Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2005, Page 23
DV Lífið sjálft
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2005 23
felis fúhkalyf f bará'tcunni «51 kynsjúkdóma
Þegar sjúklingur er greindur með kynsjúkdóm virkar vel að láta hann hafa fúkkalyf til að koma
til rekkjunauta sinna til að koma í veg fyrir útbreiðslu sjúkdómsins. Þetta kemur fram í banda-
rískri rannsókn. I rannsókn á 977 karlmönnum sem greindir höfðu verið með kynsjúkdóm var
helmingnum gefið fúkkalyf til að koma til rekkjunauta sinna. Hinir áttu að fylgja hefðbundnu
ferli og láta rekkjunauta sína vita um sjúkdóminn svo þeir myndu látið skoða sig. Um það bil
70% af þeim sem höfðu fengið fúkkalyfin komu sér í samband við rekkjunautana og ræddu um
kynsjúkdóminn miðað við 48% þeirra sem áttu einungis að tala við rekkjunautana.
Birkiaska
Umboðs- og söluaðlli
Birklaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
BETUSAN
♦ Atvinnuleysisferill hans?
Enginn er fullkominn og
það er enginn að segja að
kærastinn þinn þurfi að vera
ríkur. En ef metið hans f vinnu
eru aðeins þrír mánuðir skaltu
hætta að hugsa um hann. Þú
ert að leita af maka ekki barni
sem þú þarft að sjá um fjár-
hagslega.
♦ Fangelsisvistarferill hans?
Þú verður að vita hvort mað-
urinn sem þú ert að falla fyrir
hafi að baki sér hrikalega fortíð.
Það eiga allir að fá sinn séns en
ef hann hefur eytt meiri tfma á
bak við lás og slá en heima hjá
sér er greinilega eitthvað að.
♦ Hvar á hann heima?
Ef þú veist ekki heimilis-
fangið hans eftir nokkra daga
kynni skaltu hætta með hon-
um. Allar líkur eru á að hann
eigi heima með konu sinni og
börnum í Grafarvoginum.
♦ Hvemig er hann á sig kom-
inn líkamlega?
Enginn er að segja þér að láta
þig hverfa þótt hann eigi við
sjúkdóm að stríða en þú skalt
vera hreinskilin við sjálfa þig og
hann í leiðinni. Ertu manneskja
til að eyða resúnni af lífinu með
einstaklingi sem getur ekki elt
þig þangað sem þú vilt fara og
bryður lyf í sífellu.
♦ Hversu mörg böm á hann?
Maður með barn er alls
ekkert slæmt. En maður sem á
sjö börn með sjö konum segir
þér ýmislegt. Hann hoppar
greinilega á milli rúma án þess
að hugsa um öryggið. Langar
þig virkilega að verða mamma
númer átta?
♦ Hvemig er sambandinu við
mömmu hans háttað?
Kennir hann mömmu sinni
um allt sem miður fer? Þú get-
ur ekki bjargað honum.
Slepptu honum og haltu áfram
með þitt líf.
♦ Verður hann að hafa stjóm
yflröllu?
Verður hann pirraður ef þú
svarar ekki símanum í hvert
skipti sem hann hringir? Eða
hringir hann stanslaust þar til
þú svarar? Láttu þig hverfa
sem fyrst, þú nennir ekki að
púkka upp á svona menn.
Betra núna áður en þú þarft
hjálp lögreglunnar.
♦ Hvemig líkar honum við
bömin þín?
Vertu viss um að hann sé
barngóður áður en þú skilur
hann einan eftir með börnun-
um þínum. Talaðu við börnin
og spurðu hvernig þeim líkar
við hann.
Comfort Latex
með heilsudýnum Hægindastólar
160x200 verófrá kr. 49.740,- með bylgjunuddi
180x200 verð frá kr. 59.740.- og hita fyrir mjóbak verð frá kr. 31.900
Verslunin Rúmgott • Smiðjuvegi 2 ■ Kópavogi • Sími 544 2121
Opið virka daga frá kl. 10-18 - laugardaga kl. 11-16
Rafmagnsrúm
80x200 verð frá kr. 59.900.-
160x200 verð frá kr. 119.800