Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2006, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2006, Page 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 2006 DV Fréttir Sýningaþjálfun retriever og terrier Sýningarþjálfun fyrir Retriever hunda verður sunnudagana 12. 19. og 26. febrúar kl. 17 í reiðhöll Andvara á Kjóavöllum fyrir ofan Garðabæ og kostar kr. 500 skiptið. Á sama stað er Terrierdeildin einnig með sýn- ingarþjálfun fyrir sína meðlimi en byrja einni helgi fyrr eða þann 5. febrúar. Aðrar deildir hafa ekki auglýst sýninga- þjálfun en hundaeigendur eru hvattir til að hafa samband við tengiliði sinna deilda og spyrjast fyrir. Kom í leitirnar eftir sex ár Kötturinn Colin sem hvarf frá heimili sínu og eiganda, Emmu Phillips í Barkingside Essex fyrir sex árum, kom í leitirnar fyrir skömmu. Colin lenti á vergangi og lenti í fé- lagskap villikatta þar til hann var handsamaður og komið fyrir f kattaathvarfi. Þar var lesið á örmerkið í hálsi hans og síðan haft samband við Emmu sem þekkti sinn kæra vin samstundis þrátt fyrir að hann væri rifin á eyra og allur í svörtum doppum í fram- an. Ekki þarf að spyrja að um fagnaðarfundi var að ræða og Colin liggur.nú á melt- unni heima hjá sér og nýtur þess að þurfa ekki lengur að veiða sér til matar. Bergljót Daviðsdóttir skrifar um dýrin sln og annarra á þriðjudögum í DV. 50% Afsláttur af öllum kattavörum Nutro choice þurrfóður fyrir ketti 30% afsláttur af öllum öðrum gæludýravörum TOKYO HJALLAHRAUNl 4 HAFNARFIRÐI SÍMI 565 8444 Muna að skrá á sýmnguna Síðasti skráningardagur fyrir marssýningu Hundaræktarfé- lags íslands, er á föstudaginn 3. febrúar næstkomandi. Þann dag verður skrifstofan opin til klukk- an 18:00. Auk þess er hægt að skrá hunda til þáttöku í gegnum heimasíðu félagsins hrfi.is og greiða þátttökugjald með greiðslukorti. Rétt til þátttöku hafa hundar sem skráðir eru í Hundaræktarfélag íslands eða félög viðurkennd af HRFÍ. Eins og á öðrum viðburðum á vegum félagsins er skilyrði fyrir þátt- töku að árgjald viðkomandi fé- iagsmanns sé greitt. Lítil svört læða Þessi sæta svarta og hvíta læða fannst við Túngötuna í Reykjavík fyrir helgi. Hún er greinilega ekki fullvaxin en var ómerkt og ekki heldur eyrnar- merkt. Eigendur hennar geta snúið sér til Kattholts og sótt hana þangað. Á heimasíðu Katt- holts www. kattholt.is geta þeir sem tapað hafa kisunum sínum leitað, en allir þeir kettir sem þangað koma eru jafn óðum myndaðir og upplýsingar um þá settar á síðuna. Stefnumótaþjónus fyrir páfagauka Olga og bætir við að það sé þeim mjög mikil- vægt að parast, að öðrum kosti verði þeir einmana og langt niðri. Þannig sé mörgum páfagaukum farið sem hangi einir í búri allan dag- inn. Því sé svo miklvægt fyrir þá að eignast maka. „Fuglamir eru rétt eins og mannfólkið, mis- jafnlega fljótir að verða ást- fangnir. Sumir við fyrstu kynni en aðrir taka allt upp í þrjá mán- uði að finna þann eina rétta," segir frúin. Terrier blendingstíkin Fluffy litla slapp út um bakdyrnar á heimili sínu í Fellunum og fannst ekki þrátt fyrir leit. Til hennar spuröist daginn eftir en þá hafði kona kom- ið með hana á Dýraspítalann í Víðidal. Enginn veit hins vegar hvar konan býr. Krist- ína Haraldsdóttir eigandi Fluffy biður konuna að hafa samband við sig. Fuglafræðingur í Berlín sem opnaði fyrir skömmu stefnu- mótaþjónustu fýrir einmana páfagauka, segir meira en nóg að gera. Svo mikið að fulgafræð- ingurinn, Rita Ohnhauser, hefur þegar komið saman 1.300 ein- manna fuglshjörtum. Hún segir ólíklegt að nokkurt þeirra eigi eftir að skilja fyrr en dauðinn sjálfur geri það, þar sem fuglar eru þeim eigin- leikum gerðir að velja sér maka fyrir lífstfð. „Úti í náttúr- unni para fuglar sig þannig að þeir eru sam- an allt lífið og það sem meira er, parið sér ekki af hverju öðru svo mikið sem mínútu á meðan bæði lifa,“ segir Fluffy tvnd hjá konnnni sem fann liana „Hún heitir Fluffy og er aðeins átta mánaða en hún slapp út um bak- dymar á laugardaginn fyrir rúmri viku síðan," segir Kristína Haralds- dóttir eigandi Fluffy sem er blanda Terriers og íslendings. Kristína segir að heimilisfólkið hafi allt farið að leita en ekki fundið Fluffy. Daginn eftir frétti hún síðan af henni en þá var hún búin að spyrjast fyrir á öllum stöðum sem hún gat látið sér detta í hug. „Mér létti óskaplega að vita að hún væri á h'fi," andvarpar hún en sfðasta vika hefur verið Kristínu og fjölskyldu erfið. Miði með símanúmeri finnanda tapaðist Þegar ég hafði samband við Dýra- spítalann í Víðidal til að kanna hvort einhver hefði komið með slasaðan En til allrar ólukku þá týndist miðinn með símanúmeri konunnar og enginn á spítalnum vissi hvar hún á heima. Það eina sem þau vissu var að kona bjó í blokk og hafði ekki aðstöðu til að hafa hana. hund þá ff étti ég af konu sem þangað kom með hund sem var áræðanlega hún. Konan kom tii að láta vita að Fluffy væri hjá henni og hvar hægt væri að ná í tíkina ef eigandinn spyrði eftir henni. En til allrar ólukku þá týndist miðinn með símanúmeri konunnar og enginn á spítalnum vissi hvar hún á heima. Það eina sem þau vissu var að kona býr í blokk og hefur ekki aðstöðu til að hafa hana. Kristína segist vera að auglýsa eftir Fluffy í annað sinn en enginn hafi gef- ið sig fram í gær um miðjan dag. „Það var ekki aðeins símanúmerið hjá þeim í Víðidal sem klúðraðist, því konan lét lögregluna líka vita og lýs- ingin passaði við Fluffy, en þar finnst ekkert skráð og engin veit hvar konan býr," segir Kristina sem hefur miklar áhyggjur af hundinum sínum og ótt- ast að konan hafi gefist upp á að hafa hana og sé búin að gera einhvetjar ráðstafanir. „Við söknum hennar alveg ógur- lega og höfum miklar áhyggjur af henni. Fluffy er mjög skemmtileg tík, smá að vexti og það vilja allir eiga hana sem komast í kynni við hana. En ég vona að konan sem kom með hana á Dýraspítalann lesi þetta og hafi samband við okkur," segir hún. 1» Fluffy hefur verið týnd í rúma viku Eigandinn fréttiaf henni hjá konu sem fann hana en enginn veithvarhún býr. nauðsynlega Þetta er ekki í fyrsta sinn sem fólk sem finnur hunda og tekur þá til sín er í vandræðum með að koma þeim til sinna heima. Þess vegna er svo áríðandi að allir hafi hundana sína örmerkta og merkta með hálsól svo ekkert fari á milli mála. Eins vantar einhvern einn stað sem tekur við til- kynningum um taþaða hunda en svo virðist sem lítið þýði að hafa samband við lögreglu. Þar er sjaldnast nokkuð skráð niður. Oft eru finnendur smeykir við að hafa samband við hundaeftirlitið vegna kostnaðarins sem fylgir því. Það þarf nauðsynlega athvarf eins og Katt- holt fyrir hunda sem tekur við öllum þeim hundum sem týnast og hægt er að ganga að þeim vísum. Kristina er í síma 866-2280 og 898-5300. Þeir sem vita hvar Fluffy er niðurkomin eru beðnir að láta hana vita en hún bíður heima, óttaslegin um að Fluffy sé sé horfin henni með öllu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.