Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2006, Qupperneq 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 2006
Fréttir DV
Flugelda-
skemmdir
Ein eignaspjöll voru til-
kynnt til Lögreglunnar í
Vestmannaeyjum í síðustu
viku en um var að ræða
skemmdir eftir flugelda.
Skemmdir voru á húsa-
klæðningu en talið er að
flugeldum hafl verið skotið
í klæðninguna af stuttu
færi. Klæðningin er þakin
brunagötum þar sem hún
er úr plasti og höfðu ein-
hverjar eldglæringar læst
sig í klæðningunni. Lög-
reglan telur að skemmdim-
ar hafi verið unnar á hús-
inu á gamlárskvöld.
Fíkniefnamál-
um fækkar
Fíkniefnamálum í um-
dæmi Lögreglunnar á ísa-
firði fækkaði nokkuð mikið
milli áranna 2004 og 2005
að þvl er fram kemur á
fréttavef bb.is. Árið 2004
var lagt hald á 174,42
grömm af ætluðum fíkni-
efnum í 43 haldlagningum.
Sama ár voru tekin 89,5
stykki af óþekktum og
ógreindum efnum. f fyrra
var lagt hald á 49,39 grömm
af ætluðum fíkniefnum í 16
haldlagningum og 3 stykki
af óþekktum og ógreindum
efnum.
90kærurá
fjórum dögum
Um níutíu kæruskýrslur
voru gerðar í síðustu viku
eftir að um níu hundruð
farþegar komu hingað til
lands í gegn um Egilsstaða-
flugvöll með fimm flugvél-
um frá fimmtudegi og fram
á sunnudag. Vélarnar komu
til Egilsstaða frá Póllandi,
Ítalíu og Kaupmannahöfn.
Langflestir farþeganna
komu frá Póllandi og vinna
á Kárahnjúkum og á Reyð-
arfirði. Að sögn lögreglunn-
ar var mikið um tilraunir til
að taka með sér matvæli,
vín og tóbak til landsins
umfram heimildir. Tvö
fíkniefnamál komu upp en
um lítilsháttar magn var að
ræða.
Tveir ísfirðingar hafa kært barnaskólakennarann fyrrverandi Gísla Hjartarson fyr-
ir kynferðislegt ofbeldi, sem þeir segja að hann hafi beitt þá á heimili sínu þegar
þeir voru unglingar. Gísli var á þeim tíma drengjunum til aðstoðar með heimanám
þeirra. Eftir að kærurnar voru lagðar fram réðst lögregla til atlögu á heimili Gísla
rétt fyrir áramót og hafði á brott með sér heimilistölvu hans. Gísli segir málið á
misskilningi byggt.
Heimakennari kæreur
íyrir að nauðna pillum
ísfirðingurinn og ritstjórinn fyrrverandi Gísli Hjartarson er til
rannsóknar hjá Lögreglunni á Isafirði eftir að tvær kærur þess
efnis að hann hafi beitt unglingsdrengi kynferðislegu ofbeldi
voru lagðar fram seint á síðasta ári. Lögregla gerði húsleit á
heimili Gísli skömmu fyrir áramót og hafði á brott með sér
einkatölvu hans.
Lögreglan á ísafirði vildi hvorki
játa né neita því að mál Gísla Hjart-
arsonar væri til rannsóknar. Sjálfur
staðfesti Gísli hins vegar við DV í
gær að lögregla hefði gert húsleit hjá
honum á heimili hans við Fjarðar-
stræti á ísafirði, rétt fyrir áramót.
„Þeir tóku tölvuna mína og skil-
uðu henni svo aftur skömmu síðar,"
sagði Gísli um húsleit lögreglu í
samtali við DV í gær.
Drengirnir á aldrinum 12 til
15 ára
Samkvæmt heimildum DV snú-
ast kærurnar sem lagðar hafa verið
fram um meint kynferðislegt ofbeldi
sem Gísli beitti tvo unglingsdrengi
þegar þeir voru á aldrinum tólf til
fimmtán ára. Annar þeirra er nítján
ára í dag. Drengirnir eiga það sam-
eiginlegt að hafa þegið hjá Gísla
stuðningstíma vegna heimalær-
dóms í Grunnskóla Isafjarðar. Munu
hinir hryllilegu atburðir hafa átt sér
stað á heimili Gísla við það tækifæri.
Sjálfur var Gísli um tíma kennari við
Grunnskólann í ísafirði en er hættur
störfum - hóf þess í stað að aðstoða
unga drengi við heimalærdóminn á
heimili sínu.
Fleiri íhuga að stíga fram
Kærurnar sem um ræðir eru
tvær, en fleiri drengir sem telja sig
hafa orðið fyrir ofbeldi af hálfu Gísla
íhuga nú að stíga fram. Sá elsti í
þeim hópi er þrjátíu og tveggja ára
og hefur sömu sögu að segja og þeir
sem þegar hafa kært - að Gísli hafi
nauðgað sér á heimili hans þegar
hann sótti stuðningstíma hjá hon-
um.
Gísli stafesti í gær við DV að hann
hafl síðastliðin ár aðstoðað fjölmörg
„vinabörn“ sín við heimalærdóm,
eins og hann komst sjálfur að orði
en staðhæfði að ekkert athugavert
hefði átt sér stað við þau tilefni.
Hann segir kærur drengjanna til lög-
reglu vera byggðar á misskilningi.
Einn heimildarmanna DV á ísa-
firði segir lýsingar drengjanna á of-
beldi Gísla gagnvart þeim grófar og
ljótar.
Rannsóknin komin á fullt
skrið
Gísli Hjartarson er þekktur á ísa-
firði vegna ýmissa ritstarfa, meðal
annars fyrir ritröð sína um vest-
firskar þjóðsögur. Hann var einnig
ritstjóri landsmálablaðs jafnaðar-
manna á ísafirði, Skutuls, og hefur
starfað sem leiðsögumaður undan-
farin ár.
Bömin í bænum þekkja Gísla
Hjartarson hins vegar frekar af því
að hann er einhentur. Aðra höndina
missti Gísli í slysi til sjós fyrir all-
mörgum ámm. Sögusagnir af
kynferðislegu ofbeldi hans gegn
unglingspiltum hafa gengið á ísa-
firði lengi án þess að nokkuð hafi
verið að gert. Aðgerðir lögreglu í
máli hans hafa nú orðið til þess að
loksins er kominn skriður á málið.
Lögregla hefur þegar tekið
skýrslu af drengjunum tveimur sem
kærðu Gísla, auk Gísla sjálfs, en
rannsóknin á ofbeldisverkum hans
er að sögn heimildarmanna DV
komin á fullt skrið.
andri@dv.is
iir
„Þeir tóku tölv-
una mína og
skiluðu henni
svo aftur
skömmu síðar."
ísafjörður Fleiri
drengir i bænum íhuga
að stiga fram eftir að
lögreglan hófað rann-
saka mál Gísla.
Gísli Hjartarson
Lögreglan á Isafírði
réðstinn áheimi/i
ritstjórans rétt fyrir
áramót og hafði
tölvu hans á brott.
Flugfélög sett á svartan lista yfirvalda
Slök flugfélög vari sig
Samgönguráðuneytið hefur
ákveðið að vera með Norðurlönd-
unum í að setja upp svartan lista
yfir þau flugfélög sem hafa brotið
flugöryggisreglur og verið neitað
um flug í gegnum lofthelgi land-
anna.
Evrópusambandið ákvað í síð-
asta mánuði að sameinast um
svartan lista samkvæmt upplýsing-
um flugmálastjórna aðildarland-
anna og eru aðgerðir Norðurland-
anna liður í þeirri aðgerð. Listinn á
Hvað liggur á?
að vera aðgengilegur flugfarþegum
á heimasíðum ráðuneytanna.
Þrátt fyrir að flugsamgöngur séu
öruggasti ferðamáti sem um getur
hafa brot á öryggisreglum í flugi
verið nokkuð algeng. öryggissvið
flugmálastjórna hafa með höndum
eftirlit með flugvélum þeim sem
um lofthelgi þeirra fara. Með sam-
einuðum kröftum þeirra er víst að
eftirlit verður aukið með flugfélög-
um, sérstaklega þeim sem gerst
hafa brotleg við flugreglur og ör-
yggisstaðla.
Talið er að aðgerðir landanna
muni veita enn meira aðhald flug-
félögum sem munu áreiðanlega
gera sitt besta til að forðast svarta
listann.
300 þúsund í
Keflavík
íbúi númer 300 þúsund er
Keflvíkingur. Drengurinn fæddist
í gærmorgun á Landspítalanum
og eru foreldrar hans þau Erla
María Andrésdóttir og Haraldur
Arnarson en þau búa í Reykjanes-
bæ. Hagstofa íslands fylgdist með
fjölgun íslendinga á vef sínum
með svokallaðari „mannfjölda-
klukku“ og sló hún 300 þúsund
um klukkan sjö í gærmorgun.
Meðfylgjandi mynd er ekki af
barninu.
„Ég erað vinna þessa dagana að stóru útiverki fyrir Sólheima í Grímsnesi og svo eru sýn-
ingar á næsta leiti bæöihér á landiog iHollandi,"segir myndlistarmaðurinn Rúrí.„Ann-
ars held ég að það sem liggi á í tilveru manna sé að finna sinn tilgang I lífinu og ná að
lifa samkvæmt honum. Ég vona að minnsta kosti að mér hafí tekist það. Margir vita það
þó ekki fyrr en styttist I hinn endann. Virðing fyrir sjálfum sér, fólki í kringum mannog
náttúrunni er ímínum huga alltafhluti aftilgangi lífsins eða jafnvel undirstaðaþess."