Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2006, Qupperneq 31
DV Síðast en ekki sist
MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2006 31
Horfir þú mikið á sjónvarp?
Sjónvarpsgláp tekur
hugarró frá fólki.
„Það vill svo til að ég horfi litið á sjónvarpið.
Svona eina klukkustund á viku. Hefnóg
að gera. Sjónvarpsgláp tekur hugarró frá
fólki."
Helga Dögg Birgisdóttir.
„Mjög
lítið. Horfi
1 svona einn
tíma á dag. En
ekki á hverjum
degi."
Kristrún
Skúladóttir,
ellilífeyris-
þegi. y
Jg N
horfi ekki mikið
á sjónvarp
þessa dagana
þarsem loftnet-
iðerbilað.Það
myndi samt ekki
breyta miklu
þótt loftnetið
væri I lagi."
Guðrún Rós
Jónsdóttir. ,
„Svona
um lOtímaá
viku myndi ég
segja. Ég horfi á
Krónikuna, Inn-
lit/útlitog
fréttir."
Sigrún
Kaaber, ellilíf-
eyrisþegi.
Jg horfi
2-3 tíma á dag.
Er sátturvið það.
Horfi mest á
fréttir."
Aðalsteinn
Kristinsson,
ellilífeyrisþegi.
Hnakkinn Geir H. Haarde
„Gillzenegger er ung-
ur maður og fallegur.
Hann vaxar á sér bring-
una . GUIzenegger er
fallega sólstofubrúnn
og með flottar strípur. Hann
er semsagt flottur gæi,
Alla unga menn dreym-
ir örugglega um að
verða einsog hann.
Virðulegir alþingis-
menn þora ekki að játa
slíka drauma - opinberlega. Guð-
jón Hjörleifsson alþingismaður og
hrekkjalómur úr Vestmannaeyjum
er þó með strípur. Ég gruna hann
um að vaxa á sér bringuna en er
ekki viss um hvort hann lítur
á sig sem hnakka.
Gillzenegger er hins
vegar hnakki. í sum-
ar leið skrifaði
hnakkinn dálka í
DV. í þeim komu
fram viðhorf til
kvenna, sem ég myndi
ekki vUja að synir mínir tækju
upp - ef ég ætti þá. ílát var orðið
sem hann notaði gjarnan um
ungar stúlkur. Venjulegir
feður á Vesturgötunni fyllt-
ust í senn skelfingu og hryll-
ingi að lesa sumt sem hann
sagði um konur. í stuttu máli,
þá virtist Gilzenegger einkum
telja konur ígUdi kviganna sem
leidd eru undir þarfanaut í tUteknu
skyni.
Yfirvegað innlegg í
j afnréttisumr æðuna
Því kemur mér
GUzenegger í hug að
ég sá um helgina fory
mann Sjálfstæðisflokks-
ins á skjánum vera að
vandræðast með varnarmálin á
fundi hjá einhverju sem ber-
sýnUega var klúbbur inn-
vígðra og innmúraðra
ihaldskarla íValhöIl.
Þar var Geir spurður út í
samningaklúðrið sem
leiddi tU þess að Banda-
ríkjamenn brutu varna
samninginn. Formaður Sjálfstæð-
isflokksins taldi af því tUefni tíma-
bært að sýna þjóðinni innvols sálar
Össur Skarphéðisson alþingismaður, aka Dr. Spes, skrifar á
http://ossur.hexia.net/
sinnar. Það gerði ut-
anrikisráðherra
með yfirveguðu
innleggi í jafnrétt-
isumræðuna í Sjálf-
stæðisflokknum. Orðétt sagði leið-
toginn mikli - sem einsog Osama
Bin laden heldur sig yfirleitt í
felum:
Vitskertir flóðhestar
„Maður fær ekki alltaf það
sem maður vUl. Og þá
verður maður að vinna
úr þvi sem að maður
þá fær í staðinn. Maður
getur ekki alltaf farið
með sætustu stelpuna
heim af baUinu en stundum
kannski eitthvað sem gerir sama
gagn.“
En karlarnir í klúbbnum hlógu
einsog vitskertir flóðhestar.
Þeir höfðu aldrei heyrt neitt
eins smart og fyndið. Kanski
flokkurinn ætti að fá sálfræðing tU
að skoða inni bæði Geir og flóð-
hestana sem emjuðu af
hlátri yfir orðasnUld for-
mannsins sem loksins
var kominn úr felum
og farinn að tala við al-
menninginn í landinu.
Það samtal reyndist
semsagt á þessari banölu
flatneskju ómengaðrar kven-
fyrirlitningarinnar.
Hvað segja tíkurnar?
Hvað ætli vinkonur mínar i Tik-
unum segi um þetta framlag
formanns síns tU umræðunnar
um stöðu konunnar í Sjálfstæð-
isflokknum sem stundum geis-
ar einsog eldgos á síðumþeirra?
Hvað ætli þær hefðu skrifað marga
álnarlanga dálka um mig ef ég
hefði látið jafn ótrúleg um-
mæli um munn fara á opn-
um stjórnmálafundi?
Er þetta annars ekki 21.
öldin - minar elsk-
uðu Tíkur?
- Dr. Spes
Didda segir vita vonlaust að breyta húðlit og kynhneigð manna án
þess að eyðileggja manneskjuna
Freknur og réttlætiskenndin
Fyrstu meiriháttar hárrisin sem ég varð íyrir á ævi minni
held ég að hafi verið þegar séra King fór með ræðuna sína
um drauminn. Það var eitthvað svo stórkostlegt við þessi
orð og þennan þunga ósýnilega sannleika sem fyllti mig áf
heitri og undarlega magnaðri tilfinningu sem ég hef síðan
nefnt hjá sjálfri mér réttlætiskennd. Helst vildi ég næst-
um verða blökk til þess að það sæist hverrar skoðun-
ar ég væri, því skoðanimar sjást svo illa nema fólk
merki sig, en mér var sagt ungri að væri ég blökk
þá væri búið að hengja mig fyrir að finnast það
sem mér fannst.
Vel á minnst, ég las það einmitt einhvem tím-
ann að hefði ég verið uppi fyrir 400 árum þá væri
búið að brenna mig! Og átti útlit mitt að
ráða þar um. Alveg merkilegt hvað
freknur geta vakið með fólki sem vantar
að ráðast á einhvem. En ekki er ég
blökk og verð aldrei og þarf þess heldur
ekki til þess að finnast kynþáttamis-
munun Ul og manneskjunum til minnk-
unnar. Það má vera að rauða hárið og
freknumar hafi hreinlega skikkað mig til að skilja af-
stöðu blakkra, því það er sérstök og annarleg
reynsla að vera settur til hliðar vegna útlitsins,
útlits sem þú getur hreiniega ekkert gert að og
segir ekki neitt um þína mannkosti.
Ræðan um drauminn gefur mér enn þá þessa
líka mögnuðu tilfinningu þó svo að réttlætið í þess-
um málum sé ekki enn þá komið á land og gerist sjálfsagt
aldrei því eitthvað verður lýðurinn að hafa til þess að
teljasighafinnyfir.
Ég fæ líka miikinn réttlætisbríma þegar ég heyri
baráttudiskólagið „Ég er eins og ég er" sem gef-
ið var út fýrir Gay Pride fyrir nokkmm ámm.
Það minnir mig á ræðuna um drauminn
hans King, eins og það sé sprottið af sama
meiði og ég vona bara að það eigi sér jafn-
marga fylgjendur og réttindabarátta
blakkra.
Það er víst eins með samkynhneigð
og litarhátt, það er vita voniaust að ^ ’
breyta náttúmfari af
þessu tagi 'án þess
að eyðiieggja
manneskjuna,
og það hlýtur
að vera
„Vel
a mmnst, écr
Það einmitt
híffiT®rn tímann að
WíSBSfr
egf hvað freknnrÓeta
manneskjan \ a , -----—
sjálf sem við erum \ “fllflVern. **
að verja þegar við vilj-
um leiðrétta misrétti.
En hvað varðar samkyn-
hneigð þá hef ég helst orðið vör við að einstaka trúfélög geti
ekki áttað sig á sköpunarverkinu í heild sinni, og finnst það
eðlilegt að reyna að uppheíja sig og sínar kenningar útffá
einhverju skáidverki sem sjálfsagt var bam síns tíma, eins
og upphaf þróunarkenningarinnar var líka en hefur sem
betur fer verið uppfærð reglulega.
Trúarbrögð em líka mannréttindi og víst er ég til í að
veija rétt fólks til að hafa sitt bragð af trúnni, og það er rétt
að sagan er líka stútfull af misrétti sem á fólk var lagt vegna
skoðana þeirra á hver er guð. Og guð er eins og réttlætið,
ósýnilegur en samt trúa margir á hann eða hana eða hvem-
ig sem guðinn er, réttlætið sjálft hvomgkyn og af öllum
litum.
Einhvem tímann sá ég mann í sjónvarpinu
vima um krafta síns drottins og sagði að hann
hefði beðið guð að taka burt gyllinæðina sem
hann hafði, og sjá hún hvarf! Ég beið spennt eft-
ir að sjá sönnunargagnið, en það gekk ekki svo
langt því það dugði þeim sem vom í salnum
með honum að trúa orðum hans.
ntítwsto'®;'
550 5090
SEFUR ALDREI
Viðtökum við
fréttaskotum aflan
sólarhringinn. Fyrir hvert
fréttaskot sem birtist, eða
er notað í DV, greiðast
3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið í hverri viku
greiðast 7.000.
Fullrarnafnleyndar
er gætt.
Síminn er
*