Freyr - 01.03.1955, Page 14
76
FREYR
ÓLAFUR E. STEFÁNSSON:
Nythæstu kýr
nautgriparæktarfélaganna
Skrá yfir nythæstu kýr nautgriparækt-
arfélaganna 1949 birtist í 22. hefti Freys
1951, og í 6. tölublaði sama rits 1954 birt-
ist skrá yfir nythæstu kýrnar árin 1950—
1952. Hér birtast samsvarandi tölur fyrir
árið 1953. Spjaldskrá er nú haldin yfir allar
kýr, sem eitthvert ár mjólka 20.000 fitu-
einingar, og er eftirfarandi listi miðaður
við það. Vitanlega væri æskilegt að halda
spjaldskrá yfir langtum fleiri kýr, en þess
er ekki kostur á vegum Búnaðarfélags ís-
lands vegna þess, hve tímafrek færsla slíkr-
ar spjaldskrár yrði. Er því hundruðum úr-
valskúa sleppt hér, en fjögurra ára afurðir
allra kúa, sem I. verðlaun hljóta á hverju
ári á nautgripasýningum, eru prentaðar ár-
lega í Búnaðarriti, og bætir það úr að
nokkru leyti.
Að minnsta kosti 3 fitumælingar mjólk-
ur verða að hafa verið gerðar á árinu úr
hverri kú til þess, að mjólkin sé lögð í fe
viðkomandi ár. Yfirleitt hafa 5 til 6 mæl-
ingar verið gerðar úr kúnum, sem hér eru
nefndar, en 10 til 12 mælingar úr einstök-
um kúm, sem hafa verið undir sérstöku eft-
irliti.
Fjöldi kúnna, sem mjólkað hafa yfir
20.000 fe síðustu árin, hefur verið þessi:
1949 14 kýr
1950 16 —
1951 12 —
1952 18 —
1953 52 —
Eins og skráin ber með sér, fjölgar mjög
nythæstu kúnum árið 1953, og er það í
samræmi við aðrar niðurstöður afurða-
skýrslna nautgriparæktarfélaganna frá því
ári, en meðalafurðir kúnna, hvort sem mið-
að er við fullmjólkandi kýr eða árskýr, hafa
aldrei fyrr orðið jafnháar i sögu nautgripa-
rœktarfélaganna og á 50. starfsári þeirra,
1953.
Af þessum 52 kúm, sem skráðar eru hér í
fyrri töflunni, hafa 32 mjólkað yfir 5000 kg
á árinu, en þess ber að geta, að margar aðr-
ar ágætar kýr ná einnig þeirri nythæð, þótt
lægri mjólkurfita eða ónógar upplýsingar
um mjólkurfitu valdi því, að þeirra er ekki
getið hér. Nythæsta kýrin (mjólkurmagn)
árið 1953 var Dumba 3 á Stóru-Völlum, sem
er 2. í röðinni á listanum. Efsta kýrin þar,
Rauðskinna 11 á Kanastöðum, er löngu
mjög vel kunn öllum þeim, sem fylgjast með
skrifum um skýrslur nautgriparæktarfé-
laganna í Búnaðarriti. Hún er af Klufta-
stofni, og eru komnar út af henni nokkr-
ar úrvals afurðakýr.
í seinni skránni, sem fylgir grein þess-
ari, er getið meðalársnytjar allra þeirra
kúa, sem á skýrslu hafa verið frá 1. burð-
ardegi og mjólkað hafa 20.000 fe eitthvert
árið frá 1949 til 1953 og eru á skýrslu árið
1953. Birtist samsvarandi listi einnig í 6.
tölublaði Freys í fyrra í grein þeirri, sem
áður er getið. Að þessu sinni eru alls 47 kýr
á þessum lista, en 28 árið áður, og eru þær
flestar einnig nú á listanum. Séu þær þar
ekki, merkir það, að skýrslur hafa ekki bor-
izt yfir þær 1953 eða þær eru dauðar.
Úr þessum hópi hafa verið drepnar aðeins
6 kýr ennþá. Meðalaldur þeirra hefur orðið
10.0 ár. Þær hafa að meðaltali átt 7.7 kálfa
og mjólkað í 8.0 ár. Meðalársnyt þeirra hef-
ur verið 3955 kg. Hafa þessar nytháu kýr
því mjólkað um ævina yfir 31.000 kg að
jafnaði og náð hærri aldri en íslenzkar kýr
ná að meðaltali.
Eins og sést á þessum seinni lista, hafa
fjórar efstu kýrnar mjólkað að meðaltali
yfir 20.000 fe á ári, síðan þær báru að 1.
kálfi. Efst þeirra stendur enn sem fyrr
Skjalda 64 í Hjálmholti, sem nú hefur
mjólkað alls 43.841 kg á 8.6 árum. Næstu
kýrnar þrjár eru allar mjög ungar og hafa
því verið mjög stutt á skýrslu, jafnvel svo
stutt, að eðlilegur geldstöðutími kemur ekki
í Ijós við útreikning í meðalársnyt, og verð-
ur hún því tiltölulega há. Þó má segja, að
þessar ungu kýr fari mjög vel af stað sem
mjólkurkýr, og eru þær allar kostgóðar.