Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2006, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2006, Blaðsíða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 2006 Menning DV * « Hver skyldi eiga höfuðsök á því að fræðum er almennt gert lítið undir höfði (Ijósvakamiðlum eða dag- blöðum? Er það ekki fræðimanna fyrst og fremst að standa fyrir slíkri umræðu? Ef næringarskortur er svona mikill í opinberri fræðaum- ræðu er þá ekki Flugur kominn tími til að fræðimennirnir stígi fram og notfæra sér hinn opna vettvang miðlanna? Það eru hæg- ust heimatökin fyrir Reykjavíkur- akademíuna að hafa uppi sjálfs- gagnrýni heldur en að nöldra yfir lélegri frammistöðu fjölmiðla (og hrósa Mogganum). hauslausar dúfur eru stikur í ferða- lagi um heim karlmennskunnar. Höfundur í heimsókn Það eru nokkrir félagar sem koma verki eftir ungan velskan rit- höfund á svið á föstudagskvöld: Gary Owen kemur í heimsókn hingað upp og h'tur á verk sitt í íslenskri ver- sjón á Nýja sviði Borgarleikhússins. Steypibaðsfélagið Stútur stendur fyrir sýningunni en það var stofnað af bekkjarbræðrum úr leiklistarskóla haustið 1994. Stofnfundurinn var haldinn bakvið sturtuhengi. Nýr sjálfstæður flokkur Og nú mörgum árum síðar skjóta þeir saman í leiksýningu. Leikstjóri er Agnar Jón Egilsson og nýtur að- stoðar Þórdísar Elvu Þorvaldsdóttur Bachmann, en leikarar eru Ólafur Darri Ólafsson, Friðrik Friðriksson og Guðmundur Ingi Þorvaldsson. Tónlist annast Hallur Ingólfsson, þýðingu unnu þau Guðmundur Ingi Þorvaldsson, Friðrik Friðriksson og Álfrún Helga ömólfsdóttir og sviðs- myndina á Þórarinn Blöndal. Sýn- ingin ér sett á svið með styrk frá Leik- listarráði í samstarfí við Vesturport og Borgarleikhúsið. Friðrik Friðriksson Diskóprins tekursporin. Þrítal ungra manna Leiksýningin er sett saman af þremur eintölum, en persónur leiksins rekja sögu sína en þessar þrjár mannlýsingar tengjast sam- an í eina heild sem áhorfandinn einn ræður í og skellir saman í hugarfylgsnum sínum. Leikendur eru allir komnir af sínu léttasta skeiði - yfir þrítugt - og hafa um langt skeið verið starfandi í ýms- um leikhúsum og leikflokkum landsins. Nú er bara að sjá hvort eindrægnin úr gömlum sturtum dugar til að blása lífi í Glæpi gegn diskóinu. Sýningin verður á fjöl- um Nýja sviðsins fram eftir vetri meðan aðsókn leyfir. Heimildamynd Solveigar Anspach um málverkaföl5unarmálið hlýtur að auka enn á kröfur um að komist verði til botns í því málahaldi öllu. Athyglisvert var að sjá Ragnar Aðal- steinsson lögmann hrósa sigri fyrir sína menn. I eina tíð var hann helsti málsvari höfundarréttar (landinu og sjálfkjörinn vörslumaður hags- muna höfunda. í manna minnum hefur hann í seinni tið snúið sér að öðrum hagsmunum. Er hann enn lögmaður Rithöfundasambands- ins? Þorðu þeir að hætta viðskipt- um við hann eftir (klóm Drekans? Það er óþolandi fyrir opinberan markað á myndlist í landinu að ekki skuli vera mögulegt að koma höndum yfir menn sem leggja fyrir sig skipulegar falsanir á verkum eft- ir látna listamenn og ríkur áfellis- dómuryfir rannsóknaraðilum að málum skuli vísað frá vegna slæ- legra vinnubragða. Það er laugardagskvöld, og þrír strákar reyna að skera á festar bernsku og unglingsára. Tækin og tólin eru ýmis í frelsisþránni: dóp, stelpur og dúndrandi diskó. Hræ af dauðum ketti, diskókvöld sem aldrei átti sér stað, brjóstin á starfs- manni tryggingastofnunar og nundur Ingi Á eintali um brostn- lir og nýtt llf. Umsjón: Páll Baldvin Baidvinsson pbbs&dv.is Tibrar-tonleikar i haust og vetur Þau í Kópavoginum eru tekin til við að plana tón- leikahaid Salarins fyrir starfsárið sem hefst næsta haust. Það er Tómstunda- og menningar- svið Kópavogs sem mun að venju standa að tón- leikaröðinni Tíbrá og býður tóníistarfólki að sækja um þátttöku. Tónlistarmenn hafa verið mjög áhugasamir um þetta fyrirkomulag og hafa tugir umsókna borist árlega. Óskað er eftir umsóknum um tónleikahald i Tíbrá og skulu þær hafa borist til Tómstunda- og menningarsviðs Kópavogs fyrir 10. janúar 2006, ásamt ferilskrám flytjenda, kjör- tíma fyrir viðkomandi tónleika og efnisskrá. Vaiið er úr umsóknum og öllum svarað að vali loknu. Það er Audi sem er meginkostandi Sal- arins. Fyrir utan Kópavogsbúa. Tatu Kantoma harmonikkuleikari spilaði í Safnum i fyrra Salurinn í Kópavogi er orðinn ein helsta miðstöð tónlistarlífs á höfuðborgarsvæðinu og Tíbrár-röðin eri miklu áliti. Þaö verða þrjár frumsýningar um næstu helgi, tvær í Borgarleikhúsi og ein í Hafnarfjarðarleikhúsinu Viðar Hreinsson framkvæmdastjóri Segir fjölmiðla á Islandi ekki sinna vitsmuna- legri umræðu um fræði. Undanfarnar vikur hefur mæðu- kvein mikið verið í ýmsum fjölmiðl- um um bókaflóðið. Félag íslenskra fræða fundarannað kvöld um flóð- ið með Úlfhildi Dagsdóttur (for- svari. [ gær bárust tilkynningar um þrjár nýjar bækur.Viðar Hreinsson, framkvæmdastjóri Reykjavíkuraka- demíunnar, lofsöng Morgunblaðið og einkum Lesbók um helgina fyrir að vera eina fjölmiðillinn með al- mennilega umijöllun um fræði. Einkennilegt að sjá menntamenn landsins hópast um Morgunblaðið og ausa lofi á penna þess. Hafandi lesið Morgunblaðið reglulega um áratugaskeið er seint hægt að hrósa því málgagni fyrir einskært frjálslyndið.Samt hrúgast að því róttækir listamenn og gagnrýnir vísindamenn og eiga ekkert skjól hlýrra, finnst þeim. mynd Hati

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.