Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2006, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2006, Page 36
48 FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ2006 Helgin DV Sakamal Myrti þriggja barna föður^^Kjg^ Breska lögreglan yflrheyrir nú þritugan mann í tengslum við ^<ss3SSBp"',W'' dráp á þriggja barna föður. Barry Wilson, 29 ára, lést fyrir utan heimili sitt í Briston eftir stungusár. Nágrannar hans segja þriggja ára dóttur hans hafa verið vitni að árásinni. Lögreglan hefur handtekið þrítugan mann í tengslum við morðið. Vitni heyrðu hinn grunaða monta sig af árásinni stuttu eftir að hún átti sér stað. „Hann var allur í blóði og gekk ánægður með sig niður götuna,' sagði kona sem hitti hinn grunaða. Hjúkka nauðgaöi dauðvona sjúklingi Karlkyns hjúkrunarfræðingur nauðgaði eldri sjúklingi eftir að hafa sagt henni að hún ætti aðeins nokkrar vikur eft- ir ólifaðar. Hinn 55 ára Albert Rampaul réðst á 74 ára gamla konuna og neyddi hana til kynmaka. Gamla konan, sem þjáðist af ólæknandi heila- æxli, sagði öðrum hjúkrunar- fræðingi frá atburðinum. Hún lést nokkrum dögum eftir nauðgunina. Rampaul neitar sökum en réttarhald stendur yfir í málinu. Smitaði bólfélagana vísvitandi Bitur bresk Ijóska sem smit- aðist af eyðni af svörtum kærasta sínum hefur nú sof- ið hjá fjöldanum öllum af karlmönnum í von um að hefna sín. Sarah Jane Porter, 43 einstæð móðir, sit- ur nú fyrir dómi vegna gjörða sinna. Kviðdóm- ur heyrði mörg vitni segja að hún hefði sofið hjá þeim án þess að vilja nota verjur. „Hún smitaðist af svörtum manni og vildi því hefna sín með því að sofa hjá sem flestum svörtum mönnum. Allir þeir sem hún hefur sofið hjá síð- an hún smitaðist eru svart- ir," sagði eitt fórnarlamba hennar. Málið heldur áfram fyrir rétti. T Michael og Cathryn Borden kunnu ekki að meta ástarsamband 14 ára dóttur sinnar við hinn 18 ára David Ludwig. Hjónin höfðu séð mikla breytingu á Köru síðan hún kynntist Ludwig og ætluðu sér að koma honum frá henni með því að ræða við þau eins og fullorðið fólk. Ludwig hafði allt aðrar fyrirætl- anir og myrti hjónin fyrir framan börn þeirra og rændi Köru. Hann hefur nú verið dæmdur 1 tvöfalt lífstíðarfangelsi. MYRTIFORELDRA KÆRUSTUNNAR Það var margt sem Borden-hjón- in gátu þakkað íyrir á þakkargjörðar- hátíðinni. Elsti sonur þeirra, James, hafði lofað að koma með kærustuna sína heim yfir hátíðimar og Michael og Cathryn höfðu endurheimt Justin son sinn heilan á húfi frá vígstöðum í írak. Hjónin trúðu á Guð og Mich- ael kenndi á sunnudögum í kirkj- unni á meðan Cathryn notaði kenn- araréttindi sín til að kenna bömun- um sínum heima við. Þau byggðu heimili sitt á trú sinni og vom ánægð með þá aðferð sem þau notuðu í uppeldinu og stolt af báðum upp- komnu sonum sínum og ánægð með hvemig uppeldið gekk með yngri bömin, David 11 ára, Katelyn 15 ára og Köm 14 ára. Of mikill aldursmunur Upp á síðkastið höfðu þau þó haft nokkrar áhyggjur af Köm. Unga, káta stelpan þeirra hafði breyst mik- ið upp og eyddi mestum tíma sínum lokuð inni í herbergi sínu, vaírandi um á netinu. Þau vissu hins vegar ekki að á nætumar klifraði David Ludwig inn til hennar. Hjónin vom þó viss um að breytingarnar væm meðal annars vegna sambands hennar við Ludwig. Samband þeirra hræddi þau enda Kara aðeins 14 ára. Ekki það að Ludwig kæmi úr slæmri fjölskyldu. Alls ekki. Hann hafði einnig fengið kristilegt uppeldi og verið kennt heima og kynnst Köm á samkomu bama sem vom í heima- i David Ludwig Hann haföi einnig fengiö kristilegt uppeldi og veriö kennt heima og kynntist Köru á samkomu barna sem voru i heimanámi. Kara Borden Unga, káta stelpan þeirra haföi breyst mikið upp á slðkastið og eyddi mestum tíma slnum lokuð inni I herbergi sínu, vafrandi um á netinu. námi. Áhyggjurnar stöfuðu af því að Ludwig var 18 ára og því of gamall til að vera kærasti Köm. Þau höfðu reynt að slíta sambandinu á milli krakkanna en ekkert virtist duga. Eitt kvöldið ákváðu hjónin að þetta gæti ekki gengið og ætluðu að ræða við unga parið af alvöm. Horfðu á pabba sinn skotinn Þann 13. nóvember 2005 kom Kara heim í fylgd Ludwigs eftir að hafa sagst ætla að gista hjá vinkonu sinni. Lítið er vitað hvað gerðist næst en samkvæmt dagblöðum var Lud- wig öllu viðbúinn þar sem hann hafði byssur og hnífa á sér. Michael bað Ludwig um að skilja bakpoka sinn eftir fyrir utan á meðan þau ræddu saman en vissi ekki að hann hefði laumast til að setja byssuna ofan í vasa sinn. Grunlaus sneri Michael baki í drenginn og gekk inn á undan honum. Sér til hryllings horfðu bömin á þegar faðir þeirra var skotinn aftan í höfuðið áður en Ludwig réðst inn í húsið og skaut Cathryn einnig til bana. Saklaust fórnarlamb Eftir morðin flúði Luwdig af staðnum með Köm í eftirdragi. Lög- reglan kom fljótt að heimifinu og umkxingdi það. David litli hafði strax hlaupið af stað til nágrannana en gleymdi að segja að morðinginn væri flúinn af staðnum. Þegar lög- reglan gerði sér grein fyrir að Ludwig væri horfinn var hann þegar kominn með tveggja klukkustunda forskot. Lögreglan taldi frá byijun að Kara væri saklaust fómarlamb í mál- inu. Hún hefði ekki vitað um fyrir- ætlanir Ludwigs og að hann hefði í rauninni rænt henni eftir morðin. Daginn eftir fannst bíll hans og eftir æsilegan eltingarleik ók Ludwig á tré. Hvorki hann né Kara slösuðust og Ludwig veitti enga mótspymu þegar hann var handtekinn. Kara var þó á barmi taugaáfalls. Mismunandi sögur grassera Ludwig var strax færður í fangelsi en Kara send til ættingja. Fjölmiðlar fjölluðu mikið um hvort Kara hefði farið sjálfviljug með honum eftir morðin eða hvort hún hefði verið í ástandi til að taka sjálfstæðar ákvarðanir eftir að hafa séð foreldra sína tekna af lífi. Einn fjölmiöill, AP- fréttastofan, sagðist hafa eftir systur Köm að hún hefði hlaupið í áttina að bflnum og öskrað á Ludwig að drífa sig. „Við skulum fara eins langt og við komumst, giftast og hefja nýtt líf.“ Blogg og myndbönd finnast Lögreglan varðist lengi allra frétta og hefur ekki enn gefið margt upp sem fjölmiölar hafa velt sér yfir. Vitað er að lögreglan komst yfir blogg ungmennanna og að mynd- bandsspólur af þeim hafa fundist. Á einu myndbandinu sést Ludwig hrósa sér af bólförunum við Köm og láta í ljós löngun sína til að sænga hjá Köm og systur hennar á sama tíma. Á öðmm myndbandsspólum sést Ludwig ásamt vini sínum, þar sem þeir em vopnaðir með grímur fyrir andlitunum og ræða um inn- brot á heimili og aðra glæpi en talið er að hann hafi haft afar frjótt ímyndunarafl. Tvöfalt lífstíðarfangelsi og ólöglegt samræði David Ludwig var á dögunum dæmdur í tvöfalt lífstíðarfangelsi. r- Morðingi Lögfræðingur hans hafði mælt meðað hann semdi við saksóknarann til að komast hjá dauðarefsingu. Hann játaði á sig morðin og ólöglegt samræði við Köru. Lögfræðingur hans hafði mælt með að hann semdi við saksóknarann til að komast hjá dauðarefsingu. Hann játaði á sig morðin og ólöglegt sam- ræði við Köm. Kara býr nú í öðm fylki hjá ættingjum sínum. Hún var ekki viðstödd þegar dómurinn yfir fyrrverandi kærasta hennar var les- inn upp. Dómarinn sagði glæpinn sérstaklega ógeðfefldan og sagði gjörðir Ludwigs „sjálfselskar og óþarfar" og að þær hefðu endanlega breytt lífúm margra. „Ég talaði við systkini og börn þeirra látou og komst að því að þau vildu ekki dauðarefsingu. Þau vildu ekki draga málið lengur en nauðsyn krafðist vegna yngstu bamanna," sagði dómarinn. Michael og Cathryn Borden vom jarðsett í bænum þar sem yfir 500 manns fylgdu þeim til grafar. Kara mætti í jarðarförina umkringd systk- inum sínum en fjölmiðlum var hald- ið fjarri. Breskur sápuóperuleikari hefur veriö kærður fyrir aö nauöga 21. árs stúlku. Leikari kærður fyrir nauðgun Bresk stúlka hefur kært leikarann Chris Quinten fyrir nauðgun. Stúlkan, sem er 21 árs, segir hinn 48 ára leikara hafa ráðist á sig eftir að hafa tekið kókaín með honum á skemmtistað. Stúlkan segist hafa reynt að ýta Quinten af sér en að það hafi ekki tekist. „Ég var mjög hrædd og hjálparvana og vissi ekkert hvað ég átti að gera. Hann hélt mér niðri, setti á sig smokk og nauðgaði mér," sagði stúlkan og bætti við að leikarinn hafi beðið hana um að segja engum frá atburðinum. Quinten, sem er best þekkur fyrir leik sinn í breskum sápuóperum, neitar sekt og segir kyn- mökin hafi verið með samþykki stúlkunnar. í dag starfar Quinten aðallega sem skemmtana- stjóri á næturklúbbi. Hann segir að stúlkan hafi komið reglulega á skemmtistaðinn og að þau hafi verið góðir vinir. Hann neitar einnig að hafa haft eiturlyf um hönd. Málið heldur áfram fyrir dómstólum. iv' mT- Chris Quinten Leikarinn hefur að mestu leyti snúið baki við leiklistinni og ernú skemmtanastjóri á nætur- klúbbi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.