Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2006, Qupperneq 21
DV Fréttir
FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ2006 21
„Þetta er bara afþví að
bíllinn ersvartur,"
vilja ekki gefa upp staðsetninguna
enda er hún hemaðarleyndarmál. Við
stöðvum ungan ökumann með glæ-
nýtt ökuskírteini á 110 km/klst. „Ég var
að taka ffam úr," segir hann og lætur
bóka í skýrsluna. Á myndbandinu sem
tekið var upp af hraðakstrinum mátti
þó sjá að ökumaðurinn var löngu
búinn að taka fram úr og keyrði sem
leið lá - einn í beygju.
Við emm komnir nálægt Víðidal.
Radarinn mælir næsta ökumann á 128
km/klst. á nýlegum Golf. Hann er eins
og flestir að drífa sig á Bíladaga. „Þú
passar bensínfótinn á leiðinni," segir
Höskuldur við manninn er hann stíg-
ur út úr bílnum. Hann þakkar fýrir sig.
„Það hljómar kannski skringilega en
örugglega 95% þeirra sem við stopp-
um þakka okkur fyrir eftir að við höf-
um stoppað þá. Við viljum fá fólk sátt
út í umferðina," segir Höskuldur.
Pulsum okkur niður
Næst er stefnan tekin á söluskál-
ann í Víðihlíð. „Nú ætlum við að pulsa
okkur niður," segir Höskuldur og vísar
í pylsuauglýsingu sem einmitt lögregl-
an á Blönduósi lék í. Höskuldur fær sér
pylsu með tómat, sinnep og steiktum.
Ingi með öllu nema remúlaði. Blaða-
maður lét sér nægja allsbera pylsu í
brauði.
Eftir að hafa pulsað okkur upp íVíði-
hlíð liggur leiðin á Blönduós. Klukkan
er að ganga tíu um kvöld. Blaðamaður
þarf að vera kominn til Akureyrar fyrir
miðnætti - á löglegum hraða.
Þegar á Blönduós er komið fer
blaðamaður áleiðis til Akureyrar - Vil-
hjálmur og Ingi halda áfram að hraða-
mæla. Enda umferðin orðin minni og
hraðinn farinn að aukast.
Fleiri ökumenn voru teknir þetta
kvöld fýrir að keyra of hratt á leið sinni
norður. Einn var tekinn tvisvar - rétt
eftir að blaðamaður DV kvaddi lög-
regluna. Hann var mældur á 145 km/
klst. og var nýkominn með bflpróf.
Skömmu síðar var hann mældur aftur
á 110 km/klst. Hver veit nema sá eigi
einn daginn eftír að aka á fleygiferð inn
í eilífðina?
gudmundurdv.is
Eru í umræðunni og sækjast eftir því
„Við vorum hugsanlega fyrstir til að leggja ofuráherslu á umferðareftirlit og
höfum sinnt því mjög mikið - enda var full þörffyrir það," segir Kristján
Þorbjörnsson, yfirlögregluþjónn í lögreglunni á Blönduósi. „Við værum ekki
að þessu efvið tryðum því ekki að við værum að hafa áhrifá umferðina"
'segir hann og vísar til þess að slysum hafi fækkað -þótt erfitt sé að sanna
það tölfræðilega. „Þú getur ekki hitt einhvern sem við höfum bjargað frá þvi
að láta lífið i umferðinni en við trúum þvi að þeir séu nokkrir til," segir hann.
Áherslan á aukið umferðareftirlit í umdæmi Blönduóslögreglunnar hófst i
kringum 7 987 og hefur hún oftast verið nefnd sú harðasta
á landinu. Fólk hlýtur að spyrja sig hvort aðrir lögreglu-
menn á landinu verði ekki fúlir. „Það held ég að sé
gálgahúmor í sjálfu sér, þegar talað er um okkur í
þessu samhengi," segir Kristján. „Ég held að það
sé allt ígóðu og vel meint - en auðvitað erum við í
umræðunni og sækjumst eftir því."
Það vakti athygli í ferð blaðamanns DVá dögunum
að ökumenn voru almennt ekki ósáttir þegar
þeir fóru út úr lögreglubílnum. „Við leggjum
mikið upp úrþvi að skila afokkur ökumönn-
um í betra ástandi en þeir voru áður en við
stoppum þá. Það er lítið gagn að stoppa
einhvern sem er hættulegur í umferðinni,
bæði sjálfum sér og öðrum - eftir afskipti
lögreglu," segir hann.
róflaus Ökumaður þessa bíls var
xtán ára og próflaus. Hringt varl
reldri hans og þeim tilkynnt um
fsaakstur og prófleysiö.
f bílnum Þetta útsýni fá iögbrjótar.
Víðigerði Við pulsuðum okkur niður undir lokin.
LANGT YFIR Þessi ökumaður mældist á 128 km/klst.
Fjarstýrt Radarnum er fjarstýrt afþeim sem situr I farþegasætinu -
séu lögreglumenn tveir.
Á BMW Þessi vará 107km/klst.
Vilja hraðakstur
afgötunum
„Það er allt reynt til að benda
mönnum á það að sýna gætni og
fá menn til að virða umferðar-
reglur," segir Garðar Sigurðsson,
formaður Bílaklúbbs Akureyrar.
Hann segir að klúbburinn hvetji
alls ekki til hraðaksturs þótt
vissulega gerihann sérgrein fyrir
að sumir bílarnir sem komi á
hátíðina séu ætlaðir til hraðakst-
urs. „Við vinnum þetta í miklu
samstarfi við lögregluna," segir
hann og bendir á að klúbburinn
vilji hraðaksturinn afgötunum
og inn á lokuð svæði. Jafnframt
bendir hann á að klúbbnum hafi
verið lofað athafnasvæði i
Glerárhverfi á Akureyri af
yfírvöldum, en ekkert hafi gerst í
þeim málum.