Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2006, Síða 15
BV Sport
MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2006 15
Nistelrooy eða
Henry til Inter?
Massimo Moratti, eigandi
ítalska stórliðsins Inter Milan,
sagði í gær að hann vildi fá ann-
aðhvort Thierry Henry eða
Ruud van Nistehooy til liðsins í
sumar. Hann viðurkenndi þó
að það væri raunhæfara að
reyna að fá Nistehooy til liðsins
en sem stendur er hann ekki í
náðinni hjá Sh Alex Ferguson,
stjóra Manchester United.
„Munurinn á þeim tveimur er
að ég veit að Nistehooy er ekki
ánægður í Manchester." Henry
er sem stendur í viðræðum um
nýjan samning við Arsenal en
hefur verið þrálátlega orðaður
við Barcelona.
McLarentil
Renault?
Sterkur orðrómur er á kreiki
um að Juan Pablo Montoya
muni ganga til liðs við Renault á
næsta ári. Femando Alonso
hefur þegar samþykkt að fara til
McLaren að loknu núverandi
tímabili en enn er óljóst hvort
Kimi Raikkönen eða Montoya
eigi að víkja. Samningur
Renault við aðalstyrktaraðila
liðsins rennur út í haust og
stendur tii að semja við
spænskt símafyrirtæki sem er
með stóran markað í Suður-
Ameríku. Myndi ekki skemma
fyrh ef ein aðalstjama liðsins
væri há Suður-Ameríku.
Kjartan með
slitin krossbönd?
Kjartan Agúst
Breiðdal er
sennilega með
slitin kross-
bönd í hné eft-
h að hafa
meiðst í leik
gegn Breiðabliki í
deildarbikarkeppninni fyrr í
mánuðinum. Yrði þetta enn eitt
áfallið fyrir Fylkismenn sem
hafa misst marga leikmenn í
gegnum árin vegna krossbands-
slita. Óttast var fyrr í vetur að
félagi hans, Hrafiikell Helgason,
hefði slitið krossbönd í hné
öðm sinni en betur fór en á
horfðist. Kjartan fer í nánari
skoðun í næstu viku þar sem
meiðslin koma betur í ljós.
nm AFÞ 19.15 G (/{) í úrslita v Express
ESSU rindavík-Keflavík ikeppni Iceland !-deúdar kvenna.
19.50 Chelsea - Newcastle í ensku bikar- keppninni í beinni á Sýn.
21.50 Útsending ffá leik Reaf Madrid og Real ' Zaragoza í spænsku úr- valsdeildinni á Sýn.
iG'í 'O' rjóNVfPPff? 22.20 Handboltakvöld á RÚV.
Guðjón Valur Sigurðsson er sem fyrr markahæsti leikmaður þýsku úrvalsdeildar-
innar. Um helgina átti hann stórleik með liði sínu, Gummersbach, er hann skor-
aði þrettán mörk í 27-26 sigri liðsins gegn Kronau/Östringen. Þar af skoraði hann
ellefu mörk í fyrri hálfleik og lagði þannig grunninn að sigri liðsins.
Hans-Peter Krámer, formaður þýska úrvalsdeildarliðsins
Gummersbach sparaði ekki stóru orðin eftir að hafa horft upp
á íslenska landsliðsmanninn Guðjón Val Sigurðsson skora
þrettán mörk í 27-26 sigri liðsins á Kronau/östringen um helg-
ina. Guðjón Valur var í sérklassa í leiknum og skoraði ellefu af
sínum þrettán mörkum í fyrri hálfleik.
„Hann er bestu kaup Gummers-
bach í áraraðir," sagði Kramer.
„Hann er eldfljótur og er svo vel
stemmdur í leikjunum að aðrir leik-
menn smitast af keppnisskapi
hans."
Leikmenn Gummersbach voru
ekki með á nótunum í upphafi
leiksins og lentu 5-2 og 9-5 undir.
Guðjón Valur tók til sinna ráða og
fór fyrir sínum mönnum sem tókst
að jafna metin í lok háffleiksins.
Staðan var þá 14-14 og hafði hann
skorað ellefú marka sinna manna. í
síðari hálfleik tók Gummersbach
völdin í leiknum og lenti aldrei
undir. Og þótt aðeins hafi munað
einu marki í lok leiksins var sigur
Gummersbach þó öruggari en töl-
urnar gefa til kynna. Leikmönnum
Kronau/Östringen tókst aldrei að
jafna aftur leikinn eftir að staðan
var 16-16. Tæplega sautján þúsund
áhorfendur voru á leiknum.
í gærkvöldi lék Gummersbach
gegn botnliðinu Delitzsch en úrslit
leiksins voru ekki ljós þegar blaðið
fór í prentun.
Ekki allt mér að þakka
„Ég stend ekki einn á bak við öll
þessi mörk. Allir í liðinu eiga þátt í
þeim árangri sem liðið hefur náð,“
sagði Guðjón Valur í samtali við
þýska netmiðilinn Sportl í gær. Þar
segir hann að honum og hans fjöl-
skyldu líði vel í Gummersbach. „Já,
mjög vel. Eldri dóttir mín gengur í
skóla hér og líkar okkur mjög vel
vistin hér."
Hann er einnig spurður um
möguleika liðsins á að vinna þýsku
deildina og þó svo að bæði Flensburg
og Kiel séu ofar í töflunni vill Guðjón
Valur ekki afskrifa neitt. „Við verðum
þó að treysta á að bæði félög misstígi
sig í þeim leikjum sem eftir em í
deildinni."
Guðjón Valur er því næst spurður
hvaða markvörður sé honum erfið-
astur í þýsku úrvalsdeildinni þar sem
hann er markahæstur með 196 mörk
í 24 leikjum. „Ég vil eiginlega segja
sem minnst um það. Ég er reyndar
svo einbeittur að því sem ég er að
gera þegar ég skýt að markinu að mér
er eiginlega alveg sama hver stendur
í markinu."
Kljaic pínir okkur
Alfreð Gíslason tekur við þjálfun
liðsins sumarið 2007 en fram að því
stýrir Króatinn Velemir Kljaic lið-
inu. Hann segir að honum semji vel
við Kljaic. „Hann hvetur menn til
dáða og gerir vel grein fyrir því
hvernig hann vill að málunum sé
háttáð. Hann á það til að pína okkur
á æfmgum en hann slakar líka
stundum á, þegar það á við.“
Suður-kóreska skyttan Yoon
hefur þegar sagt að hann muni yfir-
gefa Gummersbach í sumar og seg-
ir Guðjón Valur það vera mikla
synd. „Okkur hefur alltaf samið vel
og vorum við aldrei í neinni sam-
keppni innan liðsins. Liðið væri
eflaust sterkara næstá tímabil með
hann innanborös." eirikurst@dv.is
Guðjón Valur Sigurðsson
Heilsar hér dóttursinni eftir
leik með íslenska landsliðinu
á EM i Sviss fyrr i vetur.
I Fer í sumar Suður-kóreska
I stórskyttari Yoon mun yfir-
1 gefa Gummersbach I sumar.
I „Synd,"segir Guðjón Valur.
Stjörnuleikur þýsku úrvalsdeild-
arinnar verður haldimi annaðhvort
þann 5. eða 7. júní næstkomandi í
höfuðborginni Berlín. Skiptir það
litlu fyrir þá íslensku og sænsku
handboltamenn sem eiga mögu-
leika á að taka þátt í leiknum því
þeir verða sennilega allir að undir-
búa sig fyrir landsleik þjóðanna
sem fer fram 10. júní í Globen-höll-
inni í Stokkhólmi. Leikurinn er sá
fyrri af tveimur í umspili liðanna
um laust sæti á HM í Þýskalandi á
næsta ári.
Stjörnuleikurinn mun saman-
standa af þýska landsliðinu annars
vegar og úrvalsliði erlendra leik-
manna deildarinnar. Þar kemur
Guðjón Valur Sigurðsson sterklega
til greina, enda markahæsti leik-
maður deildarinnar. Þeir Snorri
Steinn Guðjónsson og Róbert
Gunnarsson áttu einnig ágæta
möguleika að verða kallaðir til en
þeir hafa báðir staðið sig vel með
' sínum liðum í vetur.
Leikurinn verður fyrsti próf-
steinn þýska landsliðsins fyrir HM á
næsta ári. Þjóðverjar verða þá á
heimavelli og er krafa heimamanna
að liðið standi uppi sem sigurveg-
ari. Dregið verður í riðla á HM í júlf
næstkomandi, einnig í Berlín.
Sigri fagnað Róbert Gunnarsson verður upp-
tekinn með islenska landsliðinu erstjörnu-
leikur býsku úrvalsdeildarinnar fer fram.