Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2006, Qupperneq 12
72 ÞRIÐJUDACUR 31. JANÚAR 2006
Fréttir DV
Aðhald
á ísafirði
í liðinni viku hafði Lög-
reglan á ísafirði afskipti af
þremur ökumönnum
vegna hraðaksturs að því er
fram kemur á bb.is. Sá sem
ók hraðast mældist á 110
km hraða á klst. á Hnífs-
dalsvegi, þar sem hámarks-
hraði er 80 km á klst. Lög-
reglan hefur að undan-
förnu verið með öflugt eft-
irlit með hraðakstri og mun
halda því áfram, ekki síst í
ljósi veðurfarsins. Reynslan
er sú að þegar færðin batn-
ar eykst ökuhraðinn.
Þrírdrukknir
Nær samtímis á aðfara-
nótt sunnudagsins var Lög-
reglan á Selfossi kölluð í þrjú
verkefni þar sem ölvaðir
menn voru til vandræða. Eitt
tilvikið var við félagsheimilið
Stað á Eyrarbakka, annað við
félagsheimilið Þingborg í
Hraungerðishreppi. Lög-
reglumenn unnu farsællega
úr þessum málum að því er
fram kemur á sunnlenska.is.
Þriðja tilvikið var við
skemmtistaðinn Pakkhúsið á
Selfossi. Þar var maður sleg-
inn niður. í fallinu lenti mað-
urinn utan í húsvegg og fékk
hnykk á bakið en kalla varð
til sjúkrabíl.
Egill Skalli í
brúðuleikhús
Einn mesti kappi íslend-
ingasagnanna, Egill Skalla-
grímsson, hefur öðlast nýtt
líf í brúðulíki. Um þetta má
lesa í fundargerð menningar-
nefndar Fjarðabyggðar sem
barst erindi frá Brúðuleik-
húsinu Sögusvuntunni með
tilboði um að sýningin yrði
sett upp í skólum hins aust-
firska sveitarfélags. „Um er
að ræða brúðuleik um Egil
Skallagrímsson og hans
fólk,“ segir í fundargerðinni
og þar er tekið fram að sýn-
ingin kosti 45 þúsund krón-
ur. Fól menningamefndin
skólunum sjálfum að ákveða
hvort Egill Skallagrímsson
verði settur þar á fjalim;ir.
Raul Rodriguez Cardona sem rekur Mamas Tacos ætlar að borga Sabrinu Casa-
dei launin sem staðurinn skuldar henni. Hann segir að ástæðan fyrir þvi að
launamálin hafi dregist sé vegna misskilnings og lélegrar stjórnunar meðeiganda
hans sem hann sé núna búinn að rifta samningi við. Maðurinn sá segist hins veg-
ar aldrei hafa verið meðeigandi heldur aðeins starfsmaður.
D\T 25..
- *•
Rau! Rodriguez Cardona
Seqir að uni misskilning sé að ræða.
,Ég mun borgq
Sabrínu
samin lauri."
„Ásakanir Sabrinu eru gjörsamlega rangar,“ segir Raul
Rodriguez Cardona, sem rekur staðinn Mamas Tacos í mið-
bæ Reykjavíkur. Sabrina Casadei ásakaði Raul um að borga
henni ekki þriggja mánaða laun. Sabrina sagði í viðtali við
DV að hún hefði margoft haft samand við Raul og beðið
hann um að borga sér þessi laun og Raul hefði ítrekað lofað
henni laununum en hún aldrei fengið krónu fyrir vinnu sína.
„Þetta er ruglingur hjá
stúlkunni," segir Raul Rodriguez
Cardona um ásakanir Sabrinu Casa-
dei um að hann haf! ekki borgað
henni laun fyrir vinnu hennar á veit-
ingastaðnum Mamas Tacos.
Raul segir að hann hafi aldrei
komið nálægt fjármálum Mamas
Tacos. Þau hafi annast þáverandi
meðeigandi hans að staðnum. Sjálf-
ur hafi hann aðeins séð um að
tryggja góðan mat og vera á staðn-
um til þess að tryggja að allt væri í
lagi. Það er Raul sem á leyfið fyrir
nafni Mamas Tacos.
Ekki ábyrgur
„Ég er andlit staðarins þannig að
það er eðlilegt að hún tali um mig í
þessu samhengi,“ segir Raul sem er
þekktur sem einkaþjálfari ásamt því
að vinna á Mamas Tacos.
Raul fullyrðir að meðeigandinn
fyrverandi sé ábyrgur fyrir starfs-
mannahaldi og launamálum. Sjálfur
sé hann því ekki ábyrgur fyrir van-
greiddum launum Sabrinu. Raul
segir að hann sé búinn að rifta
samningi við félaga sinn vegna þess
að hann hafi ekki staðið sig og leiti
nú að öðrum félaga.
Mun borga
„Ég mun borga Sabrinu umsam-
in laun," segir Raul þrátt fyrir allt.
Raul bætir við að hann hafi sjálf-
ur lent í svipuðum aðstæðum og
skilji vanvirðinguna sem fýlgi því að
fá ekki borgað fyrir sína vinnu sem
og fjárhagslegu vandræðin sem
menn geti lent í. Hann segir það sið-
ferðislega skyldu sína að borga Sabr-
inu. Honum þyki afar leitt að hún
hafi ekki fengið launin sín. Vanda-
málið hafi verið fólgið í því að hann
hafi unnið með röngu fólki.
Enginn meðeigandi
Þegar leitað var til meðeigandans
sem Raul vísaði til kom hann af fjöll-
um og sagðist aldrei hafa verið með-
eigandi fyrirtækisins. valur@dv.is
Sabrlna Casadei Verður vistaðlifaí voninni.
Sonja Haralds lætur ekki bugast í hungurverkfallinu
„Þaö errifandi gangurá öllum
sviðum," segir Aðalsteinn
Þorsteinsson, forstjóri
Byggöastofnunar á Sauöár-
króki.„Maöur erað reyna að
ástunda útivist og heilbrigt lif-
erni. Hér er skíðaaöstaðan ein
sú besta i landinu; það er snjór
nánast allt árið íTindastóli. Og
Landsíminn
þorra-
blótanna. Menn geta valið úr
mörgum. Gömlu hrepparnir
sem voru hérfyrir sameiningu
halda ennþá hver sitt þorra-
biót. Það er því ekki eitt stórt
þorrablót fyrir alla - sem mér
finnst reyndar vera galli."
Sonja búin að svelta sig í 67 daga
„Englar guðs eru í kringum mig
og halda mér gangandi", segir Sonja
Haralds öryrki sem er búin að vera í
hungurverkfalli í 67 daga til að krefj-
ast bættra kjara öryrkja og ellilífeyr-
isþega. Sonja segir að hún sé farin að
venjast því að borða ekki neitt og
það eina sem hún nærist á séu
ávaxtasafar. Einstaka sinnum fær
hún sér einnig egg.
„Það versta er að geta ekki sofið
og ég er oft andvaka heilu næturnar
en ég er ekki á leiðinni að gefast upp
og ætla mér ekki að hætta í hungur-
verkfallinu fyrr en eitthvað verður
gert til að bæta kjör öryrkja og ellilíf-
eyrisþega."
Sonja segir að hún sé búin að
missa 20 kfló síðan hún byrjaði í
hungurverkfallinu og að ónæmis-
kerfi hennar sé orðið veikt því hún er
með stöðugt nefrennsli alla daga.
Hún fer lítið út úr húsi nema til að
8. desomber 2005
kaupa hunda- og kattamat
en Sonja á einn kött og
einn hund sem halda
henni félagsskap og veita
henni styrk í baráttu sinni
við kerfið. „Ég heyri ekki í
nokkrum manni og ráða-
menn landsins hafa ekki
sett sig í samband við
mig né þeir sem ég er
búin að skrifa til að vekja
athygli á málstað mín-
um. Ég skrifaði bréf og
sendi um daginn til Jó-
hönnu Sigurðardóttur,
Ögmundar Jónassonar
og Steingríms Sigfús-
sonar en hef ekki fengið nein svör
frá þeim ennþá."
Sonja segir að hún sé að skrifa
kvikmyndahandrit um spámanninn
Elía og einnig er hún búin að skrifa
um 160 ljóð sem fjalla á einn eða
Sonja Haralds og sonur hennar
Axel Björnsson Sonja er tilbúin að
% láta Hfið fyrir málstað öryrkja og
ellilífeyrisþega.
■c-.Æ!
hátt um
annan
mannréttindamál.
„Það er engin uppgjöf í mér og ég
læt ekki bugast og andlega er ég
ennþá sterk því styrk fæ ég frá Guði
en það er ástæða fyrir því að hann
vill að ég gangi í gegnum þetta allt
saman. Eg trúi því að þessi barátta
muni skila árangri á endanum þótt
það kosti mig lífið," segir Sonja að
lokum og vonast tfi að heyra fljót-
lega frá ráðamönnum um hvað þeir
hyggist gera í málefnum öryrkja og
ellfiífeyrisþega.