Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2006, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2006, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2006 Helgarblað W Okkur lá forvitni á að vita hvert fólk sem á í verulegum greiðsluerfiðleikum getur snúið sér og leitað lausna og leituðum því til Bjargar Sigurðardóttur viðskiptafræð- ings sem hefur það að atvinnu að aðstoða íslendinga sem komnir eru í þrot með fjármálin sín. LÍJj JJ Wiii BJörg ráðgjafi og mamma „Eftir að ég eignaðist dóttur rnma þá hefég fléttað saman áhugamái mln°9famveru með dóttur minni eins og hægt er. Við ferðumst saman þegar tækifæri gefast og forum i gongutúra, sund og á skíði." ,M> vera í vansJdlum með greiðslur er ekki hlutskipti sem nokkur maður kýs sér. Það er væg- ast sagt mjög dýrt þegar skuldimar fara í vanskil og þær fara að hlaðast upp,“ segir Björg alvarleg í bragði og bætir við að fjárhagserfiðleikar reyna mjög mikið á andlegt og lfk- amlegt þrek og eru slítandi. Neyslulán algeng á fslandi „Ég aðstoða fólk við að öðlast heildaryfirsýn yfir fjármálin og leita leiða til lausnar," útskýrir hún að- spurð um starfiö sem hún sinnir hjá Ráðgjafastofu heimilaima. „Tekju- minnkun af völdum atvinnuleysis eða veikinda eru helstu ástæður okkar viðskiptavina en oftast er staðan þannig að hvort sem við- skiptavinir okkar eru með mjög lág- ar tekjur eða háar tekjur þá eru við- skiptavinimir oft búnir að flár- magna neyslu sína í nokkum tíma með neyslulánum og eiga síðan erfitt með að standa í skilum með þau vegna ýmissa ástæðna." Aöhald er gott Hverjar eru ráðleggingar þínar ef ég ætti í miklum fjárhagsvandræð- um og farin að örvænta? „Að sjálf- sögðu myndi ég ráðleggja þér að koma strax til okkar í ráðgjöf og við myndum vinna að því saman að fá heildaryfirsýn yfir íjárhagsstöðuna eins og hún lítur út í dag og ræða möguleg úrræði," svarar Björg ör- ugg og bætir við: „Mikilvægt væri fyrir þig að hafa samband við kröfu- hafana og láta þá vita að þú sért að vinna í því að finna lausn á þínum vanda. Eg hef oft séð það í þessu starfi að skuldarar hafa sparað stór- fé í innheimtukostnað með því að vera í sambandi við kröfuhafa sína þegar þeir em komnir í vanskil með skuídbindingar sínar eða eiga von á því að lenda í vanskilum en með því að vera í góðu sambandi þá ert þú að láta vita af því að þú sért ekki búin að gleyma skuldinni heldur ert þú í erfiðri fjárhagsstöðu eins og er og ert að reyna að finna lausn á vandanum. í flestum tilfellum geta kröfuhafar frestað dýrum inn- heimmaðgerðum ef þeir hafa heyrt frá skuldurum sínum vegna van- skila þeirra eða vegna yfirvofandi vanskila." Lausnin ertil „Til að lækka framfærslukostnað þinn þá gæti það hjálpað þér að hætta að nota greiðslukort og fara að greiða með peningum. Þannig getur þú mögulega fengið betri yfir- sýn yfir framfærslukostnaðinn og gætt aðhalds í neyslu fjölskyldunn- ar og haldið greiðsluáætlun," segir Björg vel að sér í málum sem tengj- ast peningum. En að henni sjálfri. Áhugmálin? „Helstu áhugamál mín eru útivist og hreyfing, ferðalög og tónlist," svarar hún ljúf og heldur áfram: „Eftír að ég átti dóttur mína þá hef ég fléttað saman áhugamál mín og samveru með dóttur minni eins og hægt er. Við ferðumst saman þegar tækifæri gefast og fórum í göngut- úra, sund og á skíði," segir þessi fal- lega móðir og ráðgjafi sem veit vissulegasínuviti. ellytpdvjs (Spáð í Björgu Tviburi (21.mai -21.júní)- Fædd:6.júni 1969 Björg er athafnasöm I eðli sinu þegar stjörnukort hennar er skoðað. Hún er fljót að hugsa og virðisthafa eitthvert sjötta skilningarvit til að finna hvenær til dæmis erfiðleikar steðja að hjá vinum hennar. Björg er einnig eðli slnu trú. Hún skilur, þroskast og tekst sífellt á við sjálfa sig með aldrinum (góður kostur) og einmitt þess vegna er hún fær um að aðstoða fólk sem leitar ráöa hjá Ráð.is. Þessi kona hef- ur marga ákaf- lega já- kvæða eiginleika. Segja má að hún hafí allt til að bera sem þarf til að vera hamingjusöm og þroskuð kona. SAMANBURÐUR &týöfvuifnef€mciiuia/ Samelmiú gera þae líliú fegerra Rúnar Freyr Gíslason Selma Björnsdóttir Fæddur: 29.04.73 Fædd: 13.06.74 Naut (20.apríl - 20.maí) Tvíburi <21.maí - 21 .júní) Rúnar Freyr lítur eiginkonu sína, Selmu, aðdáunaraugum í rökræð- um því þessi fjölhæfa kona er fær um að hugsa mjög hratt á meðan hann býr yfir öflugum viljastyrk. Þeim kemur vel saman svo lengi sem þau eru ekki ósammála um smávægilega hluti og þar kemur styrkur Selmu sér í lagi fram. Hún kinkar einfaldlega kolli þegar nautið, Rúnar Freyr, telur sig hafa á réttu að standa. Selma má alveg minna sjálfa sig á í sam- bandinu að hún telst vera vitsmunaveran í dýra- , hring stjarnanna ef marka má stjörnur þeirra saman. - rómantiskur, viðkvæmur - vanafastur - náttúruunnandi - afkastamikill & áræðanlegur - þolinmóður & umburðalyndur - brotakennd, mikil tilfinningavera - skemmtileg & örvandi - málgefin & snjöll - ævintýragjörn & athafnasöm - heillandi & ástríðufull HELGIN FRAMUNDAN 'v\ „Það verður nóg að gera á laug- ardaginn hjá mér. Þó ég sé á frívakt í Sjónvarpinu þarf ég samt að vinna," svarar Geir Magnússon íþróttafréttamaður hjá RUV kátur að vanda aðspurður um atburði helgarinnar og bætir við: „Ég ætla að lýsa brunkeppni í heimsbikarnum á skíðum á laugadagsmorgun. Það ’ verður örugglega mjög gaman því brunið er í Kitzbuhel í Austurrlki í hinni frægu Hahnenkamm-braut. Seinnipartinn á laugardag fer ég á Ásvelli í Hafnar- firði þar sem ég verð með í beinni útsendingu frá seinni leik íslands og Frakklands í hand- bolta." Okkur leikur einnig forvitni á að vita hvar Geir verður á sunnu- daginn. „Þá ætla ég að vera sem mest heima því það er síðasti frídag- urinn sem ég á áður en ég fer á Evrópumótið í Sviss í handbolta."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.