Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2006, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2006, Qupperneq 8
8 FÖSTUDAGUR 23. JÚNl2006 Fréttir DV Nágrannar gegn kaffihúsi Áætlanir um að breyta húsinu á Lokastíg 28 í kafB- hús á þremur hæðum mæta harðri andstöðu nágranna sem telja að mikið ónæði muni verða af rekstrinum. Telja þeir meðal annars ein- boðið að þótt ekki sé gert ráð fyrir vínveitingum að svo stöddu muni vísast verða sótt um vínveitingaleyfi síð- ar. Á móti er bent á að slíkt leyfi yrði ekki veitt þar sem húsið sé á skilgreindu íbúða- svæði. Kaffihúsið er sagt stfl- að á erlenda ferðamemi sem koma að Hallgrímskirkju. Bensínstöð áborholum Víkingar hafa fundið fyrirhugðum gervigrasvelli nýjan stað eftir þunga mótmælaöldu íbúa í Fossvogi. íbúarnir töldu flóðlýstan völl við Traðarland myndi skapa sjón- og ljós- mengun og að mikill bilastæðavandi myndi magnast. Óvist er um sátt um nýja tillögu. Bílakraðakið Nágrannar Vlkings kvarta undan bllaflóði og kvlða auknum umferðarþunga með flóðlýstum gervigrasvelii. Myndin var tekin I gærkvöld þegar leikur Víkinga gegn fslandsmeist- urum FH varnýhafinn tó & a DV-Mynd Páll A Orkuveita Reykjavík- ur leggst al- farið gegn því að Atlantsolía fái lóð und- ir bensínstöð við Lágmúla. Lóðin tilheyrir svokölluðu Laugamesjarð- hitasvæði sem gefur af sér 15 prósent af heildamotk- un höfuðborgarsvæðisins af heitu vatni. Árið 1999 tókst Orkuveitunni að koma í veg fyrir að húsfélög við Lágmúla eignuðust sjálf lóð undir bíiastæði heldur eignaðist Orkuveitan lóðina. Orkuveit- an segir varanleg mannvirki á þessum stað myndu skerða möguleika til orkuvinnslu. Vináttufélag Asera Stofnað hefur verið vin- áttufélag íslands og Aser- baídsjans á Akureyri. Sá sem stendur að stofriun þess er Zakir Jón og segir hann um tíu manns vera í félaginu, þar af sjö frá As- erbaídsjan. „Ég vil að fólk viti meira um land mitt sem liggur á milli Asíu og Evr- ópu," segir Zakir Jón. Hann hefur þegar staðið fyrir einu menningarkvöldi í Mennta- smiðjunni á Akureyri og komu um 70 manns á það. Nafn félagsins mun vera Azeri. Kvöð um rafstreng og jarðvatnslögn í Fossvogsdal reyndist engin hindrun fyrir gervigrasvelli eins og borgaryfirvöld höfðu sagt. Því verður völlurinn í miðju dalsins en ekki alveg við íbúabyggðina. „Enn og aftur virðist Víkingur ekki geta sætt sig við stærð stns afmarkaða umráðasvæðis og sníða sér stakk eftir vexti," segja Konráð Þórisson og Mar- grét Auðunsdóttir í bréfi til skipulags- ráðs Reykjavíkur. Eins og ijölmai'gir aðrir íbúar í ná- grenni félagssvæðis Vfkings í Foss- vogi mótmæltu þau Konráð og Mar- grét fyrirhuguðum gerfigrasvelli við Traðarland sem flóðlýsa á með átján metra háum möstrum. Vaflarstæði átti að vera aðeins nokkra tugi metra frá næstu íbúðarhúsum. Þeim áætlunum hefur nú verið breytt en óvíst er hvort sú breyting dugi nágrönnum. íbúi rannsakar málin Mótmælin hafa nú orðið til þess að færa á gervigrasvöllinn umtalsvert nær miðju Fossvogdalsins og fjær byggð- inni. Sú lausn hafði fyrirfram verið tal- in ófær vegna kvaðar sem hvílir þar á landinu vegna rafstrengs og jarðvatns- lagnar. Einföld athugun hjá Dagbjarti Helga Guðmundssyni í Traðarlandi 2 leiddi hins vegar í ljós að sú kvöð var enginhindrun. Eftir ábendingu ifá Dagbjarti varm borgarskipulagið nýja tiilögu sem nú hefur verið send íbúunum sem mót- mæltu. I stað þess að byggja gervigras- völl á malarvellinum á að koma hon- um fyrir á grasæfingasvæði Víkinga, mun fjær húsunum í Fossvogi. Mal- arvellinum á síðan að breyta í grasæf- ingasvæði að sögn Amar Ingólfssonar, ffamkvæmdastjóra Vfldngs. En staðsetningin er ekki eini vand- inn sem íbúamir sjá við nýja völlinn. Risavaxið bílastæðavandamál Þrátt fyrir að núverandi maiarvöll- ur hafi verið notaður sem bflastæði á Það er eins og menn viji ekki læra afreyslunni helduræða bara áfram. álagstímum hafa áhorfendur á leikjum Vfldngs lagt bflum um allt hverfi. „íbúamir komast ekki til og ffá heimilum sínum þegar kappleildr og samkomur em haldnar," skrifa Dröfh Gunnarsdóttir og Magnús Þráinsson í athugasemdum sínum og aðrir íbú- ar taka í sama streng. Þeir hafi miklar áhyggjur af enn meiri bflaumferð með tilkomu nýja vallarins. Ásókn í svæðið muni aukast og standa lengur fram á kvöld og taka yfir lengri tíma ársins. Óánægja með útþenslustefnu Fyrir utan átroðning þykir íbúunum þó verst að bílaflóðið ógni öryggi þeirra þegar verst láti. „Við höfum oft rætt hvað myndi gerast ef sjúkra- og slökkvi- fiðsbflar.þyrftu að komast inn í hverfið á slíkum tíma," segir í athugasemdum Konráðs Þórissonar og Margrétar Auð- unsdóttur sem hljóma langþreytt á sambúðinni við Vfldnga þótt þau segi íþróttastarfsemina yfirleitt í sátt við íbúana: „Ennþá er það útþenslusteftia þessa annars ágæta félags sem veldur óánægju meðal okkar nágrannanna." Læra ekki af reynslunni „Þetta er skárra en þetta leysir að- eins hluta af vandamálinu," segir Dag- bjartur Helgi Guðmundsson sem enn hafði ekfd fengið nýja tillögu borgar- sldpulagsins í hendumar þegar DV ræddi við hann í gær. „Það þýðir ekkert að hafa fótbolta- völl þama og leysa svo ekki bflastæða- málin," heldur Dagbjartur áfram. „Það Vallarstæðið Fyrirhugað vallarstæði á gervigrasvelli Vikings hefur verið fært fjær Ibúabyggð- inni; afsvæðinu merktu A yfir á svæðið merkt B. samkvæmteldra samkomulagi við Kópavog. hafa verið vandræði með þessa flóð- lýstu velli en það er eins og menn viji ekki læra af reynslunni heldur æða bara áfram. Þessi átján metra háu möstur verða áfram jafii mikil sjónmengun. Ég tel að það væri alveg hægt að lýsa þenn- an vöfl með lægri mannvfrkjum." Dagbjartur er óánægður með borg- arsfdpulagið sem hann segir fyrst og fremst hafa gengið erinda Vfldngs. „Þeir eiga að skipuleggja svæðið í heifd með hagsmuni íbúanna að leiðarljósi en ekki bara útfæra hugmyndir ann- arra," segirhann. Athafnasvæði Víkings næryfir bæjarmörkin Örn Ingólfsson Höfum tekið tillittil íbúanna segir framkvæmdastjóri Vlkings sem stendur á fyrirhuguðu stæði gervigrasvallar félagsins. I bakgrunni sést ibúðabyggðin. DV-mynd: Valli. Tókum tillittil mótmælanna „Það hefur verið tekið tillit til þeirra sem mótmæltu og völfurinn færður al- veg syðst. Þama var kvöð sem var ekki eins mikið mál og menn héldu," seg- ir Öm Ingólfsson, framkvæmdastjóri Víkings. „Ef menn ætla á annað borð að hafa hér íþróttafélag þá verður að hafa þessa aðstöðu," segir Öm og bendir á að slæmt sé að senda félagsmenn um víðan völl til að æfa á gervigrasi. öm telur flóðlýsinguna ekki verða tfi óþæginda. „Þetta em ljós sem lýsa bara niður og þau munu mjög lítil áhrif hafa," fullyrðir hann. Gert er ráð fyrir 67 nýjum bflastæð- um austan við íþróttahús Vfldngs. Öm segist viss um að bflastæðavandinn verði leystur: „Til þess em nú yftrvöld að skipuleggja það til að leysa málið." gar@dv.is Ekki opna rusl á gsm Síminn lokaði í vikunni fyrir ruslpóstsendingar sem sendar voru í farsíma við- skiptavina fyrir- tækisins. Þetta er í annað skiptið á stutt- um tíma sem mikill fjöldi skeyta af er- lendum upp- runa er sendur inn í GSM kerfi fyrirtækisins. Síminn áréttar við viðskipta- vini sína að eyða tafarlaust skeytunum en opna þau ekki undir neinum kring- umstæðum. Einnig er varað við því að fara inn á heima- síður sem tilgreindar eru í skeytunum. Og vodafone hefur lent í sömu vandræð- 25 ára gamall karlmaður stoppaður af tollvörðum í Leifsstöð á þriðjudag í síðustu viku Með rúm 100 grömm af kókaíni innan klæða Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli fann rúm 100 grömm af kókaíni á 25 ára gömlum Reykvíkingi á þriðju- daginn í síðustu viku. Hann hafði falið kókaínið inn- an klæða. Maðurinn var að koma fr á Amster- dam þegar hann var stoppaður en þessi hollenska höfuðborg hefur verið vinsæll áfangastaður fyrir / einstaklinga sem hyggja á fíkniefna- smygl til landsins. Miðað við magn þykir lík- legt að maðurinn hafi ætlað sér að að selja fíkniefnin en ekki neyta þeirra sjálfur. Sá hefur ekki fengið dóm fyrir ffkniefnabrot áður. Lögreglan í Reykjavík fer með rannsókn málsins og sagði Hörð- ur Jóhannesson, yfirlögregluþjónn rannsóknardeildar, í samtali við DV að máliðværiafgreittogbúið. „Það er upplýst. Hann keypti efnið og fór út til að sækja það. Hann var síðan gripinn í tollinum," sagði Hörður við DV. oskar@dv.is Hörður Jóhannesson Yfirlögregluþjónn rannsóknar- deildar segir að málið sé upplýst. I gegnum tollinn Manninum tókst ekki að smygla rúmum 100 grömmum afkókaini I gegnum tollinn I síðustu viku.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.