Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2006, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2006, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2006 Fyrst og fremst DV Útgáfufélag: 365 - prentmiðlar Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Mikael Torfason Fréttastjóri: Óskar Hrafn Þorvaldsson DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, slmi: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 515 7599- Ritstjórn: 550 5020 Fréttaskot 550 5090 Ritstjóm: ritstjorn@dv.is Auglýsingar: auglysingar@dv.is. Setning og umbrot: 365 - prentmiðlar. Prentvinnsla: (safoldarprentsmiðja. Dreifing: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og úr gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Jónas Kristjánsson heima o g að heiman t vlöa í Evr- ópu á þessum vetri. Eftir dráp þeirra á hollenzka kvik- myndaleikstjór- anum Theo van Gogh, virðast þeir hafa fært sig upp á skaftið. Þeir mótmæltu birtingu skrlpamynda af Múhameð spámanni í Jyllandsposten, þótt vestrænar hefðir heimili, að gert sé grln að trú manna, til dæmis að Jesú Kristi. Menningarritstjóri Jyllandsposten fer nú huldu höföi (Flórfda til að foröast til- ræði múslima. Þetta ferli geng- ur ekki lengur. Ef múslimar vilja búa á Vesturlöndum, verða þeir að sætta sig við siði og venjur vestrænna rfkja. Þeir verða ann- ars að vera heima hjá sér. heimsmálanna á nýja árinu. Vinir hennar og trúbræður hafa unnið kosning- arnar I írak. Þeir munu byggja upp ofstækisríki ( suðurhluta landsins, svipað rfki og Amadinejad forseti hefur verið að efla IPerstu. Hann er leynt og Ijóst að gera ríkiö að kjarnorkuveldi, sem mun auka spennuna (Miðausturlöndum, þar sem Persía verður mótvægi við ísrael. Amadinejad neitar að viöurkenna helför gyðinga. Bandarlkin munu enn slður ráða við Persfu en (rak, þv( að landið er stærra og fjölmenn- ara og ágreiningur I trúmálum nánast enginn, öfugt við flokkadrættina I frak. Umhverfisógn verður langtíma- vandi heimsmálanna .... á nýja árinu og ( auknum mæli á hverju ári þessarar ald- ar. Mannkyn- ið stefnir að þv( að útrýma sjálfu sér eins og frændur okkar Grænlendingar útrýmdu sjálf- um sér með þvl að þrjózkast viö að stunda þar kvikfjárrækt. Kyoto-bókunin um skorður við útblæstri gróðurhúsaloftteg- unda hefur gert nokkuð gagn, þótt ýmis Evrópurlki séu 5% frá markmiðum s(num. Á þvl sviði leikur fsland lausum hala með hverju álverjnu á fætur öðru. Verra er þó ástandið (Banda- ríkjunum, sem eiga fjórðung af öllum skítnum og Bush segist ekki hafa ráð á mengunarvörn- um. Leiðari Jónas Kristjánsson Álitsgjafar spá aulcinni spennu í samskiptum Bandaríkjanna ogEvrópu. Evrópumenn eru fjandsamlegii Bandaríkjunum en nolckru sinnifyrr ogneita alvegaö lútaforustu þeirra. Evrópskir stjórnmálamenn, sem hafa verið hallir undir Bandaríkin, em hœttirað þora að talca til máls. Sambtíðin versnar stöðugt. GjáíAflantshafi Mér sýnist, að ekki hefði verið svo erfitt að fá heimildir, sagði Colin Powell, fyrrverandi utanríkisráð- herra, um ólögmætar hleranir stjómvalda á símtölum fólks til útlanda og frá þeim. Hon- um finnst í lagi að hlera leyfislaust, ef leyfið hefði liklega fengizt, hefði löglega verið unn- ið. Sjónarmið Powells sýnir í hnotskurn mun- inn á Bandaríkjunum og Evrópu. Honum finnst í lagi að brjóta lög, ef hann getur talið sér trú um, að leyfi hefði hvort sem er feng- izt. Margt fleira er skrítið í Bandaríkjunum. Þar leyfa menn til dæmis pyndingar með því að skfra þær nýjum nöfnum út í loftið. Bandaríkjamenn búa við ríkisstjóm, þar sem forsetinn telur sig ekki bundinn af nein- um reglum, til dæmis um þrískiptingu valds- ins. Hann lítur á sig sem forstjóra stórfyrir- tækis, sem er í senn dómari, löggjafi og framkvæmdastjóri. Hann lítur þar á ofan á sjálfan sig sem útsendara guðs á jörðinni. Að baki framkomu Bandaríkjanna gagn- vart útlöndum em meira eða minna geð- veikir menn. Til dæmis Ralph Peters, sem segir í sjónvarpinu að bezti árangur loftárása á borgina Falluja í frak sé, að „allir verði drepnir". Eða Thomas Bamett, sem segir bandaríska herinn í frak vera „afl hins góða“. Þessir ráðgjafar forsetans og ýmsir kristi- legir ofstækismenn beina reiði sinni að Evr- ópu, þar sem menn em að reyna að hemja stríðsstefnu Bandarfkjanna. Kringum Bush forseta em menn, sem þjást af vænisýki og stórmennsku, trúa heimspeki Thomas Hobbes og Leos Strauss og ættu að leita sér lækninga. Álitsgjafar spá aukinm spennu í samskipt- um Bandaríkjanna og Evrópu. Evrópumenn em fjandsamlegri Bandaríkjunum en nokkru sinni fyrr og neita al- veg að lúta fomstu þeirra. Evr- ópskir stjómmálamenn, sem hafa verið hallir undir Banda- rfkin, em hættir að þora að taka til máls. Sambúðin versn- ar stöðugt. Evrópumenn styðja diplómatískar leiðir, al- þjóðalög, Sameinuðu þjóðimar, fjölþjóðasamninga, en Banda- ríkjamenn telja sig verða að sjá um sig sjálfir sem þjóð, er geti farið sfrru fram að eigin vilja. Himinn og haf em milli bandarískra og evrópskra sjónarmiða í al- þjóðamálum. Ofan á allt þetta kem- ur svo ágreiningurinn um tilvist mannkyns á jörðinni, þar sem Evrópa eflir um- hverfismál, en Bandaríkin vilja fá frið til að spilla vist- kerfi jarðar. Thomas Hobbes Heim- spekingurinn taldi heiminn illan og mótar ráðgjafa forseta Bandarikjanna. Leo Strauss Heimspek- ingurinn trúði á mátt hins sterka og mótar ráðgjafa forseta Bandarikjanna. Colin Powell Lætur sér fátt um ólög finnast. Solla a Grænum kosti Islendingar kunna ekki að borða grænmeti. Ulfar á Þremur frökkum Kitlar bragðiaukana. Dorrit Moussaieff Viö boröum ofmikið . svínakjöt. . Gaui litli Islendingar eru offeitir. Jon Gnarr Gæti breytt vatni í vín. LAUNASKRIÐ Á ÍSLANDI er almennt. Það tengist ekki bara nýríkum for- stjómm stórfyrirtækja. Sjónvarps- maðurinn EgÚl Helgason er með svipað há laun og hæst launaði sjón- varpsmaður Danmerkur. í fljótu bragði hefði maður áætlað að á stærri markaði, sem Danmörk vissulega er, væru launin miklu hærri en hér á litla íslandi. Alþingi Þingmenn á Islandi eru með hærri laun en þingmenn í Noregi en samkvæmt Kjaradómi ættu þau að vera miklu hærri. 0G OFURLAUNIN ENDA ekki hjá Agli Helgasyni. Sjálfur Halldór Ásgríms- son forsætisráðherra er með hærri laun en Jens Stoltenberg. f Noregi þykir sanngjamt að borga forsætis- ráðherra 839 þúsund á mánuði. Hall- Fyrst og fremst dór er með 990 þúsund og til er Kjara- dómur á íslandi sem vill að hann sé með enn hærri laun. Þetta kemur fram í DV í dag. ÞINGMENN A ÍSLANDI eru svo með 35 þúsund krónum meira í laun á mán- uði en þingmenn í Noregi. Græðgin er alfs staðar allsráðandi á fslandi. í sjónvarpi og á Alþingi. En við vitum öll að í Noregi er dýrara að lifa en á ís- landi. Og skatturinn er hærri. EN ÞAÐ ER EKKI NÓG með það að þingmenn á íslandi séu betur launaðir en þingmenn í Noregi og að Halldór sé á hærri launum en Stoltenberg. Nei, heldur eru allir ís- lensku ráðherrarnir á betri launum en sjálfur forsætisráðherra eins rík- asta lands í Evrópu, Jens Stolten- berg. STJÓRNMÁLAMENNIRNIR HAFA brugðist þeim sem minnst mega sín í samfélaginu. Þeir þingmenn sem gagnrýna ofúrlaun forstjóranna hjá einkareknu fyrirtækjunum ættu fyrst að byrja að gagnrýna eigin laun. Þingmenn og ráðherrar eru að eyða peningum úr sameiginlegum sjóðum landsmanna. Það gera stjórnir stórfyrirtækjana ekki. mikaei@dv.is Þingmenn og ráðherr- ar eru að eyða pen- ingum úrsameigin- legum sjóðum lands- manna, Það gera stjórnir stórfyrirtækj- anna ekki. Egill Helgason Með svipuð laun og dýrasti sjónvarps- maðurDana. Halldór Ásgríms- son Með hærri laun en norski for- sætisráðherrann. Davíð ætti að gleðjast Saddur í matvælanefnd Saddam Hussein sagði heims- pressunni í gær að hann vildi láta aftökusveit taka sig af lífi verði hann dæmdur til dauða af íröksk- um dómstól. Hann vill ekki láta hengja sig fyrir fjöldamorðin í Dujail. Davíð Oddssort var eini ieiðtog- inn á Vesturlöndum sem vildi á sín- um tíma láta drepa Saddam Hussein oftar en einu sinni. Flestir vildu ekki láta drepa hann enda dauðarefsing ekki iðkuð ínema ör- fáum rfkjum á Vesturlöndum. Dav- íð ætti að gleðjast yfír útspili Sadd- NFS sagði frá því í gær að Ás- mundur Stefánsson ríkissáttasemj- ari yrði formaður matvælanefndar- innar sem Halldór Ásgrímsson lof- aði í nýársávarpi sínu. Nefndin á að skoða af hverju matarverð er svo hátt sem raun ber vitni á íslandi. Ásmundur er matgæðingur mikili og þekktastur fyrir að vera á Atkins-kúrnum og missa á honum fleiri, fíeiri kíló. Dr. Robert Atkins, höfundur kúrsins, dó þegar hann datt á svelli. Ásmundur er enn tals- maður megrunarkúrsins og hefur fulla trú á honum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.