Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2006, Qupperneq 13
DV Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 2006 13
Snákur í
brokkolí
Hin enska Tina Cos-
by rak upp stór augu þegar
hún opnaði poka af brokk-
olíi sem hún keypti í stór-
markaði í Halstead í Essex.
I pokanum var snákur. „Ég
var að stinga hendinni nið-
ur í pokann, þegar ég sá allt
í einu snákinn með tunguna
úti." Farið var með snákinn
á dýraspítala í grenndinni.
Fyrirtækið Tesco, sem flutti
brokkoh'ið inn frá Spáni, gaf
Cosby sex þúsund króna
inneignarnótu og sendi
henni afsökunarbeiðni. Cos-
by hyggst fara fram á meira
en það og mun líklega fara
með málið fyrir rétt.
Jesús elskarekki
klámstjörnur
Prestamir Mike Foster
og Craig Gross reka söfnuð
sem berst gegn klámi. Sem
Mð í baráttu sinni ætluðu
þeir sér að prenta bibh-
ur með áletrun-
inni „Jesús elskar
klámstjömur."
Ætluðu þeir að
dreifa þeim á ráð-
stefnum sem haldnar em
í klámiðnaðinum. Þessar
bibhur fást aftur á móti ekki
JlUll-
%
prentaðar, því engin prent-
smiðja vill taka verkið að sér,
þykir áletrunin of dónaleg.
Prestamir em þó ekki af baki
dottnir og segjast vissir um
að þetta muni hafast að lok-
um.
London of
hættuleg
Skólayfirvöld í Flór-
ída hafa ákveðið að banna
lúðrasveit Fort Myers gagn-
fræðiskólans að fara í ferð
til London því borgin þyk-
ir of hættuleg. „Hvað ger-
ist ef krakkamir setjast í lest
sem er sprengd í loft upp?
í Bandaríkjunum em lest-
ir aldrei sprengdar," segir
Bob Weismann, einn af yf-
irmönnum fræðslumála-
nefndar Flórída. Krakkam-
ir í lúðrasveitinni em ósáttir
með ákvörðunyfirvalda og
vilja að eitthvað verði gert í
málinu.
Kínversk stjórnvöld hafa nú sett reglur, sem koma í veg fyrir að Kínverjar fái að kjósa í
þætti sem svipar mjög til Idolsins hér á landi. Einnig eru yfirvöld óánægð með það hversu
stjarna sigurvegarans úr síðustu þáttaröð hefur skinið skært.
Aðdáendur Li Yuchen á sér
marga aðdáendur í
Kína, enda ein afvinsælustu
stjörnum landsins.
sínum að velja sér poppstjbnnu
Kínversk stjórnvöld hafa nú breytt reglum varðandi sjónvarps-
þætti til þess að þátturinn Supergirl Voice, sem svipar til Idolsins
hér á landi, geti ekki haldið áfram í óbreyttri mynd. Núverandi
fyrirkomulag er svipað og í shkum þáttum annars staðar í heim-
inum; áhorfendur hringja inn - eða senda sms - og kjósa þann
sem þeim þykir bestur. Yfirvöld í Kína vilja ekki að fólk fái að kjósa
og vilja ekki að stjörnur verði til á sjónvarpsskjánum.
Þátturinn hefur átt gífurlegum
vinsældum að fagna í Kína. Sigur-
vegarinn í fyrstu þáttaröðinni er
ung kona að nafni Li Yuchun. Hún
hefur farið eins og stormsveipur
um kínverskt samfélag. Myndir af
henni prýða nú auglýsingaskilti og
ungar stúlkur reyna að kæðast eins
og hún.
Samkvæmt áhorfskönnunum
horfðu um 400 milljónir manna á
fyrstu þáttaröðina, einn þriðji af
kínversku þjóðinni.
Skaðlegt fyrir sósíalískt
samfélag
í nýrri reglugerð frá útvarps-
ráði Kína kemur fram að þættir
eins og Supergirl Voice eigi að við-
halda sósíalískri samfélagsgerð.
„Svona þættir eiga ekki að skapa
ólæti neinskonar, mega ekki hafa
alla hluti eftir sinni eigin hentisemi
og eiga að komast hjá því að búa til
stjörnur," segir í nýju reglunum.
Einnig eiga þáttarstjórnend-
ur að viðhalda kínverskum gild-
um fyrir æsku landsins. Dómarar
í þáttunum mega ekki gera lítið úr
þátttakendum, eins og venjan er í
svipuðum þáttum á Vesturlöndum.
Einnig munu nýju reglurnar gera
sjónvarpsstöðvum erfiðara fyr-
ir með að senda slíka þætti út fýr-
ir héraðið sem sjónvarpsstöðin er
starfrækt í.
Ekki vitað um framhaldið
Li Li, upplýsingafulltrúi Hunan
sjónvarpsstöðvarinnar sem fram-
leiðir þættina vinsælu, vill ekkert
gefa upp um það hvort þátturinn
geti haldið áfram eftir að nýju regl-
urnar voru gefnar út. Beðið er eft-
ir nýrri þáttaröð með mikilli eftir-
væntingu. Margir vilja verða næsta
Li Yuchun, sem er nú orðin sjötta
ríkasta og vinsælasta stjarna Kín-
verja á lista sem tímaritið The For-
bes hefur gefið út.
Á spjallrásum í Kína má sjá
skilaboð frá reiðum Kínverjum.
Þeir hóta því að horfa ekki á þætt-
ina, í ljósi nýrra reglna.
ME5TA ÚRVAL
YFIRB URÐIR
Arnar Kristín
LANDSINS
Af GLÆSILEGUM HJÓLHÝSUM. HAFÐU SAMBAND VIÐ RÁÐGJAFA OKKAR NÚNAI
0*
ViKUR
w w w. vikurverh.is
TANGARHOFÐA 1 SIMI 557 7720