Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2006, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 16. MARS 2006
Fréttir DV
Páll er duglegur sómamaður
auk þess að vera afburðafræði-
maður og meistarakokkur.
Gallar hans er erfítt aö fínna
nema þann að honum skuli
detta I hug að yfírgefa Há-
skólann.
„Páll er mikill sómamaðurog Ijúf-
menni. Hann er duglegur og vit-
anlega vet að sér í lögfræði. Ég hef
reyndar aldrei smakkað matinn
hans en veit að hann er
sagður mikill meistara-
kokkur. Ég kæmi ekki
auga á neinn galla
þótt ég legði mig allan
fram."
Viðar Már Matthíasson, varaforseti laga-
deildar.
„Páll ber að mínu mati höfuð og
herðar yfir islenska fræðimenn á
sviði lögfræðinnar. Hann er ávallt
faglegur ívinnubrögðum og hef-
ur óvenjumikla sérþekk-
ingu á mörgum mála-
flokkum. Auk þess að
vera afburðafræðimaður
hefurhann fæturna
ávallt á jörðinni. Þannig
hefur hann í störfum sinum
margsannað hæfni sína til að
koma augaá lausnir sem í senn
hafa reynst fræðilega réttár og
praktískar."
Sigrún Jóhannesdóttir, forstjóri Persónu-
verndar.
„Páll Hreinsson ereinn afokkar
bestu kennurum og fræðimönn-
um. Það væri mikil eftirsjá að
honum í hæstarétt þó
svo að mér finnist hann
sannarlega vel að þeirri
stöðu kominn, bæði
vegnayfirburða fag-
þekkingar, en einnig
vegna heiðarleika hansog rétt-
sýni. Hans versti galli er að hon-
um skuli detti í hug afyfirgefa há-
skólann."
Margrét S. Björnsdóttir, forstööumaður
Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórn-
mála hjá Háskóla íslands.
Páll Hreinsson, forseti lagadeildar Háskóla ís-
lands er fæddur 20. febrúar 1963. Páll hefur
kennt vlð lagadeildina frá árinu 1991 og var
ráðinn prófessor árið 1999. Páll starfaði sem
aðstoðarmaður umboðsmanns Alþlngisfrá
1991-1997.Frá 1992-2001 var hann skipað-
ur af forsætisráöherra, dómsmálaráðherra
og iðnaðarráðherra í nefndir er sömdu m.a.
frumvörp til stjórnsýslulaga, upplýsingalaga,
lögræðislaga, barnalaga, frumvarp til laga
um breytingu á stjórnsýslulögum, frumvarp
til laga um Orkustofnun og fslenskar orku-
rannsóknir. Páll er einn afþeim sem sótt hef-
ur um embætti dómara við Hæstarétt ís-
lands.
Glæsilegt úrval af
handsmíðuðum
íslenskum
skartgripum
/LÁRA')
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 10
sími 561 1300
Litháíska maflan er að þenja eiturlyfjamarkað sinn út til Skandinavíu, Bretlands
og íslands. Þrír menn eru í gæsluvarðhaldi hér á landi vegna stórfells innflutnings
á amfetamíni í vökvaformi á síðasta framleiðslustigi. í lok febrúar var Litháinn
Romas Kosakovskis handtekinn á Keflavíkurflugvelli með tæplega þrjá lítra af am-
fetamíni í vökvaformi.
Litháiska mafían á íslandi getur hundraðfaldað hagnað sinn á inn-
flutningi á amfetamíni til íslands frá Litháen. Þrír menn eru í gæslu-
varðhaldi vegna innflutnings á amfetamíni í vökvaformi á lokastigi
framleiðslu. Virðist litháíska mafían ekki víla fyrir sér að senda
burðardýr til íslands þar sem hagnaðarvonin er svo mikil að þrátt
fyrir að einn og einn Lithái náist í Leifsstöð komast aðrir inn í land-
ið með amfetamín sem hundraðfaldast í smásölu á íslandi.
Fíknieíhalögreglan í Litháen tjáði
DV í gær að eitt gramm af am-
fetamíni kostar í Litháen 1,5 evrur,
130 krónur, ef það er keypt í miklu
magni. Heimildarmaður DV segir að
gramm af amfetamíni á íslandi seljist
á 4.500 krónur. Grammið er því 35-
falt dýrara á íslandi en í Litháen.
Samkvæmt áreiðanlegum heimild-
um DV eru tengsl á miUi litháísku
mannanna þriggja sem eru í gæslu-
varðhaldi vegna ólöglegs innflutn-
ings á amfetamíni í vökvaformi. Virð-
ast mennimir flytja efnið í vökva-
formi á lokastigi en ljúka framleiðslu
eihisins hér á landi og selja það síðan
í duftformi og stórgræða á viðskipt-
unum.
Mikil framleiðsla amfetamíns í
Litháen
„Við vitum að skipulagt am-
fetamínssmygl er frá Litháen til ann-
arra Evrópulanda," segir Nerius
Donauskas, rannsóknarlögreglu-
maður í fíkniefnadeild lögreglunnar í
Vilníus, höfuðborg Litháen. „Lög-
reglan hefur lokað á undanfömum
ámm nokkmm verksmiðjum sem
framleiða amfetamín en okkur virðist
framleiðslan engu að síður enn vera í
gangi því núna á sunnudaginn náð-
um við 20 kílóum af amfetamíni,“
segir Donauskas.
Grammið kostar 130 krónur
„Ef amfetamín er keypt í miklu
magni fæst grammið á 1,5 evmr en
gangverðið á smásölumarkaðinum
er um fimm til sjö evmr. Þetta er
svarar það um 18 kílóum af am-
fetamíni á markaði á íslandi þegar
búið er að drýgja það. Söluandvirði
18 kílóa af amfetamíni á íslandi em
81 milljón krónur.
Hagnaður á innflutningi
af 6 lítrum af amfetamíni:
Söluverð á amfetamíni í Litháen
= 130 krónurgrammið
1 lítri af hreinu amfetamíni
= 3 kíló í smásölu á íslandi
6 lítrar af hreinu amfetamíni
= 18 kíló af amfetamíni í smá-
sölu á (slandi.
6 lítrar af hreinu amfetamíni
kosta í Litháen 780.000 krónur
18 kíló af amfetamíni í smásölu
á íslandi kosta 18.000 x 4.500
grammið = 81.000.000.
meðal annars ástæðan fyrir því að
eiturlyfjahringirnir hér í Litháen
sækja til annarra Evrópulanda því
verðið þar er mun hærra,“ segir
Donauskas. Hann segir að margir Lit-
háar séu handteknir í Svíþjóð og Nor-
egi þegar þeir reyna að smygla am-
fetamíni til landanna og oftast fari
þeir akandi með eiturlyfin falin í bíl-
unum. Segir Donauskas að neysla á
svokölluðum tilbúnum eiturlyfjum
eins og amfetamíni hafi aukist mjög
mikið í Litháen. Lögreglan í Reykjavík
tjáði DV að neysla amfetamíns á ís-
landi hafi einnig aukist mjög mikið.
Er því nokkuð ljóst að stór
markaður er fyrir amfetamín-
ið sem litháíska mafían flytur
til íslands.
Litla-Hraun lúxushótel
Samkvæmt litháískum
heimildarmanni DV sem býr á
íslandi virðist það ekki hræða
Litháana sem koma til ís-
lands með ftkniefiú að
verða handteknir því
þeim hefur verið sagt
hvemig aðbúnaður
fanga á Litía-Hrauni
er og það sé í sum-
um tilfellum betra
að vera á Litía-
Hrauni en í fá-
tækt f Litháen.
Heimildarmað-
ur DV segir að
burðardýrin
sem litháíska
mafían á íslandi
notar séu menn sem hafa enga at-
vinnu og búa við bág kjör í landi sínu.
Gæsluvarðhald framlengt
Samkvæmt Sveini Andra
Sveinssyni, lögffæðingi
Arvydas Maciulskis, mun lög-
reglan að öllum likindum sækja
um framlengingu á gæsluvarð-
haldsúrskurði hans sem
rennur út á morgun.
Arvydas var hand-
tekinn snemma í
febrúar í tengsl-
um við handtöku
Sáulíusar Prúsin-
skas á Keflavíkur-
flugvelli en hann
var með þrjá lítra
af amfetamíni í
vökvaformi. Alls
hafa náðst 6 fitrar
af amfetamíni í
vökvaformi á Kefla-
víkurflugvelli á ein-
um mánuði og sam-
Rakarastofa hættir eftir 105 ára rekstur
Gulli rakari burtaf Kirkjutorgi
Guðlaugur Jónsson sér fram á að
þurfa að hætta að klippa og snyrta
viðskiptavini sína á hársnyrtistof-
unni Nikk við Kirkjutorg 6 áður en
langt um líður. Húsnæðið hefur ver-
ið selt og nýir eigendur eru með
aðrar hugmyndir en þær að reka þar
áfram hársnyrtistofu.
„Mér skilst að eiginkona nýja
eigandans ætíi að vera með ein-
hverja starfsemi hérna," segir Guð-
laugur Jónsson, betur þekktur sem
Gulli rakari. „Ég er búinn að vera
hér samfleytt í 20 ár og eitt er víst, ég
fer ekki úr 101 nema að hafa vega-
bréfið með mér," segir Gulli sem
þegar hefur fengið tilboð um hús-
næði fyrir stofu sína en ekki litist á:
„Ég veit ekki hvernig ég bregst
við en ég er sallarólegur," segir
hann.
Gulli hefur klippt marga af burð-
arstólpum samfélagsins reglulega
undanfarin ár og nýtur þar nálægð-
ar sinnar við Alþingishúsið. Guðni
Ágústsson landbúnaðarráðherra er
til dæmis fastagestur á stofunni hjá
honum við Kirkjutorg. Fleiri
þingmenn og ráðherrar sóttu
þangað litun og klippingu, en
Guðlaugur var jafnan þögull sem
gröfin um hvaða þarfir kúnnar hans
hefðu og leit svo á að trúnaðar-
samband klippara og kúnna væri
heilagt. Þá hefur Gulli greitt ítölsku
leikkonunni Sophiu Loren og er þá
fátt eitt nefnt.
Rakarastofan við Kirkjutorg
hefur verið fastur staður fjölda
kúnna af öllum stéttum frá því hún
var stofnsett 1901. Lengi deildi
Guðlaugur húsi með Hauki
Óskarssyni.
Gulli þarf að yfirgefa Kirkjutorgið
samkvæmt samningi 1. ágúst næst-
komandi.
Guðlaugur Jónsson við Kirkjutorg 6 Þarna hefur verið rekin rakarastofa í 105 ár. Þvl tlmabili lýkur 1. ágúst. V/v" :* : / j,
\U£1