Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2006, Qupperneq 38

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2006, Qupperneq 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 2006 Síöast en ekki síst DV Rétta myndin Veldi tilfinninganna. Sigurvegari f móðurfaðmi. DV-mynd Pjetur. Birgitta Haukdal á útsölu Birgitta Haukdal er komin á útsölu í Hagkaupum. Dúkka, sem gerð var eftir söngkonunni vinsælu, fæst nú á aðeins fimm hundruð krónur en upphaflegt verð hennar var 3.999 krónur fyrir jólin 2004 þegar hún kom fyrst á markað. Birgittu-dúkkan vakti tölu- verða athygli og var meðal ann- ars kynnt í vinsælum sjón- rrjri varpsþætti Gísla rT V.Tl Marteins Baldursson- ar í Ríkissjónvarpinu. Þar mætti Birgitta sjálf með dúkk- una og hlógu þau Gísli Marteinn mikið að uppátækinu. Salan gekk þó ekki eins vel og vonast hafði verið eftir. Skýrir það ef til vill að heilt bretti með Birgittu-dúkkunni stendur nú úti á miðju gólfi í leikfangadeild Hagkaupa í Kringlunni. „Eg var lengi að ákveða mig hvort ég ætti að leyfa þetta eða _ ekki. Eitt er víst að ég verð eng- inn milljónamæringur á þessu," sagði Birgitta Haukdal í viðtali við DV daginn sem dúkkan var fyrst kynnt. „Auðvitað er það skrýtið að vera orðin dúkka og líklega á ég aldrei eftir að venjast því," bætti hún við. En nú er tækifæri til að eign- ast eintak. Og það fyrir lítið. Fyrstir koma, fyrstir fá. Hvað veist þú um Snorra Stein Buðjónsson 1. Hvað hefur hann skorað - mörg mörk á EM í Sviss? 2. Með hvaða liði lék hann á íslandi? 3. Með hvaða þýska liði leikur hann? 4. Hvað heitir íþróttafrétta- maðurinn sem er faðir hans? 5. Hver valdi hann fyrst í landsliðið? Svör neðst á síðunni Hvað segir *• mamma? „Hún hefur alltafverið af- skaplega heilsusamleg," segirDúfa Skarphéðins- dáttir, fóstur- móðirLilju Kjalarsdóttur Iþróttakonu. „Húnermjög skipulögö og mikið fyrir mmmmmmmm^^^m hreyfinguna. Hún smitar hið góða út frá sér. Hún hefur alltaf verið mjög orkumiki! og svo er hún alltafl fótbolta og er mjög góö. Hún hefur alltafverið yndisleg við mig og á það til að draga mig I ræktina en ég er ekki nógu dugleg Iþessu. Annars er hún alveg frá- bær og dugieg I öllu sem hún tekur sér fyr- irhendur." Oúfa Skarphéðinsdóttir er fóstur- móðir Lilju Kjalarsdóttur, sem þykir ein glæsilegasta fitness drottning Is- lands og spilar fótbolta með Stjörn- unni. Lilja er Ifka að klára lífefna- fræði í Háskóla fslands og stefnir á doktorsnám í Bandarfkjunum að prófum loknum. FLOTT hjá Bubba Morthens að lofa þjóðinni hárígræöslu. Hann myndi ekki tapa örðu afþokka fyrir vikiö. Svön 1. Hann hefur skorað 29 mörk í þremur leikjum. 2. Hann lék með Val.'3. Hann leikur með Minden. 4. Það er Guðjón Guðmundsson. S. Það var Guðmundur Guðmundsson. Mikið meir, Geir Mætir margfelt öflggri eð ári „Höfðaði ekki nóg til hommanna? Ég þyki nú með flottan rass. En ég er bara ánægður með þetta allt. Kannski var minn aldurshópur of mik- ið á þorrablótum þetta kvöld. Og gömlu konumar á Grund ekki komn- ar með gemsa," segir Geir Ólafsson söngvari. Hann veltir því nú fyrir sér af hverju hann komst ekki áfram í úrslitakeppni Eurovision-forkeppn- innar. Geir hefur haft uppi stór orð um að hann ætíi sér að hafa sigur í þess- ari keppni fyrir íslands hönd. En þeir sem greiddu atkvæði sáu ekki möguleikana - líkt og íslendingar vilji bara ekki hafa sigur í þessari keppni. „Við höldum alltaf að allir „fQi“ það sama og við," segir Geir. En það er mikill misskilningur. „Við erum svo aftarlega á merinni. Emm að keppa við þjóðir sem em búnar að vera með músík í fimm hundmð ár. Með fullri virðingu fyrir öðmm keppendum en ég var einn og átti svið- ið. Leika ekki margir eftir að henda míkrófóninum í loftið og grípa, með rétta tímasetningu, undir svona mikilli pressu. Þeir vilja töffara í Eurovision. Þeir vilja ekki eitthvert væmið lið." Geir er hvergi nærri af baki dottinn og boðar komu sína að ári marg- falt sterkari. Og ætíar lengra þá. Og ætíar að rífa meiri kjaft. Hann segir að þetta heiti söngvakeppni og því sé eðlilegt að koma fram sem íþróttamaður sé og stefna hátt. „Ég kem sterkur eftir ár með reynslu og ldára keppnina. Já, þetta er í fyrsta skipti sem ég er að taka þátt. Ég læri afþessu." Söngvarinn vill hrósa sérstaklega þeim sem standa að keppninni og segir allan aðbúnað til mikillar fyrirmyndar. Og óskar íslendingum alls hins besta í keppninni. Telur, þrátt fyrir ailt, að næststerkasti flytjand- inn muni fara út til Grikklands. En hann er ekki bjartsýnn á gott gengi. „Því miður. Ég stend við það sem ég segi: Við munum, eftir keppn- ina, standa í sömu spomm og við emm í nuna. Þó ég voni það besta." jakob@dv.is Eurovision þarf töffara, ekki vellukjóa Geirætlar að mæta reynslunni rlkari að ári og taka keppnina með trompi. Gamli tíminn „Ég var að vinna hjá handritastofnun þegar þessi mynd var tekinn," segir Guðni Kolbeinsson þýðandi. Gamla myndin var tekin af honum í febrúar 1981 þegar Skarðsbók var ljósrituð fyrir Árnastofnun. Skarðsbók er gömul lögbók sem Árni Jóns- son fann einmitt í Skarði á Vestfjörðum og dregur hún nafn sitt þaðan. „Vera mín þarna útskýrist af því að ég var hálfgerður snattstrákur í vinnunni," segir Guðni Kolbeinsson, sem sat inni í prentsmiðju með þjóðararfinn í fanginu og bar saman við nútímatæknina og gamla tímann þegar bókinn var ljósrituð. mætir þeim nýja Guðni segir aið nokkuð vel hafi tekist því ljósritið náði ákveðnum blæ sem erfitt er að ná. „Þetta var mjög skemmtilegt svo ég tali nú ekki um að þetta var ákveðið braut- ryðjendastarf í þessum geiranum." Sverrir Kristinsson, sem átti bókaút- gáfuna Lögberg prentaði bókina, og segir Guðni í gríni að hann hafi nú sennilega ekki orðið ríkur á þessu því Skarðsbók var er ekki beinlínis bókin sem hvert heimili á. „Maður taldi sig nú stóran mann þegar ég var að þessu," segir Guðni hlæjandi að lokum. — l«H„IH,áli,I.UJ Krossgátan 1 ■ m i Véðrið Lárétt: 1 fjöldi, 4 kústur, 7 hreykni, 8 aðsjáll, 10 sigaði, 12 deila, 13 eyktamark, 14 ástarguð, 15 stúlka, 16 Iftill, 18 orku,21 brotna,22 blað, 23 stuðningur. Lóðrétt: 1 háð, 2 hæðir, 3 skammhlaup, 4 dæg- urlagsins, 5 hratt,6 þreyta, 9 hænum, 11 veiðarfæri, 16 ánægð, 17 ker, 19 bakki, 20 venju. Lausn á krossgátu ■1 I ° & “ 7Z‘P tjZ^ /. \ ae: é * * t < eis 07 'iej 6 L 'nury /1 '|æs 91 '||on 11 'iunjnd 6 '!CM 9>W9 S 'sueje6e|s þ 'jojmnejjs g 'es? z 'sA6 t ntajggn •gojs £Z 'jne| zz 'eujojq iz 's|je gt 'j?ujs 91 'jæuj g t 'jouiv Þ L 'njJ9 £ l '66e z l 'iwe o l 'Jeds 8 'jjojs l 'U9S Þ 'se|6 i :u?J?n 0fc) OCb .. |

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.