Freyr

Árgangur

Freyr - 01.03.1955, Blaðsíða 7

Freyr - 01.03.1955, Blaðsíða 7
FREYR 69 ÞÓRÐUR RUNÓLFSSON: Varizt slysin Grein sú, sem hér fer á eftir, er að mestu sam- hljóða tveim erindum, sem ég flutti í búnaðar- þætti útvarpsins á síðastliðnu hausti. Við samn- ingu erindanna studdist ég við ýmislegt, sem gefið hefur verið út um þessi mál hjá nágrannaþjóðum okkar. I síðari hluta greinarinnar er á nokkrum stöðum vísað til mynda í riti búnaðarfræðslunnar, „Varizt slysin“. Höf. Inngangur. Notkun dráttarvéla hér á landi á sér ekki langan aldur og segja má, að það sé ekki fyrr en eftir síðari heimsstyrjöldina, sem notkun þeirra verður almenn. Reynsla manna í meðferð þessara véla er því að vonum ekki mikil og töluverð brögð munu vera að því, að unglingar og jafnvel börn séu látin stjórna þeim. Það, að ung- menni eru notuð til þessara starfa, má ef til vill segja að sé skiljanleg ráðstöfun, þeg- ar tillit er tekið til fólkseklunnar í sveit- unum og þess, að starfið krefst ekki mikilla líkamlegra burða. Ég mun síðar koma að því, hversu heppilega ég tel þessa ráðstöfun. Hin hraða vélvæðing landbúnaðarins á síðustu árum krefst þess, að bændur temji sér nýjar starfsaðferðir í samræmi við véla- notkunina, svo nú þurfa þeir að kynna sér meðferð og notkun tækja, sem þeir ekkert eða lítið þekktu áður. Nokkur tími hlýtur því að líða þar til menn hafa hlotið nauð- synlega þjálfun í meðferð vélanna. Sam- fara þessari þjálfun er þeim nauðsynlegt að kynnast hættum þeim, sem vélanotkun eru ávallt samfara og að þeir læri jafnframt að varast hætturnar. Segja má, að nú, þegar við tökum vélarn- ar í þjónustu okkar, stöndum við betur að vígi en nágrannaþjóðir okkar, þegar véla- notkun hófst hjá þeim fyrir all löngu síð- an, því nú getum við notfært okkur þeirra reynslu og beitt þeim vörnum gegn slysa- hættunni, sem dýrkeypt reynsla hefur kennt þeim. Við getum því, ef rétt er á haldið, sparað okkur marga þjáningadaga og mörg mannslíf með því að notfæra okk- ur reynslu annara. Hjá nágrannaþjóðum vorum á Norður- löndum hafa farið fram all ýtarlegar rann- sóknir á orsökum slysa í sambandi við notk- un dráttarvéla og að þeim rannsóknum loknum margvíslegar ráðstafanir verið gerðar til þess að koma í veg fyrir slysin. Segja má, að aukin fræðslustarfsemi hafi reynzt einna áhrifaríkust í baráttunni við slysahættuna. Veltihættan. Ein af algengustu slysaorsökunum í sam- bandi við akstur dráttarvéla má hiklaust telja hliðarveltu vélarinnar. Gerðir drátt- arvéla eru æði margar og stöðugleiki þeirra í akstri er jafn margvíslegur og tegundirn- ar eru margar. Breidd dráttarvélarinnar, hjólastærð og lega þungamiðjunnar hefur allt áhrif á stöðugleikann. Þegar ekið er á ósléttu landi, í hliðarhalla eða á bökkum skurða eða árfarvega, ber sérstaklega að hafa veltihættuna í huga. Að tefla á tæp- asta vað og notfæra möguleika, sem fyrir- fram verður séð að ekki séu alveg öruggir, getur haft hinar alvarlegustu afleiðingar. Veltihættan er all mikil, þegar dráttar- vélin dregur þungan vagn, sérstaklega ef hemlabúnaður er enginn á vagninum. Mest er hættan þegar ekið er undan brekku og beygja er í brekkunni. Þegar ekið er um beygjuna, þrýstir vagninn skáhalt á drátt- arvélina og getur þá svo farið, að vélin skriki til, þannig að hún snúist þvert á veg- inn og velti. Ekki hafa svo fá slys orðið með þessum hætti og ætti það að hvetja menn til þess að hafa hemlabúnað á vögnum, sem dregnir eru af dráttarvélum, einkum er þetta þó nauðsynlegt ef aka þarf niður brekkur með þungt hlass. Algeng veltiorsök er það, ef ökumaður- inn notar hemlana til að létta stýringuna

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.