Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2006, Síða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2006, Síða 42
54 FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ2006 Helgin DV UM HELVÍTIS- PREDIKANIR PRESTA OGHJÁ TRÚARFULLA HEIMSKINGJA BOLBÆNIR Hún æddi á eftir mér og steytti hnefann: „Megi illt henda þig! Ég legg á þig illt!“ Ung, reið sígaunakona sem við höfðum neitað að gefa meiri peninga í borginni Massa á Ítalíu var gjörsamlega tryllt. Mér stóð hreinlega ekki á sama. Kannski virka bölbænir? Nú, níu árum síðar hafa bölbænir hennar ekki ræst, en er eitt- hvað til sem heitir bölbæn og er það rétt að í Biblíunni segi að við getum jafnt notað bænir okkar til göðs og ills? „Nei, „bölbænir" í Gamla testa- mentinu voru nánast alltaf viðvaranir og ieiðbeiningar til fólks um að lifa eftir Sáttmálanum," segir Ágústa Guðmundsdóttir Harting, sem rekur Families Against Cults (Fjölskyldur gegn villutrú) í Indiana- polis í Bandaríkjunum. „Þetta hafði ekkert að gera með einstaklinga sem lögðu persónulegar bölbænir á aðra. •Aðrar svokallaðar bölbænir voru eingöngu notaðar af heiðingjum í trúlausum samfélögum, líkt og nú, af hjátrúarfullum heimskingjum sem telja sig hafa eitthvert vald æðra Guði. Jesús kenndi okkur að biðja fyrir þeim sem ofsækja okkur og gera óvinum okkar gott. Það gerum við með því að biðja fyrir þeim sem senda okkur illar hugsanir." Engin sannkristin manneskja biður fyrir illu Hvaö þá meö „auga fyrir auga, tönn fyrir tönn “? Á ekki að hefna sín? „Þessi setning er úr lögum gyð- inga í Gamla testamentinu," svarar Ágústa. „Jesús kenndi okkur hins vegar að elska, fyrirgefa og biðja fyr- ir óvinum okkar, jafnvel að bjóða þeim hinn vangann. Munurinn á boðskapnum liggur í augum uppi." Nú er til fólk sem segist vera mjög trúað og bænheitt og staðhæfir að það geti jafnt notað bænir sínar til góðs sem ills, Guð heyri allar bænir. „Enginn sá sem er sannarlega trúaður og gengur með Jesú myndi nokkru sinni biðja fyrir öðru en góðu til handa annarri manneskju, hversu illt sem henni hefur verið gert. Hinsvegar segir Drottinn „hefndin er mín“ og ef einhver þarf að gjalda fyrir misgjörðir á jörðunni er það Guðs að dæma, ekki annarrar manneskju. Það er aðeins Guð sem þekkir hjörtu mannanna og að stæður þeirra. Ef svo væri ekki • væru „bölbænir" óvina okkar og þeirra sem er illa við okkur, löngu búnar að drepa okkur! Ég þekki persónulega nokkra í gegnum starf mitt sem eru enn hissa að þeirra bölbæn- ir gegn okkur Daniel manni mínum og samtökunum Families Against Cults skuli ekki hafa virkað!" Bölbænir eru til Sr. Hjörtur Magni Jó- hannsson, Fríkirkjuprestur, segir að til sé eitthvað sem kaliast bölbænir. „Yfirleitt er það tengt við álög sem einhverjar illar vætt- ir eru fengnar til að setja á fólk af illum vilja, til dæmis í hefndarskyni eða af afbrýðis semi. En þar er leitað á náð ir myrkraaflanna en ekki Guðs kærleikans og ljóss- ins. Hér er um and- stæður að ræða, gott og illt, 1 ós og myrkur, von og vonleysi. Eins getur einfaldlega verið um galdra að ræða eða tii dæmis vúdú sem eru ævaforn andatrúarbrögð upprunnin í Afríku og hafa verið áhrifamikil á Haíti til að mynda. En slíkar bænir eru ekki beðnar til þess Guðs sem kristnir menn fylgja því hann er kærleikur- inn sjálfur og veldur þar af leiðandi ekki böli." En er ekki talað um böl í Biblí- unni? „Jú, i Biblíunni er vissulega talað um um blessun og bölvun eins og til dæmis í fimmtu Mósebók 11: 26-28 þar sem segir; „26. Sjá, ég legg fyrir yður í dag blessun og bölvun: 27. blessunina, ef þér hlýðið skip- unum Drottins Guðs yðar, sem ég býð yður í dag, 28. en bölvunina, ef þér hlýðið ekki skipunum Drottins Guðs yðar og víkið af þeim vegi, sem ég býð yður í dag, til þess að elta aðra Guði, sem þér eigi hafið þekkt." Bölvunin felst í því að víkja af vegi Drottins og leita til annarra Guða. Það er leiðsögn annarra Guða sem leiðir til bölvunar." Guð er ekki sjálfvirkur sjálfsali Hvað með þegar sannkristið fólk fulfyrðir að það geti beitt bænum sfnum jafnt til góðs sem ills? „Það gengur ekki upp að sá sem telur sig sannkristinn beiti bænum sínum til ills. Það að einhver fullyrði að hann geti beitt bænum sínum jafnt til góðs sem ills vegna þess að Guð heyri allar bænir er í raun út í hött. Þar er gengið út frá rangri guðsmynd. Sá Guð sem kristið þeim Sera Hjórtur Magni: .Poð <■ fólk almennt játast er enginn sjálf- virkur rafrænn sjálfsali sem gubbar út bænasvörum að vild misvitra manna. Guð hinnar hebresk-kristnu arfleifðar er margfalt mikilfenglegri en svo. Hann er himnasmiðurinn sjálfur, vitrænn höfundur alls þess sem er fagurt og heillandi. Það er vilji Guðs að allir menn njóti bless- unar. En bölvunin kemur fyrir mis- gjörðir manna þegar menn brjóta hans kærleikssáttmála og víkja af þeim góða vegi sem hann skaparinn hefur hannað fyrir sköpun sína." En geta galdrar og álöghaft áhrif? „Já, eflaust geta galdrar og álög haft áhrif. Það er svo margt sem við takmarkaðar mannverur skiljum ekki í þeirri furðuveröld sem við hrærumst í að það væri lágkúrulegur hroki að ætla sér að útiloka óþekktar andlegar víddir og áhrifasvæði. En um leið er ég fullviss um að varnir við slíku er aldrei og hvergi hægt að kaupa fyrir peninga. Það er ekki hægt að verjast andlegum árásum með því að hlaupa út í búð og versla. Það er hvorki hægt í smáverslun né í stórmörkuðum sama hversu velvilj- að og elskulegt verslunarfólkið er. Varnir gegn andlegum árásum er heldur ekki hægt að kaupa af prest- um eða biskupum hefðbundinna trúarstofnana sem á miðöldum seldu syndaaflausn á góðu tilboðs- verði, samanber: „Jafnskjótt og gullið í hirsluna hrekkur, til himins upp sálin úr eldinum stekkur". Hel- vítispredikanir presta og biskupa sem boðuðu eld og brennistein, þjónuðu mkilvægum fjárhagslegum og efnahagslegum hagsmunum kirkjustofnunarinnar." Fólk í fjötrum galdra „Þegar ég þjónaði sem prestur á Suðumesjum í meira en áratug þá leitaði stundum til mín bandarískt fólk ofan af Keflavíkurflugvelli sem var frá Suðurfylkjum Bandaríkjanna. Það hafði meðal annars verið undir áhrifum vúdú og það vom hin erfið- ustu mál og það fólk var sumt vem- lega andlega fjötrað. Víst er að því dugði alls ekki að fara út í búð og eyða peningum!" Hvað ber okkur að gera ef við teljum að bölbænir hvúi á okkur? „Þá ber okkur að leita Guðs kærleikans og ljóssins. Hann er hvorki að finna í vöru- hillum verslana né heldur í stöðnuðum trúarstofnunum. Guð er að finna hið innra. Neisti hans er innra með þér, hann setti hann þar þegar hann skapaði þig. Þú þarft að leggja rækt við hann og glæða. Guð er að finna í heiðarleikanum, í sátt við umhverfið og skap- arann. Hann er að finna í einlægum kærleikssam- böndum þínum við þína nánustu. Guð er að finna í fyrir- gefningunni, hvatningunni, upp- örvuninni sem þú veitir öðmm og meðtekur síðan. Guð er einnig að finna í bæninni. í samtali við Guð og fyrirbæn fyrir öllum sem þú þekkir og í kringum Þig eru. Verndandi steinar: Herdls Bjömsdóttir IGjafírjarðarmeð steino til verndarýmsum erfíðleik- um. Steinadropar vernda druna. DV-mynd Pdll Bergmann Hann er að finna í kristinni trúararf- leifð, í heilagri ritningu og trúarsam- félaginu. Ef þú temur þér heiðar- leika og sáttfysi í samskiptum þín- um þá em afar litiar líkur á að þú fáir á þig nokkrar bölbænir. Og þær sem kunna að berast hafa þá engin áhrif, samanber. Rómverjabréf 8. kafli, 1 vers: „Nú er því engin fordæming fyrir þá, sem tilheyra Kristi Jesú. Lögmál lífsins anda hefur í Kristi Jesú frelsað þig frá lögmáli syndar- innar og dauðans". Síðan er eitt gott tvírætt heilræði að lokum: Þú skalt endilega biðja fyrir óvinum þínum því það fer ömgglega ekkert eins mikið í taugarnar á þeim og einmitt það!" Bölbæn sem virkaði Það þurfti ekki að spyrja marga þeirrar spurningar hvort bölbæn hafí verið lögð á þá. Fimm barna móðir upplifði í vetur að sfyggja konu, sem kvaddi hana með þeim orðum að hún myndi leggja á hana. Daginn eftir vaknaði móðirin með innvortis verki, sem hún segir hafa staðið ínokkrar vikur. „Fyrst hélt ég að þetta væri af völdum einhvers sem ég hefði borð- að, en þegar ég uppgötvaði að ég var sú eina sem veiktist, fóm að renna á mig tvær grímur. Ég hef ekki trúað á bölbænir hingað til, en geri það nú. Hins vegar var mér bent á að biðja fyrir þeirri sem lagt hafði á mig. Ég talaði við Jesúm og Guð, hátt og í hljóði og bað þá að taka af mér þetta böl. Það leið ekki á löngu þar til ég varð alheil. Þetta er aðferð sem ég mun beita verði ég svo óheppin að hitta aftur manneskju sem vill mér illt. Bænin er sterkari en bölið." Kristall og orkusteinar tii verndar? Gjafír jarðar er verslun sem stendur við Ingólfsstræti 2. Þar er að fínna muni til verndar ýmsu og verslunareigandinn Herdís Bjöms- dóttir er ekki frá því að sjálf trúihún á bölbænir. „Ja, við vitum að það er hægt að senda kærleik og heilun. Því þá ekki það gagnstæða?" spyr hún og segisl telja sig hafa upplifað að lagt hafi verið á sig. „Ég fann að það var komið eitt- hvað óþægilegt í ámna mína sem mér leið ekki vel með og hafði ekki verið þar áður. Það liðu nokkrir dag- ar þar til mér tókst að iosna við það úr árunni." Koma margirí verslunina til þín í leit að einhverju sér til verndar? „Já, það er algengt. Nokkuð margir segja mér að lagt hafi verið á þá og fólk talar þá um veikindi, van- líðan, svefnleysi og ásóknir. Fólk vill fá vernd gegn orkusugum, óheppni, fíkn og bölbænum." Hvað verndar fólk best gegn böl- bænum? „Bænin um vernd er mjög mátt- ug, en steinar og kristallar aðstoða okkur einnig. Ég tel að það sé mikil- vægt að biðja fyrir þeim sem líður svona illa, því að sá eða sú sem er að reyna að skaða aðra með svona sendingum er í miklu ójafnvægi og vanlíðan. Ekki senda neitt neikvætt til baka, því þeir sem em að senda erfiða orku eða bölbæn á aðra fá það fyrr eða síðar til baka aftur." Hvað myndir þú gera sjálfefein- hver legði á þig bölbæn? „Ég hjúpa mig verndarljósi að morgni og bið um vernd, ég hef góð- an stein um hálsinn eða í vasanum. Ég fer líka reglulega í heilun og nota einnig steina og blómadropa mér til styrktar." Trúir þúþvíað hið illa sé sterkara enhiðgóða? „Nei! Það góða er sterkara." annakristine@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.