Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2006, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2006, Síða 28
r»c* qmimm r\r a» w n\Or\ 28 ÞRIÐJUDAGUR 10.JANÚAR2006 Lífið m** eno rtMí •j'a Rapplag ársins valið Síðastliðinn föstudag var sér- stök útgáfa af rappþættinum Blautt Malbik, sem er í umsjón þeirra Halldórs Halldórssonar, Daníel Ólafssonar og Óiafs Thors, en í þættinum voru valdar bæði plötur og lög ársins í rappflokkn- um. Það var lagið Hate It or Love It með þeim 50 Cent og The Game sem hafði vinninginn sem lag ársins, en lagið ætti ekki að vera neinum ókunnugt. Plata árs- ins var The Documentary sem var frumburður rapparans líie Game, en með henni þótti hann hafa sett rapp frá Vesturströnd- inni aftur á kortið. Kastljóss- viðtal Damons Albarn á netinu Söngvarinn Damon Albam sem þekktastur er fyrir hljómsveitirnar Blurog Gorillaz fór í \ s viðtal í sjón- / varpsþætt- inum Kast- ljósi sem sýndur er í Ríkissjón- varpinu. Þar talaði Damon um tónleikana í Laugardalshöll sem haldnir vom síðastliðinn laugardag. Hann tal- aði einnig um íslenska náttúm og tengsl sín við hana. Viðtalið er hægt að nálgast á grapevine.is. ■m % Kynþokka- fyllsta kona landsins Kosningin um kynþokkaf>fllstu konu landsins stendur ný yfir á heimasíðtmni visir.is. Það er tímaritið Sirkus sem stendur fyrir kosningunni og hefur það tilnefnt 53 íslenskar konur undir þrímgu, sem netveijum og áhugasömum er frjálst að kjósa um. A meðal þeirra sem em tilnefndar má finna Nylon-stelpumar, Önnu Rakel Róbertsdóttur, Tinnu Alav- is, Sigrúnu Bender og sjálfa ung- frú heim, Unni Birnu Vilhjálms- dó Rokkarinn Ágúst Örn Pálsson var rændur sjaldgæfum Jackson-gítar sínum milli jóla og nýárs. Gripurinn kom þó í leitirnar og er kappinn alsæll. Mikið hefur verið um innbrot í Húsinu á Akureyri, en gítarinn var þar þegar honum var stolið. Þetta er í íjórða skipti sem brotist er inn í Húsið, en í fyrstu þrjú skiptin var hægt að endurheimta þýfið. Ágúst Örn Páls- Himinlifandi með að hafa endur- heimt gullið sitt. „Það var brotist inn þar sem ég vinn, í Húsinu á Akureyri, en það em gömlu Dynheimar," segir Ágúst Öm Pálsson, fyrrverandi gítarleikari í hljómsveitinni Nevolution. Ágúst lenti í því óláni að sjö strengja Jackson-gítarnum hans var stolið, að talið er aðfaranótt miðvikudags- ins 28. desember. „Gítarinn er af gerðinni Jackson Kelly og er 7 strengja, en Jackson framleiddi að- eins eina árgerð af slíkum gítar árið 2000, í frekar fáum eintökum og em þessir gítarar því svo til ófáanlegir í dag“, segir Ágúst um gítarinn góða. Húsið, þar sem gripurinn var þegar hann var tekinn ófrjálsri hendi, er félags- og menningarmiðstöð á Ak- ureyri. Ágúst sem saknaði gítarsins mjög, enda rokkari í húð og hár, auglýsti hvarf gítarsins á heimasíðu hljómsveitarinnar, www.thenevo- lution.com. „Ég talaði við fullt af fólki um þetta og það talaði við fleiri og á endanum datt einhver niður á einhvern sem eitthvað vissi. Ég fékk „Það hefur alltafverið starfsfólkið sem hefur fundið tækin aftur, en ekki lögreglan." svo gítarinn aftur en ég veit ekkert hver var með hann eða hvar," segir Ágúst feginn að vera kominn aftur með gítarinn sinn. Fjórða innbrotið á fjórum árum Innbrot hafa verið tíð í Húsinu og hefur verið brotist þar inn fjórum sinnum á síðustu fjórum ámm. Það sem er hins vegar undarlegast við það er að sama breiðtjaldssjónvarp- inu og heimabíókerfi hefiir verið stolið í öll fjögur skiptin. Og í þrjú af þeim fjórum skiptum hefur búnað- urinn komið í leitirnar aftur. „Það hefur alltaf verið starfsfólkið sem hefur fundið tækin aftur, en ekki lögreglan," segir Ágúst, sem vill þó ekki gera lítið úr starfi lögreglunnar. „Starfsfólkið hefur alltaf spurst fyrir og einhvern þekkir annan sem eitt- hvað veit, en nú hefur gítarinn bara komið í leitirnar." Hættur í Nevoiution „Það eru Ijölmargar ástæður hjá mér og hljómsveitinni sem varð til þess að ég hætti," segir Ágúst um brotthvarf sitt úr bandinu. Ágúst er kampakátur með gítarfundinn en segir annars allt gott að frétta af fyrr- verandi hljómsveit sinni, „Annars er allt gott að frétta af Nevolution og er að koma út plata á næstunni." asgeir@dv.is Björk Guðmundsdóttir var á dögunum kosin sérvitrasta stjarna allra tíma. Kosn- ingin var á vegum BBC og tóku um 6000 manns þátt í valinu. Björk kosin sérvitrasta stjarna heims Björk hef- ur verið kosin sérvitrasta stjama heims. Kosningin var á vegum BBC \ og vom s um 6000 manns sem tóku þátt. Björk hefur verið þekkt fyrir frekar fiirðulegan fatasmekk og er svanakjóllinn sem hún var í á óskarsverðlaunahátíðinni 2001 einhver frægasti kjóll fyrr og síðar. Tónlist Bjarkar hjálpar líka við að koma henni í fyrsta sæti. Þrátt fýr- ir að tónlist hennar sé falleg og virt um allan heim er hún mjög sérstök. Björk hefur einnig verið á forsíðum blaðanna fyrir hegðun sína, til dæm- is þegar hún réðst á blaðamann á flugvellinum í Bangkok á sínum tíma. í öðm sæti boxarinn Chris Eu- bank. Chris var mjög öflugur boxari í millivigt og þótti mjög sérstakur. Hann talaði mjög skringilega og þótti framkoma hans yfirhöfuð skringileg. Eubanks lamaði eitt sinn mótherja sinn í bardaga og náði sér aldrei á strik eftir það. Þriðja sætið vermir svo David Icke. Icke var atvinnumaður í fót- bolta á sínum tíma og svo íþróttaþul- ur á BBC. Icke leitaði fyrir sér í pólitík og var með mjög róttækar skoðanir. Hann hélt því til dæmis fram að hann væri sonur Guðs og að heiminum væri stjórnað af eðlum. Frægar eru skopmyndir Davids þar sem sýnt var að hann væri eðla undir skinninu. Tom Baker var í því fjórða. Hann lék í Dr. Who og er nú sögumaðurinn í grínþáttunum Little Britain sem eru sýndir á RÚV. Ozzy Osboume hreppti svo fimmta sætið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.