Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2005, Page 40
I *
/
I
fj
j j Cl-Jj C CJ -i Við tökum við
fréttaskotum aílan sólarhringinn. Fyrirhvert fréttaskot sem
birtist, eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið íhverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar
^jnafnleyndar er gætt. *-• _*-J q *-• (J (J
SKAFTAHUÐ24, ÍOSREYKJAVÍK JST0FNAÐ 1910] SÍMISSOSOOC
690710 111117'
flpleg hátíð á íslandi
„Nú er ég að vinna að því
fullum fetum, í samvinnu við
Kiri vinkonu mína, að koma á
koppinn tónlistarhátíð
í Reykjavík sem á
að heita
Reykjavik
Classic," segir
Einar Bárðars-
son umboðs-
maður íslands
og Kiri Te Kanawa -
hinnar heimsþekktu nýsjá-
lensku óperusöngkonu.
Einar er með mörg jám í eld-
inum nú í miðri jólavertíð en
þetta verkefni ættí að vekja at-
hygli sem mun ná út fyrir land-
steina. Hugmyndin er sú að
halda árlega mikla tónlistarhá-
tíð sem hefur það að megin-
markmiði að koma ungu tón-
listarfólki úr klassíska geiranum
á framfæri. Á tónlistarhátíðina
yrði svo boðið heimsþekktum
nöfnum úr þeim geira og víst er
að íslandsvinurinn Kiri mun þar
víða eiga ítök en hún verður
einskonar vemdari eða guð-
móðir hátíðarinnar. Auk þess
verður hún helsti skipuleggj-
andi auk Einars.
„Pælingin er þessi að ef til
dæmis Jose Carreras kæmi og
syngi á tónleikum yrði hann fyrr
sömu viku með tónleika þar
sem hann kynnir þijá nýja
söngvara - einhverja sem hafa
alla möguleika á að skapa sér
nafn í náinni framtíð," segir
Einar. Hann segir jafnframt
hugmyndina hafa nú verið á
teikniborðinu í um ár og verður
fyrsta hátíðin vonandi strax í
vor. Ljóst er að hátíð af þeirri
stærðargráðu sem að er stefht
verður til þess að auka lista- og
menningarstarf á íslandi til
mikilla muna. Og koma íslandi
rækilega á kortíð í klassíska
geiranum. Einar segir að ekki
hafi enn verið tekin um það
ákvörðun hvort byrjað verði
með látum eða hátíðin byggð
upp hægt og bítandi. „Við erum
núna að vinna samstarfssamn-
inga við fyrirtæki sem þurfa að
koma að þessu."
Einar er umboðsmaður Kiri
Te Kanawa og segir
hann það starf
ganga vel. Þétt-
skipuð dagskrá
er hjá henni á
næsta ári en þá
mun hún fara
um allan heim. Og
Einar verður með í för. „Hún
byijar reyndar ekkert að syngja
fyrr en hún hefur farið til lax-
veiða hér sem verður síðla sum-
ars. Hún verður með í einhveij-
um örfáum atriðum fram á vor.
Hún þarf ekkert að syngja frekar
en hún vill. Hana vantar ekkert.
Vinnur bara þegar hana langar
en er annars bara að leika sér.“
jakob@dv.is
Hringdu ef
Stefán klikkar!
• Skötuhjúin
Steinunn Ólína
Þorvarðardóttir
og Stefán Karl
Stefánsson prýða
forsíðu nýja
Mannlífs, sem
kemur út í vik-
unni. Fyrirsögn-
in Bónorð og barn vekur athygli
margra, enda bendir hún til þess að
Steinunn sé ólétt. Hið rétta er aftur
á móti að hún
segist ekki geta
hugsað sér að
verða fertug með
hvítvoðung upp
á arminn. Þar
sem aðeins fjög-
ur ár séu til
stefhu hyggi þau
Stefán því á barneignir á næstu
misserum. Enda segir Steinunn að
lítið vit sé í öðru en að eignast
því „allt er þá þrennt er“...
•Þjóðin hefur fylgst með baráttu
Sophiu Hansen um árabil en hún
hefur reynt að heimta dætur sínar
af barnsföður sínum Halim Al. Séð
ogheyrt greindi frá því í gær að
Halim sé æfur vegna meðlags-
greiðslna sem Sophia krefur hann
um. Lífið virðist reyndar loks farið
að leika við Sophiu en vegna bar-
áttu sinnar hefur hún dvalið lang-
dvölum í Tyrklandi og þar hefur
hún fundið ástina í örmum landa
fjanda síns Halims...
www.flugger.is