Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2006, Side 29

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2006, Side 29
r*v Lífíð ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 2006 29 Bloggdrottningin og rithöfundurinn Elísabet Ólafsdóttir heldur því fram á bloggsíðu sinni að kærasta Geirs Ólafssonar, Ásdís Sigurðardóttir, hafi ráðist á sig á barnum Vox á Nordica hóteli á laugrdagskvöld. Geir segir það tóma þvælu og biður Elísabetu að hringja í sig svo hann geti leiðrétt vitleysuna. Hin meinta árás hefur ekki verið kærð til lögreglu en grafískar lýsingar má finna á síðu Betu. „Hún er náttúrulega ekki í lagi þessi kona, svona fólk á bara heima á Kleppi, Þetta er bara ekki rétt. Ég bara kann- ast ekki við þetta. Það brotnuðu engin glös og engin stór orð féllu." Elísabet Ólafsdóttir rithöf- undur Varð fyrir árás á Vox. „Hún skipaði mér að standa upp og kallaði mig fituhlunk áður en hún fór að brjóta glös þarna. Mér finnst þetta bara leiðinlegt atvik,“ sagði El- ísabet Ólafsdóttír rithöfundur um nýja bloggfærslu á heimasíðu sinni, abuse.is/web/beta, en þar sagðist hún hafa orðið fyrir árás Ásdísar Sigurðardóttur, kærustu söngvarans Geirs Ólafssonar. Geir neitar öllu „Hún er náttúrulega ekki í lagi þessi kona, svona fólk á bara heima á Kleppi. Þetta er bara ekki rétt. Ég bara kannast ekki við þetta. Það brotnuðu engin glös og engin stór orð féllu," sagði Geir Olafsson söngvari þegar blaðamaður hafði samband við hann síðdegis í gær. Hann bað blaðamann síðan fyrir skilaboð til Elísabetu og sagðist ekki kannast við að málum hafi verið þannig háttað sem hún gaf upp á heimasíðu sinni. „Biddu Elísabetu bara um að hringja í mig," sagði söngvarinn. Það snýst ekki allt um Geir Ólafs Elísabet lýsir atburðunum sem Geir segir að hafi ekki átt sér stað á þá leið að hún hafi setið ásamt vinum við borð á Vox-barnum á Nordica hóteli þegar Geir hafi skyndilega staðið upp og sungið fyrir hana og félaga hennar. Elísabet, eða Beta rokk eins og hún er stundum kölluð, og félagar hennar hlýddu ekki á Geir heldur spjölluðu áfram. Samkvæmt Betu mæltist það illa fyrir hjá kærustu Geirs, Ásdísi Sigurðardóttur. Lentu þær þá í heiftarlegu rifrildi samkvæmt færslu Betu á heimasíðunni. Kallaði Elísabetu fituhlunk „Hún kallaði mig fituhiunk, lessu, tussu og ég veit ekki hvað og hvað," segir Elísabet og bætirþví við að Geir hafi reynt að draga Asdísi í burtu en þá hafi hún haldið áfram að ausa fúkyrðum yfir hana og hellt yfir hana hvítvínsglasi. „Svo skvettir hún öðru glasi framan í barþjóninn og brýtur glasið. Tekur sopa af enn öðru glasi og brýtur það svo við stólinn minn þannig að glerbrotum rignir yfir mig og allt í kring," segir Elísa- bet. „Já, ég staðfesti það sem Beta segir ffá á blogginu sínu, þetta átti sér stað," sagði Fanney Stefánsdótt- ir, vinkona Betu, þegar DV hafði samband við hana. Geir segir þær báðar fara með tóma þvælu en ekki náðist í kærustu hans, Ásdísi Sigurðardóttur, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Veitingahúsið Vox Ásdís Sigurðardóttir Á netinu er fullyrt að Asdls hafí veist að Elísabetu Ólafsdóttur á Nordica. Geir „lceblue" Ólafsson söngvari Hafnar þvi alfarið að kærastan hafi ráðist á Betu rokk. Hljómsveitin Steintryggur leikur á Eurosonic-hátfðinni fimmtudaginn 12. janúar. Hátíðin sem haldin er f Groningen f Hollandi er ár- legur viðburður með yfir 180 uppákomum á 25 tón- leikastöðum. Steintryggur er skipuð þeim Sigtryggi Baldurssoyni og Steingrfmi Guðmundssyni en þeir fé- lagar fóru í mánaðarlanga tónleikaferð um 5 Evrópu- lönd nú f haust sem leið til að kynna Dialog, sem er fyrsti geisladiskur þeirra fé- laga. Með Steintryggi f för verða þeir Sören Venema sem leikur á mandólín, sftar og Oud og Roland Hartwell sem leika mun á fiðlu og bassa. Tökur á nýrri fslenskri kvik- mynd hefjast f febrúar. Kvikmyndin heitir Köid slóð og fjallar um harðsvfraðan, fslenskan blaðamann sem lendir f mikílli hættu þegar hann rannsakar dularfullt dauðsfall á virkjunarsvæði á hálendi fslands. í helstu hlutverkum eru leikararnir Þröstur Leó Gunnarsson, Elva Ósk Ólafsdóttir, Helgi Björnsson, Hjalti Rögnvaldsson, Tómas Lemarquis, Anita Briem og Lars Brygman. Leikstjóri er Björn Br. Björnsson og framleiðandi ásamt Kristni Þórðarsyni er Magnús V. Sigurðs- son. visir& IfllP1 Jm m BH ■ HBH ■ mi ÍMfe>. ':~-isaáÉí£!£-S}.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.