Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2006, Page 21
DV Fréttir
MÁNUDAGUR 27. MARS 2006 21
Krútsjoff í spor Stalíns
Þennan dag árið 1958 varð Níkíta
Krútsjoff forsætisráðherra Sovétríkj-
anna. Krútsjoff var einnig aðalritari
Sovétríkjanna og varð fyrsti maður
síðan Jósef Stalín var við völd til þess
að gegna þessum tveimur embætt-
um á sama tíma.
Krútsjoff fæddist inn í fátæka
fjölskyldu í Úkraínu árið 1894. Hann
starfaði við námugröft áður en hann
gekk í kommúnistaflokkinn árið
1918. Krútsjoff vann sig svo upp í
flokknum óg 20 árum seinna var
hann gerður að aðalritara kommún-
istaflokksins í Úkraínu. Hann var
náinn samstarfsmaður Stalíns og við
dauða hans 1953 krækti Krútsjoff sér
í stöðu Stalíns sem aðalritari flokks-
ins,
Arið 1956 kom Krútsjoff átaki af
stað sem fól það í sér að afmá öll ein-
kenni stefnu Stalíns í Sovétríkjun-
um. Átakið var umdeilt innan
kommúnistaflokksins og kostaði
Krútsjoff næstum stöðu sína. En eft-
ir valdabaráttu innan flokksins sagði
Georgy Malenko, þáverandi forsæt-
isráðherra, af sér. Nicolay Bulganin
tók við af Malenko, en Bulganin var
nátengdur Krútsjoff. Krútsjoff tók
svo við af Bulganin, þennan dag
1958.
í utanríkismálum sagðist Krút-
I dag
áriö 1963 varö Skaga-
fjarðarskjálftinn sem
mældist 7 stig á Richter.
Hann fannst víða um
land en upptökin voru í
mynni Skagafjarðar.
sjoff sjálfur vilja veita vesturríkjun-
um friðsamlega samkeppni. En það
sem varð Krútsjoff hvað helst að falli
voru erfiðleikar í landbúnaðarmál-
um, óvinsæl endalok á Kúbudeil-
unni og minnkandi samstarf við
Kína. Honum var bolað frá völdum
14. október 1964. Eftir það bjó hann
fyrir utan Moskvu þar til hann lést
1971.
Or bloggheimum
Umboðsskrifstofan Island á Islandi
„...núna á Islandier verið að opna um-
boðsskrifstofu fyrir förðunarfræðinga,
stitista, Ijósmyndara og allskonar svona
fóik. Og jámm, mér
og vinkonu
minni úr
mac var
boðið
aðfá
samn-
ing við
þessa
umboðs-
skrifstofu
sem heitir
emm reykjavik!
Við erum svona tvíeyki og köllum okkur
égogég... Ykkur fmnst þetta kannski ekk-
ert spennandi en þetta er samt ótrúiega
kúl og opnar alveg fullt aftækifærum fyrir
mig og kristinu eddu hinn hetminginn
minn...!“
Helena Konráðsdóttir,
- helkon.blogspot.com
Hvilirsig í mátunarklefa
„Á laugardeginum mundi ég svo afhverju
maðurá ekki að drekka..ég varsvooooo
þreyttur að ég meikað ekki neitt. Fór með
Katy aö versla sem endaði nú með því að
við flutum með götunum og nenntum
ekki neinu. Katy
varnáttúr-
lega bara
snillingur,
hún var
orðin
svo
þreytt
og varð
að setj-
. ast.....stelp-
an dó nú ekki
ráðalaus og sótti sér
jakka I hm og fékk að fara inn í mátunar-
klefan....þegar ég var búin að máta stóð
ég fyrir utan hurðina hennar og beið, þeg-
ar ég var búin að biða ísmá tima bankaði
ég á hurðina og spyr hvort hún sé ekki að
verða búin. Hún opnaði hurðina og þar
sat hún íjakkanum alveg tilbúin efe-r
kæmi inn og ætlaði að bösta hana fyrir að
fara inn i mátunarklefa til þess að hvlla
sig"
Rakel Lind Hauksdóttir
- xrakelx.blogdrive.com/
Lesendur DV eru hvattir til að senda okkur tölvupóst á netfangið ritstjorn@dv.is og láta í Ijós skoðanir sinar á málefnum líðandi stundar.
fslendingar eru skattpíndir
Óskar Jónsson skrífar.
Þá er aftur komið að því að skila
skattskýrslunni. Á hverju ári kvíði ég
fyrir því að fá sendan í pósti álagn-
ingaseðil Skattstofunnar þann fyrsta
ágúst. Allt árið strita ég í vinnunni við
Lesendur
að afla tekna fyrir mig og heimili
mitt og næ oft ekki endum sam
an í lok mánaðar. Ég borga
skatt af laununum mínum
tæp 40 prósent, ég borga
virðisauka af matvömn-
um sem ég þarf að kaupa,
skatt af bensíninu á bílinn,
skatt af fasteigninni minni, skóla-
gjöld fyrir elsta son minn,
læknisvitjanir, lyf og annað
þegar einhver úr fjölskyld-
unni veikist. Ekki eyði ég í dýr
föt, skemmtanir eða tóbak en samt
tekst mér ekki að eiga fyrir þeim
reikningum sem ég þarf að
borga í hverjum mánuði! Við
erum skattpínd þjóð og það Hsrinarfjörðlir^
er sama hversu hátt hlutfall
af laununum okkar fer í skatta, alltaf
þurfum við samt að borga fyrir al-
menningsþjónustuna sem ætti að
vera ókeypis því við emm jú búin að
borga skatta sem eiga að fara í skóla-
kerfið, vegakerfið, heilbrigðiskerfið og
svo framvegis. Við emm ár eftir ár tek-
in í rassgatið af stjómvöldum sem
leyfa sér að gera það sem þeim sýnist
við peningana okkar, eyða þeim í
sendiráð og ferðakostnað fyrir ráð-
herra og þingmenn en ekki í
út M að borga fyrir okkur
lyf °g læknis-
ísafjöröur
kosmað þegar við eigum ekki fyrir
því. Ég er orðinn örmagna á því að
strita og uppskera ekkert, ég er orðinn
leiður á því að horfa upp á misréttið,
spillinguna, kaup og sölu á embættis-
stólum fyrir vini og fjölskyldur ráða-
manna. Ég skammast mín fyrir að
vera íslendingur.
\
siglilfjöröijr
0 0;.«x <•">
^Akureyri t
fíWfii '
€
V‘
Akranes^í"1-
Skattumdæmin
Egilsstaðir
f
«*Vesrmannaetfiar
Lesandi segir að hann sé þreyttur á að
horfa upp á spillingu ráðamanna sem
skattpína landann tilað eiga fyrirrisnu og
ferðakostnaði ráðherra og þingmanna.
daga reyklausa á veitingahúsum og
lofa fólki að reykja 2 daga. Á þurra
daginn kom enginn og veitingahús-
in lokuðu. Þetta myndi fara eins á
reyklausu dögunum, enginn myndi
koma og veitingamenn ættu því 5
daga í viku.
Reyklausir dagar?
J.M.G. skrifaði: Einu sinni var
þurri dagurinh. Það var miðviku-
dagurinn. Þá áttu þeir sem ekki
drukku vín að geta skemmt sér án
þess að vera fyrir ónæði af þeim sem
drukku. Hvemig væri hafa fimm
Lesendur
Svava
Sigbertsdóttir
mP
vonar að súkkulaði-
strákurinn hringi aftur.
Ballerínan segir
k
Vælandi í ssmann
Ég virðist vera meistari í því að
gera mig að fífli. Eins og um dag-
inn er ég var að tala við súkku-
laðistrákinn minn í símanum.
Verð að viðurkenna að ég er léleg-
asta símamanneskja f heimi og
þegar ég er að tala við einhvern
sem skiptir mig máli þá stressast
ég öll upp og ótrúlegir hlutir
koma út úr mér.
Jæja, byrjaði að tala við hann
um, í svona hálftíma, hversu
þreytt ég væri því það er svo mik-
ið að gera hjá mér. Hvernig lík-
aminn á mér væri að gefast upp. í
alvöru, ég sjálf myndi ekki nenna
að hlusta á svona væl, fmnst ein-
kennilegt að hann öskraði ekki
bara á mig og skeUti á. Og það
fyndna er að ég elska að hafa
svona mUdð að gera þannig að í
rauninni var ég líka að ljúga að
honum. Það er fáranlegt því
vanalega lýgur maður til að láta
sig líta betur út enn ekki verr.
AUavega, eftir að hafa kvalið
hann með sjálfsvorkunn í ár náði
ég að toppa sjálfa mig algjörlega
með því að fara að tala um hluti
eins og verkjalyf (veit ekki af
hverju) og þátt sem ég sá í sjón-
varpinu um spikfeita kellingu
sem var algjör dramadrottning,
kveinkaði sér yfir öllu. Og það er
algjör brandari hvað maður sér
ekki sjálfan sig því að ég sagði við
hann að ég hefði orðið að hætta
að horfa á þáttinn út af því það fór
svo í pirrurnar á mér hvað hún
vældi mikið... og ég sjálf nýbúin
að vera gera það við hann í sím-
anum... Ef hann myndi hafa
þetta eina sfmtal tU að dæma mig
út frá þá væri niðurstaðan sú að
ég væri sjálfhverfur vælukjói sem
étur pUlur eins og poppkorn
meðan ég horfi á niðurdrepandi
raunveruleUcaþætti. Og kvarta svo
yfir þeim. Eins gott að hann mun
hringja aftur. Eins gott.
I Árni Stefán
Jónsson Tók
nýlega við stöðu
formanns SFR.
Maður dagsins
Reynsla sem skilar sér
„Þetta eru ekki eins miklar
breytingar fyrir mig og fyrir ein-
hvern sem hefði ekki verið hér eins
og ég hef verið, ég hef starfað sem
framkvæmdastjóri á tímum þriggja
formanna," segir Árni Stefán Jóns-
son, formaður SFR.
Árni Stefán Jónsson tók nýlega
við stöðu formanns SFR. Hann
hefur verið framkvæmdastjóri SFR
f 16 ár og þekkir því aUt tengt félag-
inu betur en flestir. Tekur hann við
af J ens Andréssyni, sem hefur verið
formaður síðastliðin 10 ár. Lög fé-
lagsins kveða á um að formaður
megi ekki sitja lengur en tíu ár.
Árni er mjög spenntur fyrir
starfinu. „Við erum að klára stofn-
anasamninga, sem felst í því að við
gerum samning við hverja stofnun,
gerum ráð fyrir að þetta verið kom-
ið í gang þann 1. maí á þessu ári."
Ljóst var fyrir þó nokkru að Árni
Stefán yrði líklega formaður. Upp-
stillinganefhd lagði til að hann
myndi taka við starfinu. Árni er 55
ára og rafvirki að mennt ásamt því
að vera menntaður félagsmála- og
uppeldisfræðingur. Áður en hann
hóf störf sem framkvæmdastjóri
SFR hafði hann unnið sem trúnað-
armaður SFR meðal starfsmanna á
Unglingaheimili ríkisins en hann
hafði áður verið unglingafulltrúi
hjá Kópavogsbæ og félagsmála-
stjóri á Isafirði.
Árni hefur lengi verið talsmaður
verkafólksins og sést það augljós-
lega á vinnu hans hjá SFR, sem er
jú stéttarfélag í almannaþjónustu.
Á sama tíma og hann var kosinn
formaður var samþykkt ályktun
sem fagnar þeim ávinningi sem
felst í leiðréttingu sem nýlega var
gerð á launum og kjörum þeirra
sem lægst hafa launin hjá sveitafé-
lögunum. „Við erum að fara á fund
fjármálaráðherra að ræða þau mál
sem ætti að ræða nánar um, eins
og breytt viðmið í launum. Við
erum einnig að vinna með VR að
veita verðlaun fyrir stofnun ársins.
Látum alla okkar menn svara
hvernig þeim líður og síðan kemur
bara í ljós hver vinnur."
Árni erfæddur 19. desemberárið 1951 á Raufarhöfn og bjó þartil 12 ára aldurs
en þá flutti hann suður. Foreldrar hans voru Jón Þ. Arnason og Borghildur. Arni
er grunnmenntaður rafvirkl. Árið 1976 fór hann aö læra félagsmála- og uppeldis-
fræði við háskólann í Gautaborg og lauk hann því námi árið 1980. Kom heim arið
1981 og fór aö vinna hjá Unglingastofnun ríkisins þar sem hann starfaði til 1988
þegar hann varð félagsmálastjóri á fsafirði. 1988 til 1990 var hann unglingafull-
trúi í Kópavogi. Ariö 1990 tók hann við stöðu framkvæmdastjóra SFR og hefur
starfað við það síðan en tók nýlega við formennsku SFR af Jens Andréssyni.