Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2005, Síða 28
Íilil
Sumarliði Þór Jónsson Heíurað-
ems eitt takmark og það er Hulda.
Ástarfleyið er á fullri ferð á Sirkus en þar er ekki allt sem sýnist. Hulda Kristín Hlöðvers-
dóttir heillar þar jafnt karla sem konur og fer mikinn. Hún deilir bóli með Sumarliða Þóri
Jónssyni, sem hefur játað henni ást sína, en hjarta Huldu liggur annars staðar.
Kia og Hulda Gætu orðið fallegtpar.
Hanna G. Stefánsdóttir
Atti stundí fadmi Huidu.
Kia Er falleg stúika og hefur
kannski kveikt i Huldu.
„Hulda er bara frábær og hress einstaklingur og hefur gaman
af lífinu," segir Kia þátttakandi íÁstarfleyinu um Huldu Krist-
ínu Hlöðversdóttur. Þær stöllur hafa verið að draga sig saman
undanfarið en það hefur kallað fram mikla afbrýðisemi frá
Sumarliða Þóri Jónssyni. Hann deilir rúmi með Huldu og
hefur játað henni ást sína.
„Hulda er mjög sterkur per-
sónuleiki og vill prófa allt sem lífið
hefur upp á að bjóða," segir Kia
aðspurð um hvort samband þeirra
Huldu sé að þróast út í ástarsam-
band. Kia vill ekki fara nánar út í
þá sálma og bendir á Huldu sjálfa.
Hún var um tíma í sambúð með
handboltakonunni föngulegu
Hönnu G. Stefánsdóttur.
Ástarþríhyrningur
Sumarliði hefur lengi haft auga-
stað á Huldu og rennt til hennar
hýru auga í þáttunum. Hann hefur
sagt að hans eina takmark í þátt-
unum sé að ná sambandi við
Huldu. Þau deila nú rúmi £ Ástar-
fleyinu en þrátt fyrir það hefur
Sumarliði ekki náð að heilla
Huldu. Hún virðist hafa meiri
áhuga á Kiu og í síðasta þætti sat
Kia í fangi Huldu og létu þær vel
hvor að annarri.
„Það er fullkomlega í lagi að fólk
fylgi hjarta sínu á meðan að það
skaðar ekki aðra," sagði kafteinn
Flygenring, sem stýrir þættinum
Ástarfleyið á Sirkus, um ástandið á
Ástarfleyinu og vildi Lftið gefa út á
þær annað en að það væru mörg
herbergi í húsnæði Drottins sem í
þessu tilviki væri Ástarfleyið.
Sumarliði fjúkandi reiður
Sumarliði úthrópar Huldu fyrir
siðleysi í sýnishorni úr næsta þætti
en brúðarsvítan í bátnum féO þeim
í skaut þar sem innOeiki þeirra í
miOi þótti mikiO. Sumarliði er
mjög ósáttur við að Hulda skuli
renna hýru auga tíl Kiu eins og sést
hefur í síðustu þáttum.
Nú er bara að bíða og sjá hvað
gerist í þættinum annað kvöld en
spennan fer vaxandi eftir því sem
pörin draga sig saman.
Þegar DV náði tali af Huldu
sagðist hún ekki vera í aðstöðu tO
að tjá sig um málið. Það er greini-
legt að aOt er mögulegt í lelk stríðs
og ástar og ekki síst á Ástarfleyinu.
28 MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2005
Lífið DV
„Já, ég og mamma vinnum sam-
an. Hún á blómabúðina og ég
hjálpa henni á annatímum eins og
þessum," segir Bryndís og brosir.
„Það er voða notalegt að grípa í
þetta með mömmu svona á milO
* sýninga en ég fer með aðaOilutverk
ásamt Steini Ármanni í söngkabar-
ettinum um Nínu og Geira. Við
*»
erum komin í jólafrí en byrjum aft-
ur af fuOum krafti í janúar," segir
hún.
„Mamma er búin að reka
Blómastofuna í nokkur ár og þar
sem þetta er bæði blómabúð og
kaffibar geta kúnnar sest niður og
fengið sér kaffi og með því í róleg-
heitum," segir hún hress. „Við sinn-
um öfium hlutverkum hinnar hefð-
bundnu blómaverslunar auk þess
að vera með mikið úrval gjafavöru
og að sjálfsögðu kaffihúsið sem gef-
ur þessu öOu skemmtilegan blæ. Að
vera hérna og hjálpa tíl yfir hátíð-
amar kemur mér svo sannarlega í
alvöru jólaskap enda annað erfitt í
svona hlýlegu andrúmslofti," segir
Bryndís og fær sér sopa af kaffinu.
„Ég er komin í virkilegt jólaskap
og hlakka til jólanna og nýt þess að
vera í faðmi fjölskyldunnar," segir
Bryndís sem á von á öðru barni
sínu með manninum sínum Atla
Þór Albertssyni og er virkilega
blómleg.
maria@tdv.is
Bryndís Ásmundsdóttir er ansi blómleg. Hún gengur með barn, leikur í söngleik og vinnur i blómabúð.
Situr milli blómanna og bíður eftir jólunum
Hulda smellir einum godum á Kris
inu Þær segjastþo bara vera vinkonur.
Hulda Kristín Hlöðversdóttir
Gæti hafa heillast afKiu.