Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2005, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2005, Qupperneq 21
DV Sport FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER2005 27 •r Öll þrjú liðin komust áfram Öll þrjú liðin sem voru með Haukastelpunum í riðli í Evrópukeppninni komust áfram í 32 liða úrslit í EuroCup. Italska liðið Polisportiva Ares Ribera vann riðilinn og ffanska liðið Pays D’Aix Basket 13 end- aði í öðru sæti en tvö efstu sætin voru ör- ugg áfram. Spænska liðið CajaCanarias tryggði sér þar með annan besta árangurinn af þeim liðum sem enduðu í þriðja sæti í riðlunum. Ribera mætir Acis Incosa Leon ifá Spáni, Pays D'Aix Basket mætir Arvi Marijampole frá Litháen og CajaCanarias spil- ar við BC Chevakata frá Rúss- landi í 32 liða úrslitunum. Lampard, Eto'o og Ronaldinho FIFA hefur gefíð það út hvaða þrír leikmenn eru í efstu sætunum í vali lands- liðsþjálfara heims á besta leikmanni ársins. Að þessu sinni eru það Frank Lampard hjá Chelsea og Barcelona-leik- mennirnir Ronaldin- ho og Samuel Eto’o sem eru í þremur efstu sætum í valinu. Ronaldinho fékk þessi verðlaun í fyrra og var á dögunum valinn besi knattspyrnumaður Evr- ópu þar sem Lampard end- aði í 2. sæti. Besti knatt- spyrnumaður FIFA fyrir árið 2005 verður síðan útnefnd- ur 19. desember. Vesturlands- slagurinn í kvöld Það verður stórleikur í Stykkishólmi í kvöld þegar Snæfell tekur á móti Skallagrími. Bæði lið hafa leikið mjög vel á síðustu vikum eftir að hafa bæði byrjað tímabilið illa. Snæfell hefur nú unnið þrjá heimaleiki í röð og Skalla- grímsmenn töpuðu síðast í deildinni í október og hafa ekki tapað deildarleik síðan að Dimitar Karadzovski varð löglegur eða í fjórum leikjum. Staða Þórðar Guðjónssonar hjá Stoke City verður alltaf furðulegri. Hann fær ekki að spila með liði félagsins, hvorki aðalliði né varaliði, en þrátt fyrir það eru for- ráðamenn félagsins ekki tilbúnir að gera starfslokasamning við Þórð sem hann seg- ir algenga í ensku knattspyrnunni. Gunnar Gíslason stjórnarformaður segir að honum sé frjálst að fara hvenær sem er. Þórður Guðjóns- son Ekki með Skag- anumfyrreníjúli? Allt útlit er fyrir að Þórður Guðjónsson verði ekki kominn með leikheimild með ÍA fyrr en 15. júlí næstkomandi, þegar íslenska knattspyrnutímabilið verður hálfnað. Þórður skrifaði nýverið undir þriggja ára samning við félagið en nær ekki samkomulagi við Stoke City um starfslokasamning. „Honum er frjálst að fara hvenær sem er frá okkur," sagði Gunnar Gíslason, stjórnarformaður Stoke City, í samtali við DV Sport í gær. Málið er þó ekki alveg svo einfalt því Þórður vill gera starfslokasamning við félagið en hann er samnings- bundinn því til 30. júní næstkom- andi. Að eigin sögn gæti hann neyðst til að dvelja hjá félaginu út samningstímann til að fá sín laun. Félagaskiptaglugginn fyrir leikmenn sem koma erlendis frá opnar ekki fyrr en 15. júlí og þyrfti Þórður því að horfa á fyrri helming tímabilsins á íslandi. „Félagið er með samning við hann út árið og erum við tilbúnir að leysa hann undan samningi án þess að hann þurfi að borga krónu fyrir það,“ sagði Gunnar. „Samningurinn er gagnkvæmur. Við lofum að borga honum laun og hann lofar að vera í vinnu hjá okkur þar sem hann á að vera tilbúinn að spila fótbolta fyrir liðið. Hann vill semsagt að við leys- um hann undan sinni skyldu í samningnum þar sem hann vill fara að spila fótbolta hjá Skaganum. Hann vill hins vegar að við stöndum við okkar og borgi honum laun.” Pattstaða Gunnar ítrekar hins vegar að fé- lagið vill ekki standa í veg fyrir að hann fari og spili með Skaganum, þvert á móti standi honum það til boða. „En ef hann er hættur við það þá er það bara svoleiðis. Við virðum okkar samninga, það breytist ekki.“ Þórður segir að þegar samskonar mál komi upp í Englandi eru leik- mönnum boðinn starfslokasamn- ingur og félögin greiði þeim rúmlega 50% þeirrar upphæðar sem þeir hefðu annars fengið ef þeir yrðu áfram hjá félaginu út samningstím- ann. „Það virðist vera alger patt- staða í þessu máli. Ég tók á mig stóra launalækkun á sínum tíma þegar ég kom til félagsins og get ekki tekið þetta á mig líka. Ég fór til þeirra með mun lægri prósentutölu en tíðkast venjulega og ég get einfaldlega ekki farið neðar. Ég er margbúinn að ræða við þá og þeir hafa ekki sýnt mér mikinn skilning. Þeir virðast ekki vera tilbúnir að vera sanngjarn- ir í minn garð.“ Lítill metnaður Að sögn Þórðar er allt eins líklegt að hann verði hjá félaginu út tíma- bilið í Englandi en það þýðir að hann fær ekki leikheimild með ÍA fyrr en fimmtánda júlí. Hann sjálfur virðist ætla standa fastur við sitt og af máli Gunnars að dæma er ekki út- lit fyrir að Stoke slaki á sinni afstöðu. „Hann Þórður virðist alveg sáttur við Gunnar Þór Gísla- son Ekki tilbúinn að meeta kröfum Þórðar um kjör ístarfsloka- samningi. Þorður ekki með IA fyrr en í júlí? að vera hérna út tímabilið, enda er hann þegar kominn með samning við Skagann. Hann hefur verið að segja við fjölmiðla að hann ætli að vera hér allan tímann og virðist hann ekki vera með meiri metn- að að spila fyr- ir Skagann en það,“ segir Gunnar og bætir við: „Við erum ekki að reka íþrótta- •Vý' bandalag Akraness." Eiríkur Guðmunds- son formaður meistara- flokksráðs karla hjá ÍA segir að félagið hafi alla tíð vitað að þetta gæti farið svo og að þeir muni bíða þolinmóðir eftir Þórði. eirikurst@dv.is FRJALS IBUÐALAN Frjáls íbúðalán eru verötryggö fasteignalán meó föstum 4,35% vöxtum sem eru endurskoðaðir á fimm ára fresti Pú hagar öðrum bankaviðskiptum eins og þér sýnist og kaupir nýtt tiúsnæði eða endurskipuleggur fjár- haginn. Komdu til okkar í Lágmúla 6, hringdu (síma 540 5000 eða sendu okkur póst á frjalsi@!rjalsi.i$. ENGIN SKILYRÐI UtVI ÖNNUR DÆMI OM MÁNAÐARLEGA GREIÐSLUBYRÐI AF 1 000 000 kr KAUPA EÐA ENDURBÓTA FRJALSI Lánstími 5 ár 25 ar 40 ár 4,35% vextir 18.575 kr. 5.474 kr. 4.400 kr. — —r* • !; BBIplpj J 'Mt t j §r JIP * ‘V ’ 98BSM. r v. St f i ^ -rf Hr

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.