Freyr - 01.03.1955, Blaðsíða 11
FREYR
73
— Bréf frá
Eimlestin flutti mig áleiðis frá Hamborg
til Jótlands. Ég horfði út um gluggana á
víxl. Þarna voru bændabýli báðum megin
brautarinnar, svo langt sem séð varð. Öll
voru þau mjög smá, byggingar litlar og
ekki ósjálegar; bar allt augljósan vott fá-
tæktar. Landið illa ræst, skurðir litlir,
barmafullir og víða sá í vatn, bæði á akur-
spildum og hinum litla bithagareitum.
Þarna sá ég þó gömlu beðaslétturnar, sem
einu sinni tíðkuðust heima, og vatn í hverri
laut milli beðanna. Auðvitað er þetta eftir
tniklar haustrigningar. Sá bústofn, sem ég
kom auga á, voru gæsir, hænsn og nokkr-
ir grísir á beit. Á nokkrum stöðum sá ég kýr
Jótlandi —
úti, ein, tvær eða þrjár á býli; var þó lítið
á að beita, rennblautt land og snöggt. Á ein-
um stað sá ég 4 kýr og voru 2 þeirra með
breiðslur yfir sér.
Það sem mest vakti athygli mína, voru
skjólbeltin og limgirðingarnar, bæði á
milli býla og um smáreiti. Allt var þetta
heldur smávaxið og hor í gróðri.
Þegar kom norður um Kílarskurð, virtist
allt heldur vera á batnandi leið. Heldur
stærri býli og ræktun og framræsla betri,
þó að augljóst væri, að ekki væri nógu vel
framræst, enda er landið lágt og blautt. Við
Flenzborg verður landið betra og þurrara
og dálítið hólótt. Fara nú býlin stækkandi,
Útsýn af brúnni yfir Kielarskurðinn um sveitabyggð n ágrennisins. Ljósm.: G. K. 1953