Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2006, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 23. JÚNl2006
Fréttir DV
• Óvissa ku ríkja um framtíð
Halldórs Guð-
bjarnasonar,
framkvæmda-
stjóra VISA ísland,
eftir frammistöðu
hans í fjölmiðlum
að lokinni húsleit
Samkeppniseftir-
litsins í höfuðstöðv-
um VISA í síðustu
viku. Haildór þótti ekki koma vel
út úr viðtölum eftir húsleitina og
er óhætt að segja að frammistaða
hans hafi ekki verið vatn á myllu
VISA. Þvert á móti gaf hann um-
ræðu um meint brot fyrirtæksins á
samkeppnislögum byr undir báða
vængi...
• Viggó Valdemar Sigurðsson,
fyrrverandi lands-
liðsþjálfari í hand-
bolta, er mikill
keppnismaður og
gefst yfirleitt ekki
upp fýrr en í fulla
hnefana. Viggó er
að byggja parhús í
Grundarhvarfi og
seldi þess vegna hús sitt í Lind-
arseli fyrir áramót. Hann stend-
ur nú í málaferlum við fasteigna-
söluna sem sá um sölu hússins.
Viggó hefur aðeins borgað rétt
rúman helming þeirra sölulauna
sem fasteignasalan Stjörnueign-
ir fór fram á fyrir söluna á húsinu
og neitar að borga rest á þeim for-
sendum að hann hafi ekki fengið
nægilega góða þjónustu við söl-
una. Fasteignasalan sá þann eina
kost að höfða mál gegn Viggó til
að fá afganginn af sölulaunun-
um sem hún telur sig eiga inni
hjá landsliðsþjálfaranum fyrrver-
andi...
• Bjarni Ármannsson, forstjóri
Glitnis, gæti orð-
ið næsti formað-
ur Framsóknar-
flokksins en eins og
kunnugt er tilkynnti
Halldór Ásgríms-
son, núverandi for-
maður flokksins, að
hann hygðist hætta
í haust. f Bjarna ku
renna framsóknarblóð en eins og
menn muna þá-var hann ráðinn
til FBA á sínum tíma af Finni Ing-
ólfssyni, framsókn-
armanni og þáver-
andi viðskipta- og
iðnaðarráðherra. Er
talið að Bjarni geti
með sínu flekklausa
mannorði sam-
einað framsókn-
armenn til sjávar
og sveita en staða
hans innan Glitnis hefur veikst
eftir því sem FL Group undir for-
ystu Hannesar Smárasonar hefur
aukið við hlut sinn í bankanum...
• Jón H. B. Snorrason, yfirmað-
ur efnahagsbrotadeildar ríkislög-
reglustjóra, fór mik-
inn í fjölmiðlum á
miðvikudaginn þar
sem hann tilkynnti
að embættið hefði
meint skattalaga-
brot Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar,
forstjóra Baugs, til
rannsóknar. Jón
sagði við fjölmiðla að embættið
hefði haft málið á sínu borði í ár
og taldi vel af sér vikið að vera að
hefja yfirheyrslur eftir þann stutta
tíma. Hið rétta er þó að Jón H. B.
fékk málið inn á borð til sín 12.
nóvember 2004, fyrir rúmu einu
og hálfu ári...
Þeim sem undanfarið hafa átt leið fram hjá Höfðabóli, húsi athafnamannsins Árna
Johnsen í Vestmannaeyjum, hefur heldur betur brugðið í brún. Árni hefur komið átta
af grjótlistaverkum sínum fyrir í túninu við húsið og segist vona að þau geti orðið
gestum og gangandi til ánægju.
Árni með nokkur
tonnaf grjóti í
túnfætinum
ftúnfætinum
Á þessum myndum sést hvar
grjótlistaverk Árna standa við
hús hans I Vestmannaeyjum.
DV-mynd Jóhann Ingi
hornr meira á þær heldur en steina
við veginn," sagði Árni og hló en hús
hans stendur við Stórhöfða.
Árni Johnsen
Vantaðistað tilað geyma listaverkin sln.
DV-mynd Pjetur
Athafnamaðurinn Árni Johnsen þurftí stað til að koma öllum
grjótlistaverkum sínum fyrir á. Verkin vann hann meðan hann
dvaldi í fangelsinu á Kvíabryggju og fyrir sýningtí sem hann hélt
í Reykjanesbæ. Árni leitaði ekld langt yfir skammt heldur kom
þeim fyrir í túnfætínum við Höfðaból í Vestmannaeyjum þar
sem þau setja svip sinn á umhverfið.
„Ég setti þetta upp fyrir um
tveimur vikum síðan. Eg á þessi verk
og vildi halda þeim til haga. Þessi
verk geta verið úti," sagði Árni John-
sen aðspurður um grjótlistaverkin
átta sem standa fyrir utan hús hans í
Vestmannaeyjum.
Vona að þetta meiði engan
Árni sagðist ekki hugsa neitt sér-
staklega mikið um þessi verk dags
daglega. „Þau eru bara þama í tún-
fætinum og ég vona að þau meiði
engan. Fólk stoppar og kíkir á þetta,
ég get ekki neitað því," sagði Ámi, en
bætti við að engin truflun hefði orð-
ið á umferð vegna verkanna. „Suður-
eyjamar eru það fallegar að maður
Sýningar út um allt
Árni byrjaði að vinna við grjót
þegar hann afplánaði fangelsisdóm
á Kvíabryggju fyrir þremur árum.
Hann sagði að nokkur verkanna
sem standa í túnfætinum við Höfða-
ból hefðu verið unnin á Kvíabryggju
en önnur fyrir sýningu í Reykjanes-
bæ í febrúarmánuði árið 2004. „Ég
hef haldið sýningar í Keflavík, á
Stokkseyri og í Smáralind þar sem
200 þúsund manns komu og sáu
verkin. Það hafa margir haft gaman
afþessum verkum." oskar@dv.is
Ný rödd í símkerfi Og Vodafone
Sjónvarpsstjóri út fyrir útvarpsmann
„Það var hlaupið í að taka þetta
upp annað slagið og hefur verið
kannski einn vinnudagur þegar allt
er saman tekið," segir útvarpsmað-
urinn Kristófer Helgason sem lands-
menn heyra nú sem hina nýju rödd
OgVodafone. Hann tók við hlutverki
Og Vodafone-raddarinnar af Magn-
úsi Ragnarssyni, sjónvarpsstjóra
SkjásEins sem hljómað hefur síð-
ustu sjö ár.
Það hefur komið mörgum á óvart
að heyra nýja þjónusturödd tala þeg-
ar hringt er í eða úr kerfi Og Vod-
afone enda hafa landsmenn van-
ist Magnúsi Ragnarssyni, „Magnús
gerði þetta alveg einstaklega vel og
það er ekki auðvelt að feta í hans fót-
spor," segir Kristófer.
Kristófer er einn stjórnenda
Reykjavíkur síðdegis á Bylgjunni
og segist hafa lent í því að þurfa að
hlusta á sjálfan sig. „Ég hef lent í því
að vera í tímaþröng fyrir þáttinn og
er að hringja í fólk. Heyri svo í sjálf-
um mér í símanum að tilkynna mér
að ég nái ekki í viðkomandi," seg-
ir Kristófer í gamansömum tón og
vísar í skilaboð Og Vodafone-radd-.
arinnar: „I augnablikinu er slökkt á
símanum."
Skiptin marka tímamót hjá lands-
mönnum. Sem kunnugt er tilheyrir
SkjárEinn Landssímanum og var því
sjónvarpsstjórinn Magnús í held-
ur óþægilegri stöðu - með því að ljá
samkeppnisaðilanum rödd sína í
þessi sjö ár. „Þetta var óþægilegt fyr-
ir báða aðila. Þetta eru breyttar for-
sendur eins og þetta er í dag," segir
Magnús og vísar í að hann hafi upp-
haflega gert þetta þegar Tal var og
hét. „Þetta frelsar báða aðila."
En Magnús sættir sig vel við arf-
taka sinn: „Þetta er afskaplega mikill
prýðispiltur hann Kristófer og hann
gerir þetta örugglega vel," segir hann.
Aðspurður segist hann ekki ætla að
sækjast eftir því að verða Símarödd-
in en rödd hans ómar þó í símsvara
SkjásEins.
gudmundur@dv.i:
Inni
Útvarpsmaðurinn
Kristófer Helgason
hefurtekiöviðhinu
göfuga hlutverki af
Magnúsi. Hann
Ijærslmkerfi
OgVodafone rödd
sína.