Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2006, Síða 39
DV Síðast en ekki síst
ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 2006 39
Nei, ég er ekki búinn, það
kostarsvo mikið átak
„Nei, ég er ekki búirm að taka skrautið niður en ég er
búinn að losa mig við jólatréð. Skrautið ersvo mikið
að það þarfsérstakt átak f/7."
Jón Arnar Þorbjörnsson rafvirki.
Þótt jólin séu liðin leyfa margir jólaseríunum að vera uppi örlítið lengur til að
lýsa upp skammdegið. Aðrir taka þó skrautið niður stundvíslega á þrettánd-
anum.
„Já, ég er
búin að taka það
niður. Ég tók það
niðursiðasta
föstudag og geri
það ár hvert."
Arna Daníels-
dóttir, almenn-
ur starfsmaður
Atlantsolíu.
„Já.ég
gerði það um helg-
ina síðustu. Ég var
með fullt afskrauti
uppi en tók allt nið-
ur þrátt fyrir að það
hafi verið vinalegt
að hafa Ijósin uppi."
fris Sturludóttir
nemi.
„Nei, ég
er ekki búin. Ég
nenni eiginlega
ekki að taka
það niður en ég
geri það þegar
aðrirgera það."
Aldís Ingva-
dóttir
afgreiðslu-
stúlka.
„Já.ég
er búinn að
taka alltskraut
niður. Ég tek
það alltafniður
á þrettándan-
um."
Sakarus Bech
skipstjóri.
Spurning dagsins
Sorpa og ýsa í kvöldmatinn
dacrsin
Dagurinn nýttist í að
taka til, fara á Sorpu
og lesa gögn.
Kl.17 fór ég í heim-
sókn á kosningaskrif-
stofu Björns Inga
Hrafhssonar, en hún
var opnuð í dag að
Suðurlandsbraut 24.
í gær opnaði Anna
Kristinsdóttir kosn-
ingaskrifstofu sina í
Landssímahúsinu við Austurvöll,
en þegar ég ætlaði að líta inn hjá
henni á leið minni í afmælis-
veislu Dagnýjar kom ég svo seint
að búið var að loka þ.a. ég mun
líta við hjá henni síðar.
Bæði Anna og Björn Ingi, ásamt
Óskari Bergssyni sækjast eftir 1.
sæti í prófkjöri fram-
sóknarmanna í
SReykjavík sem fram
fer 28. janúar næst-
komandi.
Slóðirnar á heimasíður Onnu og
Björns Inga eru www.annakr.is
og www.bjorningi.is.
Um kvöldið elduðum i
við ofnbakaða
ýsu í rjóma-v
sósu.
Siv Fríðleifsdóttir alþingismaður skrifar á siv.is
Ökufantar og annaðfól k
Sunnudagur,
01. 06.
Ókum úr
Fljótshlíðinni
í dag - í gegn-
um þrjú
veður-
kerfi
frostbirtu,
snjó-
komu og rigningu. Ég hef
ekið viða um heim en
aldrei kynnst þvi nema
á Hellisheiði, að öku-
menn telji sér sæma að
aka fram úr í niðaþoku,
hægramegin á vegar-
öxl. Það er ekki þessum
ökumönnum að þakka, að ekki
verði stórslys.
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra skrífar á bjorn.is
Jó la kortafé ti 1 sýsli jmanns
Likt og nokkur undanfarin ár var
ákveðið fyrir jólin í ár
að í stað þess að
senda út jólakort
til fjölmargra að-
ila með kveðjum
ráðherra og
starfsfólks skyldi
andvirðinu varið til
góðgerðarmála.
Að þessu sinni rann andvirðið,
kr. 200.000, til sýslu-
mannsemhættis-
ins á Akureyri
og skal þvi
ið til
og forvarnar-
starfs á
sviði
fíkniefna-
mála.
V K barnið V
rjwnö ut til dag- >
vi?wÓUri! s.íöan talca
oAgheimilij leik-
skolar eða önnur
ciArep v.alin til að
a§v2Z1? að annast
sV*minen halda
samt virðingar- /
A—neitinu for- /
4 7\ eldrar. /
Foreldrar, hver fjandinn er það? Er von þið
spyrjið! Til eru ýmsar aðferðir við að komast
hjá því að verða foreldrar þrátt fyrir kynmök
í nútímasamfélagi. Getnaðarvamir fást í
gððu úrvali. Dugi þær ekki, ef gallaður
smokkur veldur slysi með því að rifna svo
bam komi undir, er auðvelt að eyða fóstr-
inu.
Sé engin vöm notuð og sá póll tek-
inn í hæðina af tveimur einstaklingum
af gagnstæðu kyni að vilja verða barn-
eignafólk em ótal ráð til að læðast fram
hjá því hlutverki og létta ákvörðunina.
Fyrst er bamið borið út til dagmóður,
síðan taka við dagheimili, leikskólar eða
önnur þrep valin til að sleppa við að ann
ast afkvæmin en halda samt virðingar-
heitinu foreldrar. Móðirin fær að sjálf-
sögðu fæðingarorlof, faðirinn líka og
einnig er meðlag með bömum.
Fari allt út um þúfur, þrátt fyrir þenn-
an stuðning, og gamla dýrseðlið komi
upp í kalmanninum svo hann lemji
konuna í hausinn með til dæmis
rándýrri hvítlaukspressu, en
hún grípur ekki til kökukefl-
isins sér til vama, enda er
það valdatákn húsfreyj-
unnar ekki lengur á
heimilum, getur hún
hlaupið í kvennaat-
hvarfið með afkvæmin á
hælunum.
Einnig em á boðstólum sér-
hönnuð bamahús fyrir börn og
mömmukot handa útigangsmömmum og ann-
að skjól tengt fólki í staðfestu hjónabandi. Ekki
hafa enn verið reist pabbaafdrep.
I sumum löndum er til starfsgrein kennd við eftir-
litsmömmur. Þær fara inn á heimili og gegna svip-
uðu hlutverki og prestar meðan sú skylda hvíldi
á þeim að húsvitja, drekka molakaffi og fylgj-
ast með guðsótta og góðum siðum fjöl-
skyldunnar.
En þrátt fyrir öll ráð lenda böm í vand-
ræðum og valda öðmm meiri. Sum
drekka sig full í skóla, önnur nota eitur-
lyf. Lyktin af þeim segir sannleikann síður
en vínþefur. Þá sprettur nýr vandi sem
krefst nýrrar starfsgreinar fýrst böm selja
hvert öðm eiturlyf. Þetta er skólalögga með
hasshund. Árangurinn er kraftaverk: Börn
sefast og siðast við þefandi trýnið.
Hundar em því aftur famir að sjá
um eftirlit og uppeldi barna sem er
lausn fyrir foreldra.
Guðbergur Bergsson
Mest lesna tímaritið
Lestur á tímaritinu Birtu mælist langmestur af öllum tímaritum landsins,
skv. fjölmiðlakönnun Gallup. Skemmtileg efnistök og öflug sjónvarps-
dagskrá vinna saman við að skapa þessar miklu vinsældir. Ef þú vilt að
fyrirtækið þitt sé sjáanlegt skaltu auglýsa þar sem birtan er mest og
líklegast að flestir sjái auglýsinguna. Komdu inn í Birtuna.
birlo
Auglýsingasími 550 5000
Birtu er dreift inn á 95.000 heimili á höfuöborgarsvæöinu, Suðurnesjum, Akureyri, Akranesi, Borgarnesi, Selfossi og Hverageröi.