Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2006, Síða 21
rrv sport
ÞRIÐJUDAGUR 10.JANÚAR2006 21
Bikarinn eftirsótti Heimsmeistarabik-
arinn sem var fyrst afhentur iÞýskalandi
árið 1974. Brasilía vann fyrsta bikarinn
til eignari keppninni á undan.
HM-styttan á
ferð og flugi
Verðlaunagrip-
urinn sem heims-
meistararnir í
knattspyrnu fá að
sigurlaunum
verður á ferð og
flugi fram að upp-
hafi mótsins í
Þýskalandi. Þá
gefst almenningi
víða um heim tækifæri til að berja
gripinn augum sem er hinn heilagi
kaleikur í augum fjöida knattspyrnu-
manna. Ferðalagið er þegar hafið en
gripurinn er til sýnis í Gana þessa
dagana. Ferðalagið endar á Italfu en
alls heimsækir gripurinn 31 borg 128
löndum.
í dag hefst umijöllun DV Sports um heimsmeistaramótið í knattspyrnu sem fer fram
í Þýskalandi í sumar og hefst þann níunda júní. 150 dagar eru til stefnu og fram að
því verður í hverju blaði umfjöllun um keppnina.
HM1930 í Úrúgvæ
ÞÁTTTÖKUÞJÓÐIR: 13 (13 í úrslitum).
HEIMSMEISTARAR: Úrúgvæ (1. titill).
ÚRSLrTALEIKUR: Úrúgvæ - Argentína
4-2.
FYRIRLIÐIHEIMSMEISTARANNA: José
Nasazzi.
ÞJÁLFARI HEIMSMEISTARANNA: Al-
berto F. Suppici.
LEIKIR: 18.
MÖRK: 70 (3,891 leik).
MARKAHÆSTA LIÐ: Argentína 18 (3,6
íleik).
ÁHORFENDAFJÖLDI: 434.500 (24.139
á leik).
MARKAKÓNGUR: Guillermo Stábile,
Argentínu, 8 mörk.
Tógótapaði
fyrir Gíneu
Vissir þú að?
Það kom upp mikið deilumál fyrir úr-
slitaleikinn á milli Argentínumanna
og Úrúgvæa. Báðir aðilar vildu nefni-
lega að þeirra bolti yrði notaður í úr-
slitaleiknum. Að lokum sættust
menn á að nota argentínska boltann
í fyrri hálfleik og þann úrúgvæska í
þeim seinni. Argentína vann fýrri
hálfleikinn 2-1 með sínum bolta en
Úrúgvæ vann hins vegar seinni hálf-
leikinn 3-0 með sínum bolta og þar
með leikinn 4-2.
Það er aðeins einn maður lifandi
sem tók þátt í úrslitaleiknum 1930.
Sá heitir Francisco
„Pancho" Varallo og lék
sem framherji í argent-
ínska landsliðinu en
varð reyndar að yfirgefa
úrslitaleikinn vegna
meiðsla. Varallo var tvítug-
ur þegar hann tók þátt í úr-
slitaleiknum en allir hinir
leikmennirnir, 21 aðtölu,
hafa látist einn af öðr-
umenVarallo verður
96 ára 5. febrúar.
Um helgina tapaði
landsliðTógófyrir
Gíneu, 0-1, íleik
sem fór fram í Frakk-
landi. Leikurinn var
æfingaleikurfyrir
Afrlkumót landsliða
sem hefst síðar í
mánuðinum. Eina
mark leiksins skoraði Ousmane Ban-
goura í síðari hálfleik en markið kom
úr vítaspyrnu. Franski landsliðsþjálf-
a|lnn Raymond Domenech horfði á
en Frakkar eru með liði Tógó í riðla-
keppninni í HM I Þýskalandi í sumar.
Niðurtalning DV hafin
Þann níunda júní næstkomandi hefst úrslitakeppni heimsmeist-
aramótsins í knattspymu í Þýskalandi. Fyrir knattspyrnuunn-
endur er HM í knattspyrnu hápunktur tilverunnar og í ár stefnir
keppnin í að vera einhver sú skemmtilegasta frá upphafi. Við á
DV Sport ætlum að gera keppninni góð skil og byrjum strax í
dag, þegar 150 dagar eru í að keppnin hefjist.
Strax þegar ljóst varð að úrslita-
keppnin yrði haldin í Þýskalandi
árið 2006 gerðu menn sér grein fyrir
því að umfang hennar yrði mikið og
glæsilegt. Þýskaland á einhverja
glæsilegustu knattspymusögu
heimsins að baki og er eitt þeirra
landa sem eru í
forystu
heimin-
um
hvað
varðar
mál
sem
snerta tækni og tæknivinnslu. Þá
þarf ekki að orðlengja um skipulags-
hæfileika Þjóðverja en það hefur oft
loðað við þær þjóðir sem standa að
stórviðburðum í íþróttaheiminum,
að þær séu að falla á tíma í undir-
búningnum. Slíkt er ekki tilfelhð i
Þýskalandi.
Gríðarleg sýning í vænd-
um
Eyjólfur Sverrisson lands-
liðsþjálfari þekkir vitanlega vel
til Þýskalands enda lék hann
árum saman í þýsku úrvals-
deildinni, bæði með Stuttgart
og Herthu Berlín. Hann hlakk-
ar til keppninnar. „Þetta verður
virkilega spennandi keppni og á
örugglega eftir að verða gríðar-
lega skemmtileg," sagði Eyjólfur í
samtali við DV Sport. „Eg efast
ekki um að Þjóðvetjamir eigi eftir
að setja upp gríðarlega sýningu.
Þeir em búnir að byggja upp alla
velli þannig að þeir em eins Qottir
og nýtískulegir og það gerist best í
heiminum í dag."
Eyjólfur heldur
sambandi við marga vini og kunn-
ingja í Þýskalandi og fær því að
mörgu leyti stemmninguna beint í
æð. „Það ríkir mikil tilhlökkun hjá
Þjóðverjum og þeim finnst þetta
hrikalega spennandi. Þýska úrvals-
deildin er mjög vinsæl og ein af
stærstu deildunum í heiminum. Það
hefur verið mikil ásókn á heimaleiki
félaga í vetur og það er ljóst að það
verður erfitt að fá miða á alla þessa
leiki þó svo að þeir séu búnir að
stækka vellina."
Ólympíuleikvangurinn
glæsilegur
En þó svo að íslenska knatt-
spymulandsliðið þurfi að sitja heima
eins og aðrir áhorfendur að þessu
sinni ætlar Eyjólfur að fara til Þýska-
lands og kíkja á nokkra leiki, eins og
hann segir sjálfur. Hann er öllum
hnútum kunnugur á knattspyrnu-
völlum Þýskalands og ekki síst á
Ólympíuleikvanginum í Berlín, þar
sem Hertha lék sína heimaleiki. Þar
verður sjálfur úrslitaleikurinn háður.
„Það finnst mér auðvitað meiriháttar
skemmtilegt. Eftír endurbætumar er
leikvangurinn orðinn enn glæsilegra
mannvirki en hann var. Staðsetning-
in er einnig glæsileg og þetta er mik-
il bygging, í stuttu máli sagt.
En það gildir einu hvar keppnin
er háð, alltaf er hún jafn skemmtileg
og það er á sjálfum knattspymuvell-
inum sem aðalskemmtunin er. „Það
er alltaf gaman að fylgjast með nýj-
um stjömum sem ná að blómstra
einmitt á þessum tíma sem enginn
átti von á. Það er líka alltaf eitthvert
lið sem kemur á óvart og verður að
eftirlætisliði áhorfenda. Það er
ákveðinn sjarmör sem fylgir HM í
fótbolta."
eirikurst@dv.is
Fyrsta heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu fór fram í Úrúgvæ í Suður-Ameríku
13.-30. júlí 1930
Úrúgvæar fyrstu heimsmeistararnir í
knattspyrnu
Orúgvæar urðu fyrstu heimsmeistaramir í knatt-
spymu eftír 4-2 sigur á Argentínu í úrslitaleik en
mótið fór fram á heimavelli Urúgvæ í höfuðborginni
Montevideo. Úrúgævar fengu að halda fyrstu
keppnina þar sem liðið hafði orðið Ólympíumeist
ari bæði 1924 og 1928 og þjóðin hélt einnig upp á
100 ára sjálfstæði sitt. Upphafsmaður HM var
Frakkinn Jules Rimet, formaður FIFA 1920-1954,
en hann hafði unnið að henni í átta ár en fyrsta
HM fór fram 24 árum eftír að FIFA var stofnað.
Þetta er eina úrslitakeppni HM þar sem var
engin undankeppni en þrátt fýrir það tóku aðeins
13 þjóðir þátt. Það var langt og dýrt að ferðast frá
Evrópu og það vom aðeins Belgar, Frakkar, Rúm-
enar og Júgóslavar sem lögðu í þessa þriggja vikna
sjóferð. Hins vegar vom sjö Suður-Ameríkuþjóðir
með og tvær þeirra, nágrannamir Úrúgvæ og
Argentína, spOuðu fyrsta úrslitaleikinn. Báðar höfðu
unnið 6-1 stórsigur í undanúrslitunum, Úrúgvæ á
Júgóslavíu og Argentína á Bandaríkjunum.
Úrúgvæ komst í 1-0 með marki Pablos Dorado
eftir aðeins 10 mínútur en Peucelle og Guillermo
Stabile komu Argentínu í 1-2 fyrir leikhlé. Þetta var
áttunda mark Stabile í keppninni og hann varð
markakóngur þrátt fyrir að hafa ekki komist í liðið í
fyrsta leik Argentínu í keppninni og aðeins fengið
tækifærið vegna forfalla fyrirliðans Ferreira. í seinni
Fyrstu meistararn-
ir Hér sést lið Úrúg-
vse sem varð heims-
meistari 1930.
hálfleik skomðu þeir Pedro
Cea, Santos Iriarte og Manco
Castro þrjú mörk og tryggðu heimamönnum
4-2 sigur en Úrúgvæ fékk að leika mjög fast í úrslita-
leiknum og frammistaða belgíska dómarans Jans
Langenus var harðlega gagnrýnd.
DV-mynd: NordicPhoto/Getty