Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2006, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2006, Blaðsíða 29
DV Lífíð ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 2006 29 Aðgerð Silvía Nótt segist hafa farið til Oklahoma til þessað fara I í aðgerð á hálsi. Hún fékk allra bestu„sönglæknana‘‘sem völ var rMilþess að biarqa sér. Silvía Nótt stígur á svið næsta laugardag og ætlar að syngja sig inn í hjörtu íslend- inga. Hún er viss um að komast upp úr undankeppni Eurovision, og er nú þegar farin að kanna aðstæður í Grikklandi. Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson semur lagið, Sölvi Blöndal vinnur að upptöku og heyrst hefur að Selma Björnsdóttir muni hjálpa til við sviðsframkomu og Sigríður Beinteinsdóttir muni syngja bakraddir. Silvía Nólt er nú þegar komin til Grikklands „Ég er í Aþenu núna. Ég fékk teikningar af sviðinu og svona en það var ekki rétt. Nú er ég bara komin beint á staðinn að skoða og svona. Ég er að veifa öllum og krakkarnir segjast ekki hafa séð eins fallega konu. Ég segi bara: „Bíðiði þangað til ég kem í maí. Þið verðið að bíða, sko. Það hlakka allir ógeðslega til,“ segir Silvía Nótt sem æltar sér stóra hluti í Eurovision á Grikklandi í sumar. Silvía er algjörlega viss um að komast áfram úr undankeppninni. Eftir að hafa heyrt hana tala um Grikkland komst blaðamaður varla hjá því að spyrja um undankeppnina sem er enn í fullum gangi. Þarf ekki að sigra keppnina hér heima íyrst? „Mér fannst fyndið að þú spurðir um þetta. Það er eins og þú ert eitt- hvað sofandi, hafir ekki horft á þætt- ina mína. Fólkið á landinu er soldið vitlaust, en það er betri greindarvísi- tala héma í bænum og meiri fjöldi héma í bænum. Samt er ég búin að vera úti á landi að gefa fólkinu þar von. Þau vilja núna lfka að ég gefi restinni af heiminum von." Hræðist ekki keppinautana Silvía hræðist ekki keppinautana í undankeppninni. Þó er einn sem hún segir að gæti verið hættulegur. „Mér finnst soldið slæmt að Ómar Ragnarsson taki þátt. Kripplinga- konumar em á eftir honum, því hann lenti í flugslysi. Hann er með sterk bein, samt ekki eins sterk eins og mín.“ Birgitta Haukdal tekur þátt sama kvöld og Silvía. Silvía segir að hún hafi umgengist hana og Selmu mjög mikið að undanfömu. Sagt hefur ver- ið að Silvía hafi sótt söngnámskeið hjá þeim stöllum. „Sko, ég er ekki í söngtímum hjá þeim, þær em bara ógeðslega góðar vinkonur mínar. Ég er að hjálpa þeim að vera ógeðslega töíf, mála þær og svoleiðis, sko. Ég er ógeðslega góð við þær, þær em bún- ar að reyna ógeðslega mikið að kom- ast út. Nú gengur þeim vel, því þær em með mig, svona ferskt kjöt." Fór í aðgerð á hálsi Sögur hafa verið á kreiki um að Silvía hafi þurft á læknisaðstoð að halda, vegna þess að hún væri með hnút á raddböndunum. Hún segir þær sögur vera réttar. „Ég var með hnút á raddböndunum út af stressi. í þáttunum mínum var ég komin með ógeðslega lítinn hnút. Svo fór ég til landlæknis og hann sagði að ég væri með stóran hnút, útaf því að ein- hverjir gerðu svona vúdú-dúkkur og vom að stinga í hálsinn." Silvía þurfti að leita út fyrir landsteinana til þess að fara í aðgerð- ina. „Ég þurfti að fara til Oklahoma <P" ’ og fékk bestu sönglæknana til þess að gera aðgerð með leiserbyssum. Ég var á miUi lífs og helju, sldlum." Hún segir þó að þessi aðgerð hafi ekki verið alslæm. „Ég fékk fullt af aðdáendabréfum frá fullt af frægu fólki. Svo er ég orðin ógeðslega mjó, því ég gat ekkert borðað. Svo var ég líka á sterum." Ognú á bara að sigra heimirm? „Eg er svona ffelsari. Ég er að gefa af sjálfri mér. Ég fæddist til að frelsa þetta," segir Silvía Nótt sigurviss. Landslið tónlistarmanna hjálpar Silvíu Þorvaldur Bjami Þorvaldsson samdi lagið sem Silvía syngur næsta iaugardag og Sölvi Blöndal sá um upptökustjöm. Úr herbúðum Silvíu hefur einnig heyrst að Selma Bjömsdóttir ætli að hjálpa Silvíu með sviðsframkomu og að Sig- ríður Beinteinsdóttir ætli að syngja bakraddir. Þorvaldur sagði í samtali við DV að lagið hafi ekki verið samið fyrir Silvíu. „Hún „rippaði" þessu lagi af mér. Ég vona því að Silvía sjái sóma sinn í að syngja þetta vel," segir Þorvaldur glettinn. Hann seg- ist hafa samið lagið sérstaklega fyrir keppnina. „Þetta lag er samt ekki „Eurovision-legt" ef svo má að orði komast. Það er svona hiphop-ffl- ingur í því." Sölvi Blöndal segist ekki vera mikið fyrir Eurovision, en Silvía hafi boðið svo vel að hann gat ekki neit- að. „Ég geri þetta bara fyrir pening- ana, ég er fátækur námsmaður," seg- ir Sölvi. Hann veit ekki hvort hann fari með tii Grikklands, komist lagið alla leið. „Ég fer ef Silvía vill fá mig. Annar fylgist ég ekkert með keppn- inni, ég legg mig fram um að fylgjast ekki með Eurovision." Silvía er ekki einungis með ein- valalið tónlistarmanna, því búninga- hönnuðimir em lflca fyrsta flokks. Samkvæmt heim- ildum DV mun Ás- grimur Már Frið- riksson hanna bún- ,Ég er svona frels ari. Ég er að gefa afsjálfri mér. Ég fædd- ist til að frelsa þetta/' ing á Silvíu og em fimm til sex manns að leggja honum lið. Ásgrímur þykir einn af efnilegri tískuhönnuðum á íslandi. kjartan@dv.is Ovalarstaður Silvíu Silvla Nótt segist nú dvelja ! Aþenu að kanna að- stæður. Hún segist hafa fengið frábærar móttökur frágrísku þjóðinni. ] Nóg að gera Ásgrimur I Már Friðriksson mun vera I aðhanna kjól á Silvíu Nótt. 1 Hann þykir meö efnilegri | tískuhönnuðum landsins. f tn V \*i Ekki fyrir Silvíu Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson segir ■ Silvíu hafa„rippað“laginu af I sér og ákveðið að syngja það í undankeppninni. \ Bakraddir Fyrrverandi I Furovision-farinn Sigríður I Beinteinsdóttir mun syngja 1 bakraddir fyrir Silvíu nótt, I samkvæmtþvi sem heyrist | úr herbúðum Silvíu Nóttar. I Allt fyrir peningana SölviBlön- I dalsegist ekki fylgjastmeð I Eurovision. Hann segir Silvíu hafa I boðið sér fúlgur fjár til þess að I hjálpa til við upptökurá laginu | hennar. Því gat hann ekki hafnað. j Sviðsframkoma Silvía Nótt I segir Selmu Björnsdóttir ekki j vera að hjáipa sér með sviðs- I framkomu. Þvert á móti sé hún | að hjálpa Selmu að lita vel út. Sigurviss Silvla Nóttskellti upp úr þegar blaðamaður spurði hana hvort hún þyrfti ekki fyrst að vinna keppnina hér heima áður en hún fseri til Orikklands.__________„__________ Uppselt ákatíe Melua Uppselt er á stórtón- leika söngkonunnar Katie Melua í Laugardalshöll þann 31. mars. Söngkonan á greinilega marga aðdá- endur á íslandi, því í fyrra var plata hennar í fjórða sæti yfir mest seldu er- lendu plötur á landinu. Katie er aðeins 21 árs og að sögn Einars Bárðarson- ar, sem stendur að komu söngkonunnar til íslands, hlakkar hún mikið til þess að skoða náttúm landsins. Bob Dyl- an-kvöld á Gauknum Á fimmtudaginn verður haldið sérstakt kvöld, til- einkað Bob Dylan, á Gauki á Stöng. Það er sagt að Tri- bute-kvöldin klikki aldrei á Gauknum og það er eins gott að allt sé í lagi, þegar goðsögn í lifandi lífi, sjálf- ur Bob Dylan, er tekinn fyrir. Gamlir rokkhundar og laglausir eldri karlmenn ættu því að fjölmenna á Gaukinn til þess að upplifa < ósviknaBob- stemn- ingu. Margrét datt fyrst út Margrét Guðrún Gunn- arsdóttir, 17 ára mær, var sú fyrsta til að detta úr 12 manna úrslitahóp í Idolinu. Margrét söng lagið Rescue Me eftir Fontellu Bass og þurfti að yfirgefa svæðið eftir að þjóðin hafði kosið. Margrét fékk langt í frá verstu dómana af hópnum og stóð sig nokkuð vel. Páll Óskar Hjálmfysson sagði við Margréti að sumir tónar hefðu einfaldlega verið falskir, en að hún hefði bætt það upp með frábærri sviðsframkomu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.