Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2005, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2005, Page 20
20 FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2005 Sport JJV Eru að skoða það að styrkja liðið Nýliðar Þórs- ara í Iceland Ex- press deild karla eru að skoða sín mál með það í huga að styrkja liðið sitt. „Við ætluðum að gefa okkur út nóvember- mánuð til þess að skoða það því við erum frekar brot- hættir því það eru margir ekki alveg heilir og það á sérstaklega við um stóru mennina okkar. Það er ekki hlaupið að því að fá leik- mann sem við höfum efni á til þess að koma og styrkja liðið," sagði Hrafn Kristjáns- son, þjálfari Þórsara í sam- tali við DV í gær. Þrír leikmenn fyrir aga- nefnd Fimm aðilar, þar af þrír leik- menn koma fyrir aganefnd FIFA út af slagsmálunum sem brutust út eftir leik Tyrkja og Sviss- lendinga í umspili um sæti á HM í knattspyrnu næsta sumar. Svisslendingar. höfðu betur en það brutust út slagsmál milli liðanna á leið sinni til búningsher- bergja. Leikmennirnir sem um ræðir eru Tyrkimir Emre og Alpay og Svisslend- ingurinn Benjamin Huggel. Aðstoðarstjóri Tyrkja, Meh- met Ozdilek, og svissneski sjúkraþjálfarinn Stephan Meyer koma einnig fyrir nefndina ásamt tyrkneska knattspyrnusambandinu. Bandaríkja- menn vilja í efsta flokk Bruce Arena, þjálfari bandaríska landsliðsins, vill að sitt lið verði í efsta styrk- leikaflokki þegar dregið verður í úrslitakeppni HM í Þýskalandi. Bandaríska landsliðið er í 8. sæti á heims- lista FIFA, sæti neðar en Mexíkó en allar lík- ur em á að eitt lið úr Norður- og Mið- Am- eríku fái sæti meðal þeirra átta liða sem skipa fyrsta styrkleikaflokkinn. „Við höf- um gert það sem þarf til þess að verðskulda þetta sæti,“ sagði Arena en bandaríska landsliðið vann CONCACAF- undanriðilinn í fyrsta sinn í 71 ár. Casillas búinn að semja til 2011 Spænski landsliðs- markvörður knatt- spyrnuliðsins Real Madrid, Iker Casillas, framlengdi í gær samning sinn í gær til ársins 2011. „Ég er búinn að framlengja samninginn minn um fimm ár. Þetta er mikill gleðidagur og nú get ég farið að einbeita mér að fullu að því að vinna titla með Real Madrid," sagði hinn 24 ára gamli Casillas sem verður þrítugur þegar nýi samningurinn hans rennur út. Casillas hefur leikið í 6 ár með liði Real en hann lék sinn fyrsta leik árið 1999. Franska knattspyrnutímaritið France Football afhenti Gullboltann í fimmtugasta sinn á mánudag. Enska úrvalsdeildin átti þrjá menn meðal þeirra efstu fjögurra en Brasilíumaðurinn Ronaldinho hlaut verðlaunin. Enska deildin hefur aðeins fimm sinnum átt knattspyrnumann Evrópu. U_l Gullboltinn eftir- sótti Gullbolti franska knattspyrnu- tímaritsins France Football hefur aðeins fimm sinnum farið til leikmanns i ensku úr- valsdeildinni. Margir vilja halda því fram að enska úrvalsdeildin sé sterkasta deildin í Evrópu en ef marka má kjör íþrótta- fréttamanna á besta knattspyrnumanni Evrópu þá er það langt frá því að vera raunin. Síðan að George Best vann Gullboltann árið 1968 hefur aðeins einn leik- maður úr ensku úrvalsdeildinni hlotið þessi verðlaun. Á sama tíma hafa verðlaunin farið 17 sinnum til Ítalíu, 9 sinnum til Þýskalands og sjö sinnum til Spánar og meira að segja oftar til Sovétríkjanna en til Englands. Enska úrvalsdeildin hefur fimm sinnum haft knattspyrnumann Evrópu innan sinna raða. Stanlew Matthews var fýrstur til þess að hljóta þessi verðlaun þegar hann vann 1956 þá sem leik- maður Blackpool. Þríeykið hjá Manchester United, Dennis Law, Bobby Charlton og George Best hlutu síðan allir Gullboltann á árunum 1964- 1968 og þegar Best tók við honum 1968 hafði Gullboltinn oftast farið til Englands og Spánar (4 sinnum) á fyrstu 13 árum verðlaunanna. En frá þeim tíma hefur aðeins einn leikmaður í ensku úrvalsdeildinni hlotið þessi verðlaun en Michael Owen var knattspyrnumaður Evrópu árið 2001 sem leikmaður Liverpool. Frábært tímabil hjá Lampard og Gerrard Brasilíumaðurinn Ronaldinho hlaut yfirburða- kosningu að þessu sinni en í þremur næstu sæt- um voru leikmenn í ensku úrvalsdeildinni, Frank Lampard, Steven Gerrard og Thierry Henry. Lampard fékk 77 atkvæðum minna en hann átti magnað tímabil þar sem hann átti stóran þátt í að Chelsea vann sinn fyrsta meistaratitil í 50 ár og hann er langmarkahæsti leikmaður liðsins á árinu þrátt fyrir að leika á miðjunni. Gerrard var síðan aðalmaðurinn í sigri Liverpool í Meistaradeildinni þar sem hann fór mikinn í síðari hálfleik í úrslita- íeiknum þar sem Liverpool vann upp 0-3 forskot AC Milan. Þriðji maðurinn úr ensku úrvalsdeild- inni er síðan Theirry Henry sem hefur 'ekki farið vel út úr alþjóðlegum verðlaunum undanfarin ár. Gengið framhjá Henry Besta dæmið um frábæran leikmann í ensku úrvalsdeildinni sem hefur ekki fengið þessi verð- laun er Frakkinn Theirry Henry hjá Arsenal. Henry var nú þriðja árið í röð meðal fimm efstu í kjörinu en hefur aldrei komist í tæri við Gullbolt- ann eftirsótta þrátt fyrir hvert frábæra tímabilið á fætur öðru. Thierry Hemy hefur þrisvar sinnum verið markakóngur ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu fjórum árum og fjórða árið varð hann í öðru sæti með 24 mörk og setti á sama tíma met með því að gefa 23 stoðsendingar á félaga sína í liðinu. Öll þessi fjögur ár hefur Arsenal unnið stóran titil þar af tvöfaldan sigur 2002 og meist- aratitil 2004 þegar Henry skoraði 30 mörk á tíma- bilinu, átta mörkum meira en næsti maður. Þessi staðreynd er síðan enn sárari fyrir Frakkann snjalla þar sem verðlaunin eru frönsk og aðeins einn Frakki hefur hlotið þau síðan 1991 (Zidane 1998). Aðrir frá- bærir leik- menn sem hafa ekki hlotið náð- ina þrátt fyrir stórkostleg tíma bil eru Peter Sch- meichel fyrrum. markvörður Manchester United, franski framherjinn Eric Cantona, Alan Shearer, Ian Rush, Kenny Daglish og David Beckham svo ein- hverjir af þeim kunnustu séu nefndir til sögunnar. 103 mörk á fjórum tíma bilum Theirry Henry hefur skorað 103 mörk á siðustu þremur tímabilum iensku úrvalsdeildinni og hefur átt þátt i fimm stórum titlum Arsenal á þessum tíma. Hvert helur GylMtiim, fariD siðustu 24 arin: ítalska A-deildin 15 sinnum 1982 Paolo Rossi, Juventus 1983 Michel Platini, Juventus 1984 Michel Platini, Juventus 1985 Michel Platini, Juventus 1987 Ruud Gullit, AC Milan 1988 MarcoVan Basten, AC Milan 1989 Marco Van Basten, AC Milan 1990 Lothar Matthaus, Intemazionale 1992 MarcoVan Basten, ACMilan 1993 Roberto Baggio, Juventus 1995 George Weah, AC Milan 1997 Ronaldo, Internazionale 1998 Zinedine Zidane, Juventus 2003 Pavel Nedved, Juventus 2004 Andriy Shevchenko, AC Milan Spænska úrvalsdtildin 5 sínnum 1994 Hristo Stoitchov, Barcelona 1999 Rivaldo, Barcelona 2000 Luis Figo, Real Madrid 2002 Ronaldo, Real Madrid 2005 Ronaldinho, Barcelona Sovéska 1. deildin 1 smni 1986 Igor Belanov, Dynamo Kiev Franska urvatsdeildin Isinni 1991 Jean-Pierre Papin, Olympique Marseille Þýska Bundesligan 1 sinni 1996 Matthias Sammer, Borussia Dortmund Enska úrvalsdeildin 1 sinni 2001 Michael Owen, Liverpool Fékk verðlaunin 1968 George Best fékk Gullboltann árið 1968 en síðan hefuraðeins enn leik- maður íensku úrvalsdeildinni fengið þessi verðlaun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.