Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2006, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2006, Side 8
8 ÞRIÐJUDACUR 31. JANÚAR 2006 Fréttir DV nMímMsmm Húsriiendur bruhitt, Þrír stuldir Innbrot var framið í heimahús í Garðabæ aðfara- nótt föstudags. Þjófamir tóku bíllykla og stálu bíl sem hefur ekki fundist enn. Þetta er dökkblá Toyota Corolla, árgerð 2000, með skráning- amúmerinu ZS 287. Þá var framið innbrot í vélaverk- stæði í Garðabæ og þaðan stolið ljósavél. Á fimmtu- dagsmorgun var tilkynnt um innbrot í Víðistaðaskóla, en þaðan var stolið peninga- kassa. Þessi mál em í rann- sókn að því er fram kemur á vefVíkurfrétta. mm íslanosba**J2 ! 81 Mál Holbergs enn í rann- sókn Lögreglan í Reykjavík er enn með mál Holbergs Mássonar og tveggja út- lendinga í rannsókn. Mennirnir voru handtekn- ir 19. janúar vegna gruns um að hafa reynt að svíkja umtalsvert fé út úr ís- landsbanka með falsaðri bankaábyrgð. Ekki hefur verið krafist gæsluvarð- halds eða farbanns yfir hinum grunuðu meðan á rannsókn málsins stendur. Rannsókn miðar vel áfram og er gert ráð fyrir að henni ljúki á næstu dögum. Ský í göngum Rúmri — klukkustund eftir miðnætti í fyrrinótt var lögreglu til- kynnt um hvítt ský í Vestfjarðagöng- um. Þegar lög- regla athugaði málið kom í ljós að einhver eða einhverjir óprúttnir aðilar höfðu tæmt úr tveimur duft- slökkvitækjum sem staðsett eru í göngunum til öryggis. Gerðist þetta í Breiðadals- legg gangnanna að því er fram kemur á bb.is. í til- kynningu frá lögreglu segir að háttarlag sem þetta sé óskiljanlegt þar sem um bráðnauðsynleg öryggis- tæki sé að ræða. Fullur dómsalur fylgdist í gær með Sigurði Frey Kristmundssyni svara spurn- ingum dómara og saksóknara vegna morðsins á Braga Halldórssyni. Sigurður var fullur iðrunar þegar hann lýsti aðdraganda morðsins og sagði meðal annars að hann ætti aldrei eftir að geta fyrirgefið sjálfum sér verknaðinn. í málinu er deilt um hvort Sigurður hafi lagt til Braga með morðvopninu eða hvort Bragi og hnífurinn hafi mæst þegar Bragi stóð snöggt upp. Mun aldrei tyrirgefa sjálfum mér Sigurður Freyr Kristmundsson lýsti iðrun sinni og eftirsjá í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, en þar fór fram aðalmeðferð í máli ríkissaksóknara gegn honum vegna morðsins á Braga Halldórssyni. Sigurður sagðist í gær aldrei munu fyrigefa sjálfum sér það sem hann gerði Braga. „Þetta var vin- ur minn. Hann var yndislegur strákur og átti þetta engan veginn skilið. Ég bara skil þetta ekki." Sigurður Freyr hafði við þing- festingu málsins rétt fyrir jól ját- að að mestu sök í málinu. Hann ber því við að hann hafi ekki lagt til Braga með flökunarhnífnum sem varð þeim síðarnefnda að bana, heldur hafi hnífurinn og Bragi mæst þegar Bragi stóð snöggt upp frá eldhúsborði sem hann sat við. Vitnaleiðslurnar í gær snérust því að? mestu um að komast að tildrögum hnífstung- unnar. Þetta er lykilatriði í vörn Sigurðar og kemur til með að skipta miklu máli þegar refsing hans verður ákveðin. „Þetta var ekki viljandi gert," útskýrði Sigurður þegar Guðjón St. Marteinsson, einn þriggja dómara í málinu, krafði hann skýringa. Lýsti morðinu Að sögn Sigurð- .ar er gríðarleg .fíkniefna- jieysla hans t vikurnar fyrir morðið ein helsta ástæðan fyrir því að svo fór sem fór. Sig- urður hafði verið vakandi sleitu- laust í nær tvær vikur fyrir morð- ið og neytt amfetamíns og róandi lyfja í bland til að halda sér gang- andi. Hann lýsti aðdraganda morðs- ins og eftirleik í smáatriðum og dró hvergi undan. Af og til tók hann sér stutt hlé til að ráðfæra sig við verjanda sinn, Svein Andra Sveinsson, en hélt síðan áfram. Yndislegur strákur Ekki er hægt að benda á neina sérstaka ástæðu fyrir því að Sig- urður Freyr varð Braga að bana í kjallaraíbúðinni við Hverfis götu. Ofsóknaræði og árásar- V hneigð Sigurðar, orsökuð af eiturlyfjaneyslu hans, er einnahelst um að kenna. Sig- urður man varla sjálfur Siguröur Freyr Kristmundsson Bar vitni i Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. af hverju hann deildi við Braga umrædda nótt og því síður af hverju Bragi lá í valnum að deil- unum loknum. „Ég mun aldrei fyrirgefa mér þetta," sagði Sigurður dapur í bragði um hina örlagaríku at- burði. Hann talaði hlýlega til fé- laga síns sem nú er látinn. „Þetta var vinur minn. Hann var yndislegur strákur og átti þetta engan veginn skilið. Ég bara skil þetta ekki. Ég mun aldrei fyr- irgefa sjálfum mér." Réttarhöldin yfir Sigurði Frey eru nú komin á lokastig. Dóms er að vænta í málinu á næstu vikum. andri@dv.is Hverfisgata 58 Hér varð Sigurður Braga að bana ogrned hrufstungu i irj ] hjartastað. Landnámssetur í Borgarnesi opnað um leið og Listahátíð Grenndarkynning tefur Kjartan „Þetta tefst um mánuð vegna þess að tengibyggingin þarf að fara í grenndarkynningu," segir Kjartan Ragnarsson leikstjóri sem vinn- ur að uppbyggingu Land- námsseturs í Borgarnesi. „Við stefiium hins vegar ótrauð að því að opna 13. maí í tengsl- um við opnun Listahátíðar og vonum bara að þetta verði það glæsilegt að alliríslendingar vilji koma og sjá," segir leikstjórinn sem tekur grenndarkynn- ingunni með still- WSBB3SM mgu. Um er að ræða framkvæmdir á milli tveggja húsa við Brákarbraut í Borgamesi sem hýsa eiga Land- námssetur Kjartans. Annað húsið keyptí Ólafur Ólafsson athafhamaður, oft kenndur við Samskip, fyrir skemmstu og færði Landnámssetrinu að gjöf. „Þetta var styrkur frá honum til okk- ar," segir Kjart- an en í viðtali við DV í fyrra- sumar, sagði Kjartan Ragnarsson Tengir opnun safnsins við opnun Listahátið- ar 13.maí. Landnámssetrið í Borgarnesi Húsin við Brákarbraut. Tengibygging á milliþeirra þarfi grenndarkynningu. Húsið til vinstri ergjöffrá Ólafi Ótafssyni, kaupfélagsstjórasyni úr Borgar- nesi, oft kenndur við Samskip. Mér liggur á að koma heilsunni i lag aftur," segir Jóhann S. Brynjólfsson, stöðumælavörður á Akureyri.„Ég er nýstiginn upp úr veikindum svo það er heilsan sem skiptir máli." hann um þessa hugmynd sína: „Við hjónakomin ferðuðumst um ísland í fyrrasumar. Við höfðum hald- ið okkur á hestum á hálendinu á sumrin en fórum strendur, víkur og voga í þetta sinn og kynntumst þá öllu því sem búið er að gera á landinu til eflingar menningartengdri ferða- mennsku, t.d. Vesturfarasetrinu og Sfldarminjasafiúnu. Og þá fengum við hugmyndina um Landnámssetur fslands, þar sem saga landnámsins og stofnun þjóðveldisins yrði rakin á lif- andi og skemmtilegan hátt."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.