Freyr - 01.03.1955, Síða 13
FREYR
75
svínin vegin, en aðeins brugðið á þau máli
aftan við bógana og sýndi málbandið þyngd
fallsins í kg. Þegar dýrið hafði náð þeim
rétta þunga, 90 kg lifandi, var það merkt
með breiðu, rauðu striki yfir herðakamb-
inn. Voru svo öll þau merktu tekin og ekið
með þau í sláturhúsið. Þessu var haldið á-
fram þar til öll höfðu náð þyngdinni.
Jóhannes bóndi sagði, að eftir 10 ár
mundi hver einasti bóndi í Danmörku hafa
þessa aðferð við hirðingu svína, því hún
bæri svo langt af, og einn maður gæti auð-
veldlega hirt 1000 sláturgrísi.
Þegar við höfðum skoðað allan búskap-
inn hjá Jóhannesi, drukkum við kaffi og
brennivín á hinn rammíslenzka hátt.
* * *
Það er sunnudagur í dag, 19. des. Ég er
staddur á bóndabæ. Hann heitir Skaarups-
gaard. Bóndinn, Jakob Priorgaard, er víð-
förull og vel menntaður bóndi; hefur hann
áður búið á Skáni, en seldi þann búgarð og
keypti þennan. Landstærðin er um 500 tn.
eða 250 ha. Hann er aðallega korn- og gras-
fræræktarmaður. Uppskeran í ár hjá hon-
um var 4000 tn af korni, sem hann seldi
á 50 kr. tunnuna, en ég veit ekki, hve mik-
ið hann seldi af grasfræi.
Hann hefur 4 dráttarvélar og eina 110
hestafla vél, sem getur
slegið kornið, þótt það sé
mjög lagst niður; skára-
breiddin er 10 fet.
Kornið þurrkar hann
ekki úti, heldur rennir
því gegnum olíuhitaðan
þurrkara, er svo kælt
niður í venjulegan loft-
hita og sekkjað síðan.
Allan tilbúinn áburð var
hann búinn að flytja
heim; voru það 180 tonn
af fosfór og kalí, en ég
veit ekki, hve mikið af
köfnunarefni.
Jakob bóndi er í þann
veginn að skipta um bú-
skaparhætti og fara yfir
á nautpeningsrækt, og
þá hiklaust nota laus-
göngufjós og láta dýrin sjálf sækja fóðrið,
en ekki að vera að bera það til þeirra. Hann
hefur lagt sig fram um að „stúdera" þessa
aðferð og heldur hann bæði ensk og amer-
ísk landbúnaðartímarit í því skyni. Jakob
sagði, að stærsti þröskuldur í vegi fyrir
danska bændur að fara inn á lausgöngu-
fjósin væru gömlu byggingarnar; það kost-
aði svo mikið að breyta þeim, að oft yrði
það sjálfsagðasta að byggja nýtt.
Mér varð hugsað heim. Við erum í óða
önn að byggja þessar stóru, þungu og rán-
dýru steinhallir yfir sauðféð. En framund-
an eru að líkindum miklar breytingar á
sviði heyskapar og heygeymslu, og þá ekki
síður á hirðingu og hýsingu búpeningsins.
Um stórbúskapinn og smábýlin sagði
hann þetta: „í dag verður stórbúskapurinn
að greiða 250 aura á klukkustund og 8 tíma
vinnu, meðan smábýlið greiðir eiganda sín-
um 50 aura á klst. og krefur 12—14 vinnu-
stundir á dag, því smábúskapurinn ber yf-
irleitt ekki vélavinnu.“
Eftir að við höfðum skoðað búskapinn hjá
Jakob, borðuðum við ósvikinn danskan dá-
degisverð, sem byrjaði með íslenzkri síld
og brennivíni.
Árósi 20. des. 1954
Ólafur Sigurðsson, Hellulandi.
Sveitabygging i Slésvik. Ljósm.: G. K. 1953