Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2006, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 23. JÚNl2006
Fréttir DV
Cortes og
Jenkins í
tónleikaferð
Garðar
Cortes óperu-
söngvari er nú
að setjasigí
stellingar fyrir
mikið tónleika-
ferðalag um
Bretlandseyj-
ar þar sem hann syngur með
dívunni Catherine Jenkins.
Eru um þijátíu tónleikar fyrir-
hugaðir og fara næstu tveir
mánuðir í þetta mikla verk-
efni. Þegar eru sjötíu prósent
miðanna seldir. „Allt er á
„hóld" meðan við vinnum að
þessum málum," segir Einar
Bárðarson umboðsmað-
ur Garðars, aðspurður um
hvemig miði í samningagerð
Garðars og útgáiurisans EMI.
„Maður setur ekkert fluguna
á fyrir silunginn þegar allt er
krökkt af laxi."
Aukið vald til
þingmannarætt
„Þetta er svona
slagur á milli ráð-
herravalds ogþing-
mannavalds," segir
Gunnar Örfygsson
þingmaður Sjálfstæð-
isflokksins. Hann var
staddur í París í vik-
unni þegar DV náði af hon-
um tali. Gunnar situr nú,
ásamt Kjartani Ólafssyni og
Einari Má Sigurðssyni, mik-
ið þing sem áheymarfulltrúi
þar í borg. Þingið er á veg-
um Natóþjóðanna. „Svokall-
að vefþing." Er þar einkum
rætt um aukna áherslu á að-
komu þjóðþinga að meiri-
háttar ákvörðunum á kosm-
að ráðherravalds. „Hér sitja
ráðherrar fyrir svömm og er
skemmtilegur línudans sem
þeir stíga. En þekkt er þegar
menn tóku til dæmis krítíska
ákvörðun um að styðja árás-
ina í írak."
Watersfær
flugubox
RogerWaters
notaði tækifær-
ið eftir mikla og vel
heppnaða tónleika
í Egilshöll og hélt
til veiða í Norðurá.
Eftir því sem írarn
kemur á veiöivefn-
um krafla.is tók Norðurá ekki
vel á móti þessum höfuð-
paur Pink Floyd. En þeir hjá
Stangveiðifélagi Reykjavík-
ur gáfu tónlistarmanninum
glæsilegt flugubox frá krafla.
is að gjöf í sárabætur. Kröflu-
mönnum þótti merkilegt að
þeir miðlar sem fjallað hafa
um laxveiðar og tónlist hafi
ekki gert þessari höfðinglegu
gjöf skil.
Norður í víking
„Já, hér gengur allt vel
ogmjöggam-
an. Þetta er vel
sótt. Kannski
ekki höfuðborg
heimsinsenvel
mætt miðað við
íbúaijölda," segir
Steinn Ármann
Magnússon vík-
ingur. Þegar DV
náði tali af Steini
var hann staddur á Sauðár-
króki. Víldngahátíð Jóharm-
esar Viðars, verts á Fjöru-
kránni, stendur nú sem hæst
en um síðustu helgi sóttu
þúsundir gesta hátíðina. Far-
ið var norður á Sauðárkrók
með sýningarhald en henni
verður fram haldið í Hafnar-
firði nú um helgma og lýkur
á sunnudag.
r Sveinsson kvikmyndagerðarmaöur er að hefja tökur heimildarmynd?
)yggir á Draumalandi Andra Snæs Magnasonar. Andri skrifar handrit og Sigur Rós
sér um tónlistina. Framleiðandi ásamt Ólafi er Sigurður Pálmason kenndur við Hag-
kaup. Draumalandið hefur nú selst í 10 þúsund eintökum og enn er verið að prenta.
„Ég hafði verið að spekúlera í því fyrir ári að gera mynd um virkj-
unarmálin en ekki fundið neinn flöt sem ég var ánægður með.
Þangað til ég las bókina hans Andra. Andri er réttur maður á rétt-
um tíma," segir Ólafur Sveinsson kvikmyndagerðarmaður.
f næsta mánuði hefjast tökur á
heimildarmynd sem byggir á Drauma-
landinu - bók Andra Snæs Magnason-
ar. Ólafur Sveinsson, sem þekktast-
ur er fyrir myndina Hlemmur, skrifar
handrit ásamt Andra Snæ en Sigur Rós
leggur til tónlistina. Tökumaður er
Halldór Gunnarsson en framleiðandi
ásamt Ólafi er Sigurður Pálmason
gjaman kenndur við Hagkaup. Ólaf-
ur segir stefnt að því að myndin, sem
verður 90 mínúma löng, verði tilbúin
til sýninga í kvikmyndahúsum næsta
vor. „Við erum að byrja tökur í júlí
og verðum fram í ágúst. Og
ætlum svo að vanda veru-
lega alla eftirvinnslu."
Tíu þúsund eintök
seld
„Draumalandið er bók-
in. Draumalandið!"
Bubbi Morthens yfir
mannskapinn í troð
fullri Laugardalshöll
fyrir skemmsm.
Drauma-
landið hef-
Andri Snær Breyttur tónn jafnvel
meðal stóriðjusinna - og Jóhannes
Geirkominn á skólabekk.
ur slegið rækilega í gegn og nýtur sér-
stöðu í íslenskri bókaútgáfu. Kristján
B. Jónasson þróunarstjóri Eddu segir
það engum vafa undirorpið.
„Bókm hefur nú þegar selst í tíu
þúsund eintökum og er verið að
prenta meira. Við prentum hana í tvö
þúsund emtökum í senn þannig að
þetta er líklega 5. prentun."
Ólafur tekur í sama streng og seg-
ir bókina „unique" í íslenskri bókaút-
gáfu.
„Margir vissu ekki mikið um
þetta eða höfðu spekúlerað í
' ví. En fundu þama farveg
fyrir hugsanir sínar. Andri
hefur opnað þeim nýja
sýn á þetta og sett í stærra
samhengi. Þá hefur bók-
P mspurstfeikilegavelútog
líklega margir lesendur um
hverja bók," segir Ólafur.
æpn
Andri hittir í mark
Andri Snær sjálfur
er, merkilegt nokk, ekld
gapandi vegna þessara
ótrúlegu viðbragða.
„Það er til skjal-
fest í tölvupósti
til forleggjara í
tengslum við
fyrstu væntingar. Tíu þúsund eintök
eða við sleppum þessu."
Fyrstu viðbrögð frá þeim sem
voru í fyrsta lesendahópi gáfu Andra
ástæðu til að ætla að bókin hefði al-
menna skírskotun: Bolirnir, frjáls-
hyggjumenn og kommúnistar. „Alls
staðar vom viðbrögðin á eina leið. Ég
vissi að ég hafði hitt á þann punkt sem
ég var að leita að," segir Andri Snær.
Breyttir tímar
Ólafur segir myndina klassíska
heimildarmynd, tekna á Kárahnjúka-
svæðinu, á Reyðarfirði, Egilsstöð-
um og víðar. Líka þar sem stóriðja er
á kortinu: á Húsavík og Reykjanesi.
„Síðan verður byggt á viðtölum bæði
við virkjunarsinna og þá sem efast um
ágæti þess að virkja meira og byggja
álver," segir Ólafur.
Andri Snær segist skynja gerbreytt
viðhorf jafnvel meðal þeirra sem töl-
uðu blygðunarlaust um að stóriðju-
stefna væri eina leiðin. I greinaskrif-
um Jóhannesar Geirs Sigurgeirssonar
stjómarformanns Landsvirkjunar er
hann farinn að tala um að stóriðja
megi alveg fá að vera með öðm.
Enn má hætta við
„Annars var ég að frétta það að Jó-
hannes Geir væri kominn í hagfræði-
nám á Bifröst. Kannski of seint í rass-
inn gripið," segir Andri Snær sem er þó
ekki búinn að gefa upp alla von um að
hættverði við miðlunarlónið eystra.
„Ég held að það væri farsælast.
Held að fólk muni efdr 20 til 30 ár óska
sér að það hefði gerst. Þetta er spum-
ing um vilja. Ég held að það myndi
skila meiri tekjum. í stað þess að skaða
ímynd þjóðarinnar myndi það bæta
hana.Þaðværikraftaverk." jakob@dv.is
Guði sé lof fyrir Alfreð
Svarthöfði hefur alltaf verið ein-
arður stuðningsmaður íslenska
landsliðsins í handbolta. Oft hafa
„Strákarnir okkar" komið Svart-
höfða í alsælu en jafnoft valdið sorg
og depurð í marga daga. Það breyt-
ir þó ekki því að handboltalandslið-
ið er það eina í heimi íþróttanna sem
er í heimsklassa og á möguleika á því
að berjast gegn bestu liðum heims á
grundvelli jafningja.
Það var með mikilli tilhlökkun
sem Svarthöfði skundaði í sínu
fínasta pússi í Laugardalshöll á þjóð-
hátíðardaginn sjálfan. Framundan
var leikur gegn erkióvinunum Svíum
í leik þar sem allt var undir - ekk-
ert minna en framtíð handboltans. í
ljósi góðra úrslita ytra í fyrri leiknum
Cm
var Svarthöfði mátulega bjartsýnn
fyrir leildnn. Sviðið var klárt. Troðfull
höll og allir í sautjánda júní-skapi.
Þótt útlitið hafi verið svart um
tíma efaðist Svarthöfði samt aldrei.
Þegar ljóst var að sætið á HM væri
í höfn steig Svarthöfði síðan villtan
stríðsdans með öðrum áhorfendum.
Svarthöfði velti því fyrir sér eftir
leikinn hvað hefði breyst hjá íslenska
landsliðinu. Hvers vegna í ósköpun-
um tókst liðinu að leggja Svía í svona
þýðingarmiklum leikjum. Svarið er
einfalt eins og Svarthöfði komst að.
Svarið er Alfreð Gíslason. Allt frá því
að Alfreð tók við liðinu hefur verið
annar bragur á því. Liðið hefur geisl-
að af sjálfstrausti enda komið í hend-
urnar á einum færasta og
virtasta þjálfara heims.
Liðið brotnaði ekld
í útileiknum þótt það
misnotaði fyrstu sex
skot sín í leiknum eða
væri tveimur mörkum und-
ir þegar lítið var eftir. Lið-
ið brotnaði ekki þótt það væri
fimm mörkum undir í leiknum
í Laugardalshöll. Hefði það gerst
undir stjórn Viggós Sigurðssonar?
Svarthöfði lætur lesendum eftir að
svara þeirri spurningu.
Svartliöfði