Freyr - 01.03.1955, Page 20
82
FREYR
miklu hesta eða þá dráttarvélar. Máli sínu til stuðn-
ings vitnar hann í þessu sambandi í athuganir, er
Gunnar Bjarnason hrossaræktarráðunautur hefur gert
á þessum vettvangi, t. d. á fóðursparnaði, er yrði á
því að nota smærri hesta, í stað hinna stóru.
Mr. Urquhart fer viðurkenningarorðum um íslenzka
hestinn og birtir myndir af honum með grein sinni.
IFAP NEWS
febrúarhefti þessa árs, gettir þess að Canadabúar
yfirvegi innflutning sauðfjár frá Islandi til hánor-
rænna stöðva í Canada og hafi sérfræðingar þar áhuga
á þessum málum. Freyr hefur grennslast um hvort
málaleitan um þetta hafi borizt hingað og tjáir sauð-
fjárræktarráðunautur, að í fyrravor hafi fyrirspurn
komið, en óvíst sé með öllu hvort nokkuð verði af
framkvæmdum.
íslenzki hesturinn i brezku tímariti.
í janúarhefti British Agricultural Bulletin, en það
er búnaðartímarit, víðlesið í brezkum samveldislöndum,
er grein eftir Mr. R. J. Urquhart, er nefnist, lauslega
þýtt: Of mikið af dráttarvélum og hesturn á búunum
(Overmechanized and Over Horsed).
Mr. Urquhart heldur því fram í grein þessari, að
hagfelldara sé að nota hin smávaxnari hestakyn til
vinnu við mikinn hluta þeirra bústarfa, þar sem
dráttarorku er þörf, heldur en hina þungu og þurftar-
væri niður við gólf, og auk þess er þá þægi-
legra að hreinsa undir borðinu.
Ef hinum einstöku vinnusviðum er raðað
á réttan hátt í eldhúsinu, getur varla farið
hjá því, að verkin gangi þar vel og greið-
lega.
Smáatriðin geta einnig verið mjög mikil-
væg, en þó þarf að varast að fara svo ná-
kvæmlega í þau, að þau verði til trafala.
Eldhús má ekki vera minna en 7 m að
flatarmáli og 10 m, eigi fjölskyldan að geta
matazt þar.
Hvernig á ég að bjarga manni,
nauðstöddum i vök?
Veizt þú, hvernig þú átt að haga þér, ef þú kynnir
að þurfa að bjarga einhverjum, sem hefur dottið niður
um veikan ís? Ef svo er ekki, þá lestu þetta ráð, því að
nú eru vötn og tjarnir ísi lögð og mikið um manna-
ferðir á þeim víðsvegar um landið.
Legðu þig gætilega niður á ísinn. Þá dreifist líkams-
þunginn þannig, að veikur ís ber, jafnvel þar, sem
gangandi maður stigi niður úr. Mjakaðu þér í áttina
til hins nauðstadda (ekki alveg að vökinni, ef ísinn er
mjög veikur) og réttu honum eitthvað til þess að grípa
í, taug, peysu eða skíðastaf. Segðu honum eða henni
að leggjast á bakið (á hliðina, ef hann hefur bakpoka),
með handleggina útrétta á ísnum og taka öflug sund-
tök með fótunum, samtímis sem handleggirnir hjálpa
til. Á þennan hátt er auðveldlega hægt að draga hinn
nauðstadda upp, einkum ef þú getur náð festu á ísnum
með öðrum fætinum (skautanum), eða með annari
hendinni, með nagla, sjálfskeiðung, skíðastaf eða þ. h.
Því næst er svo að reyna að koma sér gætilega á brott
frá vökinni, skríðandi eða veltandi — í áttina þang-
að, sem þú komst frá. ísinn þar hélt alveg nýlegal
„Það verða gulrófur nœsta ár!“
Sagan gerist í einu nágrannalandi okkar. Biskup
nokkur, er var á yfirreið um landið, koma til sveita-
prests, sem hafði tekið upp þann sið, að rækta mat-
jurtir í einu horninu á kirkjugarðinum og að þessu
sinni kartöflur. Biskup sá kartöflugrösin, vandaði um
við prestinn og sagði: „Þetta má ekki endurtaka sig!“
,,Nei, biskup, það verða gulrófur næsta ár,“ mælti
prestur lióglátlega.
_ Útgefendur: Búnaðarfélag íslands og Stéttarsamband bænda. — Útgáfunefnd: Einar
^ \i tT _ Ólafsson, Pálmi Einarsson, Steingr. Steinþórsson. — Ritstjóri: Gísli Kristjánsson. _________
/ Ritstjórn, afgreiðsla og innh.: Lækjarg. 14 B, Reykjavík. Pósth. 1023. Sími 8-22-01.
BÚNAÐARBLAÐ Áskriftarverð FREYS er kr. 50.00 árgangurinn. — Prentsmiðjan Edda h.f.