Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2006, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2006, Page 32
44 FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ2006 Helgarblaö DV Andrés móðgaði hermenn Andrés prins hneykslaði marga með hegðun sinni er hann sinnti opinberum skyldum stnum gagn- vart hernum. Prinsinn gjammaði stanslaust í símann á meðan á at- höfninni stóð og sögðu viðstaddir að hann hefði verið að reyna að selja húsið sitt í Sunninghill Park milli þess sem hann talaði við Fergie í símann. Þeir sem fylgjast með bresku konungsfjölskyldunni vita að Andrew hefur alltaf verið tækjaóður og kenndi mömmu sinni meðal annars á farsíma og iPod en hann hefur aldrei áður tekið tækin fram yfir skyldur stnar. Húmorslaus konungur Karl Gústaf Svtakonungur er bálreið- ur vegna gatnamóta sem nefnd hafa verið eftir honum. Gatnamót í einni stærstu borg Svfþjóðar hafa verið kölluð „Gatnamót kóngslns" og verður stærðarinnar kórónu komið fyrir á staðnum. Ástæða nafngiftar- innar er sú staðreynd að Karl Gústaf lenti i árekstri á staðnum t fyrra. Þeir sem til þekkja segja konunginn ekki hafa húmor fyrir nafninu þar sem það vísi til lélegra aksturshæfileika hans. Fílippus príns 85 ára Þótt drottningin hafi haldið upp á átt- ræðisafmæli sitt með pompi og prakt fór minna fyrir 85 ára af- mælisveislu Filippusar prins. Prins- inn fæddist á grtsku eyjunni Corfu þann 10. júní 1921 og giftist Elísa- betu prinsessu árið 1947. Vegna slæmrar heilsu föður hennar varð unga parið fljótlega að taka á sig fleiri konunglegar skyldur. Filippus barðist í seinni heimsstyrjöldinni og hefur látið hafa eftir sér að hann sjái eftir að hafa ekki sóst til frekari afreka innan hersins. Bhumibol Adulyadej konungur Tælands hélt upp á þau 60 ár sem hann hefur ríkt yfir landinu en enginn þjóðhöfðingi hefur ríkt jafn lengi og Bhumibol. Kóngar, drottningar og annað hefðarfólk fagnaði tímamótunum með kónginum í íjögurra daga glæsilegri veislu þar sem hvergi var til sparað. Norskar kveðjur Mette-Marít og Hákon krónpríns óska tæ- lenska konunginum til ham- ingju með timamótin. Samkoma Andrew Breta■ prins heilsar Mswati kon- ungi f veislunni. mm Wf Jt ■ |( ■'fiW SV > • .'; V# 1 |l æ 1 Ff | Kóngar, drottningar, prinsessur, prinsar, hertogar og soldánar hóp- uðust til Tælands á mánudaginn til að fagna þeim 60 árum sem Bhumi- bol Adulyadej konungur hefur ríkt yfir landinu. Hinn 78 ára tælenski kóngur hélt risaveislu í tilefni tíma- mótanna og bauð helstu fyrirmönn- um heimsins frá 25 löndum. Meðal gesta voru Maxima prinsessa Hollands, Karl Gústaf konungur Svía, Aibert prins af Mónakó, Mette- Marit krónprinsessa og Hákon krón- prins Noregs og Hinrik Danaprins, sem fagnaði 72 ára afmæli sínu þann 11. júní. Margrét Danadrottn- ing komst ekki með eiginmanni sín- um þar sem hún er er að jafna sig eftir hnéaðgerð. Um fjögurra daga veislu í Bangkok var að ræða. Enginn þjóðhöfðingi hefur ríkt jafn lengi yfir ríki sínu og tælenski konungurinn sem tók á móti gestum sínum með glæsilegri athöfn á flug- vellinum. Öryggisgæsla á vellinum var gífurleg og var öllum óviðkom- andi bannaður aðgangur á meðan hinir konunglegu gestir komu til landsins. Ríkisstarfsmönnum og skólabörnum var gefið frí í vikunni í von um að létta á umferðinni en umferðarþunginn í Bangkok er afar mikill á venjulegum degi. Elísabet Englandsdrottning, sem ríkt hefur næstíengst af öllum á eftir Bhumibol, komst ekki í veisluna en sendi son sinn Andrés prins fyrir sína hönd. Flestir gestanna notuðu tækifærið til að ferðast um landið og Asíu og heimsóttu Karl Gústaf Svía- konungur og Silvía drottning meðal annars borgina Phuket þar sem margir Svíar týndu lífi sínu þegar flóðbylgjan miída skall á heimsálf- una annan í jólum 2004. Bhumibol konungur hefur verið afar vinsæll í heimalandi sínu. Hann er hæfileikarfkur tónlistarmaður og spilar meðal annars á saxafón ásamt tíu félögum sínum hvern einasta morgun og hefur spilað og samið tónlist í gegnum tíðina. Camilla Parker-Bowles er sögð eyðilögð vegna dauða föður síns. Camilla og Karl Hjónakornin tóku dauða Bruce Shand afar nálægt sér. Faðir Camillu látinn Faðir Camillu Parker-Bowles er lát- inn, 89 ára að aldri. Hertogaynjan er sögð eyðilögð vegna föðurmissisins en faðir hennar, Bruce Shand, hafði verið veikur í nokkurn tíma. Shand átti að baki glæsilegan feril innan breska hersins en hafði að mestu snúið sér að vínsöfnun og veiðum á sínum eldri árum. Samkvæmt fréttatilkynningu frá Clarence House verður jarðarförin lítil og persónuleg en Shand eyddi sfð- ustu árum lífs síns heima hjá Annabel dóttur sinni og lést á heimili hennar innan um fjölskyldu sína. Camilla hefur aflýst heimsóknum og skyldum sínurn næstu vikuna. Karl Bretaprins er einnig sagður hafa verið náinn tengdaföður sínum og sam- kvæmt heimildum innan hallarinnar kom dauði hans afar illa við prinsinn. Eiginkona Shands, Rosalind, lést árið 1994 þegar hún var 72 ára.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.