Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2006, Page 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 2006
DV Fréttir
^rúm fyrir
Þeir eru ófáir hundarnir
sem helst af öllu vilja
sofa uppi í og margir
komast upp með það
þegar þeir eru hvolpar
að fá að kúra hjá eig-
andanum alla nóttina.
Það er svo sem alit í
fína með það ef þeir stækka ekki því meira. Góð lausn á því
er að fá almennilegt rúm fyrir hvutta því eðalhundar eru nátt-
úrulega ekkert hrifnir af því að láta kasta sér niður á gólf.
Þetta glæsilega rúm fundum við inni á gearfordogs.com og
ætti ekki að setja neinn hundaeiganda á hausinn að panta
eitt slfkt fyrir besta vininn en það kostar 145 dollara, auk
kostnaðar við flutning og tolla.
Bergljót Daviðsdóttir
skrífar um dýrín
sin og annarra á
þriðjudögum í DV.
"r**ví*
www.sifjar.is
Dýrin sem standa að baki þessarar síðu hafa eignast heimasíðu,
www.sifjar.is en þar er að finna upplýsingar um hundana Birtu,
Gná, Emblu og Grímu Nótt. Á síðunni er einnig safnað helsta efni
sem hér birtist en það er sett inn sólahring eftir að það birtist hér.
NUTRO - 30% AFSLATTUR
Þurrfóður fyrir hunda og ketti í hæsta gæðaflokki.
Fu!l búð af nýjum vörum. 30% afsl.af öliu.
Opið mán. til fös 10 - 18, Laugard. 10 - 16, sunnud. 12-16
TOKYO HJALLAHRAUNl 4
HAFNARFIRÐl SIMl 565 8444
Hildur Guðbrandsdóttir var meira en lítiö lánsöm að Kústur, tíu mánaða smá-
hundur hennar, skyldi finnast á lífi í hnipri undir tré við Rauðavatn. Tveimur dög-
um áður hafði hann ærst af hræðslu og hlaupið út í buskann, þegar nágranni fór
að skjóta og sprengja þótt tveir dagar væru í áramót.
Smahundur »r
úr hræfislu og
hvorl út í busk
Hildur með Kúst eftir
hrakfarirnar Kústur var
svangur og kaldur eftir
að hafa veríð týndur i
tvær nætur í kulda og
hraglanda ískóginum
við Rauðavatn.
Kettling vantar
heimili
Þessi svarti og hvíti kettling-
ur er aðeins tveggja mánaða
læða, en hann fannst einn á
ráfi fyrir helgi. Hann er einn
þeirra fjölmörgu kettlinga sem
enda í Kattholti og er fajur á
gott heimili. Þeir sem telja sig
geta veitt kisum gott heimili er
bent á að snúa sér þangað.
fslenski hund-
urinn á sýningu
Deild íslenska fjárhundsins
stendur fyrir hundasýningu
þann 14. janúar næstkomandi
og verður hún haldin í ölfus-
höllinni sem staðsett er á milli
Hveragerðis og Selfoss. Dómari
verður Eivind Mjærum frá Nor-
egi og hefst sýningin klukkan
11 fyrir hádegi. Deildin stendur
fyrir sýningarþjáifun við Frum-
heija, Hestháisi 6-8, í kvöld frá
18.30, en fyrst eru hvolpar, þá
tíkur og að síðustu rakkar en
eigendur þeirra skulu mæta
klukkan 20.
„Það var opið út og ég hafði eng-
ar áhyggjur en þegar einhver fór að
sprengja í næsta húsi fór ég að at-
huga með hann en fann hvergi.
Hann hefur orðið yfir sig hræddur
við lætin en við leituðum í fleiri
klukkutíma, spurðumst fyrir og aug-
lýstum eftir honum en án árangurs,"
segir Hildur og tekur fram að það
þurfi ekki að lýsa því hugarangri og
sorg sem það olli fjölskyldunni að
finna hann ekki.
Hildur var stödd í heimsókn uppi
í Selás hjá syni sínum með Kúst,
tveimur dögum fyrir gamlársdag, en
sjálf býr hún á Vífilsgötunni. Hún
gerði sér ekki ljóst hve Kústur óttað-
ist sprengingarnar enda tveir dagar í
gamlársdag. „Skyndilega var byrjað
að sprengja í götunni með þessum
svakalega hávaða, nokkuð sem við
áttum ekki von á tveimur dögum
fyrir gamlársdag. Við þutum öll út og
fórum að leita en enginn hafði séð
hann og það var eins og jörðin hefði
gleypt hundinn," útskýrir Hildur en
Kústur er mjög lítill, brúnn
Yorkshire Terrier.
Flokkur manna þræddi Selás-
inn og nágrenni
Daginn eftir hélt Hildur leitinni
áfram og til liðs við hana gengu vin-
ir hennar og aðrir hundaeigendur.
Það var auglýst á netinu eftir hon-
um, Hildur talaði við lögregluna,
hundaeftirlitsmanninn, hundaskól-
ann í Víðidal og spítalann og lét alla
vita. „Ég var orðin úrkula vonar en
við vorum búin að þræða allt hverf-
ið og skóginn í kringum Rauðavatn,
hrópandi og kaliandi án þess að
verða hans vör. Líðanin var skelflleg
að vita ekkert hver afdrif hans hefðu
orðið og geta ekkert gert."
Lá hríðskjálfandi undir tré
Á meðan Hildur þjáðist af
áhyggjum fór maður með tvo veiði-
hunda í gönguferð upp fýrir Rauða-
vatn. Hundamir vom frjálsir og ann-
ar þeirra fór að hnusa undir tré og
stoppaði við eitthvað sem húsbóndi
hans sá ástæðu til að kanna nánar.
Þar lá þá litli ræfillinn, hreyfingar-
iaus og hríðskjálfandi, lengst undir
trénu. Hildur segir að maðurinn hafi
hringt strax í lögregluna en hún
kannaðist ekki við neitt. „Boðskiptin
á milli vakta em eitthvað í ólagi hjá
þeim því ég var búin að tala við þá
oftar en einu sinni. Það var mér til
happs að maðurinn hafði sambandi
við hundaleikskólann Hundaborg
og þeir gátu gefið honum upp nafn-
ið mitt og símanúmer. Þvílflc gleði
þegar ég fékk hringingu um að Kúst-
ur minn væri fundinn rétt fyrir sex á
gamlárskvöld," segir Hildur sem
fagnaði litla krflinu sínu og hlúði að
honum en hún segir alveg með ólík-
indum að hann skuli ekki hafa
króknað úr kulda en á honum em
aðeins yfirhár en ekki undirhár sem
halda hita á hundum í kulda. „Mér
finnst hann algjör hetja að komast
klakklaust frá þessu en vanalega
klæði ég hann í föt áður en við för-
um út að ganga."
Bæði sonurinn og Kústur í
hættu
Hildur segist vera alveg eftir sig
eftir þessi ósköp en hún var einmitt
stödd heima hjá syni sínum að fagna
því að hann skyldi hafa fundist á lífi
uppi á fjöllum eftir að hafa lent í
„Mér fínmt hann al-
gjör hetja að komast
klakktamt frá þessu
en vanaiega klæði ég
hann í föt áðttr en við
förum útað ganga."
vélsleðaslysi „Mér var eiginlega allri
lokið eftir að hafa beðið á milli von-
ar og ótta eftir fréttum af syni mín-
um og þegar ljóst var að hann væri
heill og á lífi, tók leitin að Kústi við
en það getur enginn ímyndað sér
hvernig það er að vita ekki hver af-
drif þeirra sem manni þykir vænt
um verða. Og enginn skal gera lítið
úr því að maður hafi áhyggjur af dýr-
unum sínum, svo undurvænt þykir
manni um þau," segir hún og hefur
hún merkt Kúst í bak og fyrir og gert
eigin garð algjörlega hundheldan til
að eiga ekki á hættu að tapa honum
aftur.
bergljot@dv.is
Reginmunur á íshundum og HRFÍ
í Fréttablaðinu var frétt í gær
um að ekki væri hægt að tryggja
hunda sem skráðir eru í hunda-
ræktarfélagið íshunda fyrir jafti
háa upphæð og hunda sem skráðir
eru í HRFÍ. Af fféttinni mátti ráða
að um einskæran fasisma væri að
ræða og ofsóknir á hendur íshund-
um og hundabúinu í Dalsmynni.
Ekki var gerð nein tilraun til þess í
fréttinni að skýra út fyrir lesendum
hver hinn raunverulegi munur
væri á hundum sem tilheyrðu
þessum tveimur félögum og af
fréttinni mátti ráða að það væri val
eigenda hundanna hvort félagið
þeir kysu.
En þeir sem þekkja til vita að
svo einfalt er það ekki. Hundarækt-
arfélagið fshundar er stofnað í
Skoðun Beggu
kringum hundaframleiðsluna í
Dalsmynni. Eigandi búsins var ekki
tilbúinn að fara að reglum HRFÍ og
því sagði hann sig úr félaginu. ís-
hundar eru í raun ekki annað er
einkafélagsskapur eiganda Dals-
mynnis og dætra hennar sem þar
hafa tögl og haldir. Fjölskyldan
hagræðir hlutunum eins og best
þykir hveiju sinni sér í hag. Oftar
en ekki hefur það sýnt sig að þeim
ættbókum sem félagið gefur út er
ekki hægt að treysta enda hafa ver-
ið gerðar DNA-prófanir sem stað-
festa að svo er.
Hundar sem fæddir em í
hundaframleiðslunni í Dalsmynni
eru auk þess miklu lfldegri til að lifa
skemur enda er heilbrigði þeirra
aukaatriði en það sem skiptir máli
er að framleiða sem flest dýr til
sölu. Það er því reginmunur á
hundum sem þar er framleiddir og
hundum sem ræktaðir eru hjá
ábyrgum ræktendum innan vé-
banda HRFÍ. Það er mergurinn
málsins en ekki að HRFÍ sé einhver
klikufélagsskapur sem menn hafi
klofið sig úr.
Fjarri lagi og
því er í hæsta
máta eðlilegt
að aðrar reglur
gildi um hunda
frá Dalsmynni
sem alist hafa
upp við allt
aðrar aðstæð-
ur, innilokaðir
í þröngum
búum allan
sinn aldur. Það hlýtur að vera fá-
kunnátta starfsmanna hjá TM og
Sjóvá Almennum sem ræður því að
greinarmunur er ekki gerður á
uppruna hunda þegar iðgjöld eru
ákveðin. VÍS hefur einfaldlega á að
skipa starfsfólki með meiri þekk-
ingu.
DV-mynd Stefán