðu" í síðasta
leik. „Ég var ánægður með að fá
að vera frammi," sagði Hannes
sem á enn eftir að opna marka-
reikninginn sinn hjá félaginu.
„Ég hef lítið verið að koma mér
í boxið en fyrsta markið ætti nú
að fara að koma fljótlega."
eirikurst@dv.is
Hannes með Stoke
Hannes Þ. Sigurðsson
ieikmaðurStoke tekst |
á við Andy Impey,
ieikmann Coventry í
leik liðanna í ensku 1.
deildinni.
Nordic Photos/Gettv