Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2006, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDACUR 3 7. JANÚAR 2006
Lífið DV
Jón Gunnlaugur Viggósson er nýr herra ísland. Hann segist harma hvernig mál-
um Ólafs Geirs Jónssonar og Feguröarsamkeppni íslands lyktaði. Hann segist þó
líta á björtu hliðarnar.
Hljómsveitin Kimono sem dval-
iö hefur í Berlfn undanfarfð
leggur í tónleikaferðalag um
Evrópu f byrjun febrúar. Strák-
arnir ætla að
hefja ferða-
lagið hér í
heimahög-
um og spila
því f Þjóð-
leikhúskjallar-
anum á
fimmtudaginn
næstkomandi.
Sérstakir gestir
verða á tónlelkunum, Jak-
obínarfna, en sú hljómsveit hef-
ur gert það gott undanfarið.
Tónleikarnir hefjast klukkan 22
og kostar litlar 750 krónur inn.
Daginn eftir spila þeir piltar í
Tónlistarþróunarmiðstöðinni
ásamt I adapt
^ Hættlrmeð ^
klámið
Tenglasfðan geimur.is sem not-
ið hefur grfðarlegra vinsælda
netverja hefur hætt að benda á
| tengla sem falla f flokkinn 18+,
og eru f flestum tilvikum tengl-
ar inn á klámsíður. í tilkynningu
frá eigendum vefsíðunnar segir
að þeir vilji heldur bjóða upp á
ferskt og skemmtilegt efni og
að þeir bjóði nú barnaland.is og
femin.is velkomna í hóp not-
enda. Vinsælasta tenglasíða
landsins, b2.is, heldur þó áfram
að benda á dónalega tengla.
r Púmakóng- ^
urinn er ekki á
leið í Herra
ísland
Þrátt fyrir ftrekaðar áskoranir
hefur Birgir Fannar Pétursson
ákveðið að taka ekki þátt í feg-
urðarsamkeppninni Herra fs-
land 2006 en hann hefur fengið
fjölda áskorana á heimasíðu
sinni 123.is/pumaking. Birgir
þykir Ifklegur arftaki
Gillzeneggers en hann þykir
ákaflega Ifkurtéðum Birgi.
Gillzenegger er ekki af baki
dottinn en kappinn er að gefa
; út bók ásamt þvf að þátturinn
hans á sjónvarpsstöðinni Sirkus
hefst 30. janúar.
/------\
„Það var bara hringt í mig sama
kvöld og Óli var sviptur titlinum, rétt
áður en tilkynningin var gefin út,“
segir Jón Gunnlaugur Viggósson, nú-
verandi herra ísland. Jón endaði upp-
haflega í öðru sæti keppninnar, en
hefur nú hlotið titilinn eftir að Ólafur
Geir Jónsson var sviptur honum. Að-
standendur keppninnar gáfu út yfir-
lýsingu þar sem segir að Ólafur Geir
hafi ekki uppfyllt skilyrði um heilbrigt
lífemi og góða fyrirmynd. Ólafur gaf
svo seinna frá sér yfirlýsingu þar sem
hann sagðist harma þessa niðurstöðu
og að honum fyndist hann ekki hafa
brotið af sér.
Harmar hvernig fór
„Þetta er náttúrulega spennandi
fyrir mig," segir Jón Gunnlaugur
um það vera orðinn herra Island.
„Auðvitað harma ég hvernig fór og
mér finnst þetta leiðinlegt fyrir Óla
hvernig samskiptum hans og að-
standenda keppninnar lauk, en ég
verð náttúrlega að líta á björtu hlið-
arnar í þessu rnáli." Jón Gunnlaug-
ur segir að framhaldið sé alveg
óráðið. „Ég á eftir að fara á fund og
þá kemur allt í ljós varðandi fram-
haldið."
„Ég hef alveg farið í einhverjar
myndatökur en það hefur ekkert
verið svaðalega mikið að gera," segir
Jón um það að hafa lent í öðru sæti
keppninnar á sínum tíma. Ætli það
muni ekki verða meira að gera hjá
kappanum eftir að hafa tekið við titl-
inum eftirsótta.
Reiprennandi í þýsku og
rekur fyrirtæki
„Ég rek fyrirtæki með föður mín-
um," en faðir Jóns er Viggó Sigurðs-
son, landsliðsþjálfari í handbolta,
sem er um þessar mundir með
landsliðinu út í Sviss. „Fyrirtækið
heitir versla.is og er lagersala. Við
seljum alls kyns hreinlætisvörur frá
Kína og öðrum Asíulöndum og það
gengur bara vel," segir Jón um við-
skipti þeirra feðga.
„Ég var í þýsku í háskólanum, en
þar sem ég tafa reiprennandi þýsku
fannst mér það ekki nógu spenn-
andi." Jón bjó í nokkur ár í Þýska-
landi þegar Viggó faðir hans þjálfaði
þar. „Ég stefni nú á að fara í við-
skiptafræði og ég ætla að reyna að
taka nokkra kúrsa í viðskiptafræð-
inni f haust, en annars er það nú
frekar góður skóli að reka fyrirtæki,"
segir Jón Gunnlaugur Viggósson,
nýkrýndur herra ísland.
asgeir@dv.is
[ Viðar Ingi Péturs
son Nýrþátta-
stjórnandi í Helvítis
morgunþættinum.
Þorkell Máni Péturs-
son Segir Gunnar Sig-
urðsson hafa blindast
affrægöinni.
brotthvarfinu úr Helvítis morgun-
þættinum. „Gunni bara breyttist eft-
ir að hann varð einn af Strákunum.
Hann heldur bara að liann sé næsti
Logi Bergmann." Þorkell segist þó
viss um það að hinn gamli góði
Gunnar sem hann þekkir muni snúa
aftur. „Ég veit að Gunnar á eftir að
koma aftur niður á jörðina og vera
með okkur hinum, en hann svífur
svolítið núna,“ segir Þorkell Máni út-
varpsmógúll.
„Þetta er bara först tæm sko,“ seg-
ir Viðar Ingi Pétursson, nýr þátta-
stjómandi í Helvítis morgunþættin-
um á X-inu 977. „Það em svona tvær
vikur síðan ég byrjaði," en Viðar tók
við af liinum geðþekka Þorkeli Mána
Péturssyni sem er þaulvanur út-
varpsmaður. „Það var verið að breyta
til á X-inu og ég og Gunni þekkjumst
ágætlega og þetta æxlaðist bara
svona." Viðar er ekki í fullu starfi sem
útvarpsmaður og segist aðhafast við
hin ýmsu verk. „Hitt og þetta sko, at-
hafhamaður skulum við segja." Viðar
er nokkð sáttur við byrjunina og seg-
ir að það sé ýmislegt á döfinni. „Þetta
er allt að fæðast hjá okkur. Við erum
að fara af stað með framhaldsleikrit
og jafnvel fleira leikið efrú," segir Við-
ar Ingi Pétursson, nýjasti meðlimur
Helvítis morgunþáttarins.
„Það var bara ekkert hægt að
vinna með Gunnari lengur," segir
Þorkell Máni um ástæðu sína fyrir