Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2006, Page 49

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2006, Page 49
Helgin PV FÖSTUDAGUR 23. JÚNl2006 61 „Ég keppti meira að segja í keilu og fer afog til enn í dag með stráknum mínum og finnst það mjög gaman MÆTIÞRISVAR í VIKU í RÆKTINA „Ég gæti engan veginn hugsað mér lífið án hreyfingar," segir Svava Johan- sen verslunarkona og bætir við að hreyfingin sé lífsnauðsynleg fyrir hennar lífsmimstur. „Ég hef verið í líkamsrækt frá 16 ára aldri og hef verið í World Class í Laugum frá því þar opnaði og reyndar fylgt Bjössa f World Class frá því að hann opnaði í Fellsmúla. Ég mæti yfirleitt þrisvar í viku en alls ekki oftar því þá dett ég frekar út í lengri tfma," segir hún og bætir brosandi við að hún hafi eitt árið mætt fimm sinnum í viku sem hafi endað með árspásu. Svava hefur verið hjá sama einkaþjálfaranum, henni Lóló, síðast iðin fimm ár. „Ég vil ekki vera of vöðvuð heldur fer til að fríska mig og tek æfing- ima oftar og tek léttari lóð og svo er alveg nauðsynlegt að teygja vel á eftir. Við konur eigum ekki að vera of massaðar, það fer okkur ekki." Aðspurð seg- ir hún flott líkamsræktarföt ekki aðalmálið þegar kemur að því að mæta í ræktina. „Ég held að það skipti þó miklu máli að láta sér líða vel í æfingagall- anum, að maður sé sáttur við sig í honum. Við erum jú þama til að láta okk- ur líða vel andlega og líkamlega og viljum líta vel út, hvort sem er þama eða úti á götu." Svava hefur alltaf stundað einhverja hreyfingu. Hún var í badminton sem unglingur og var liðleg í keilu í kringum tvítugt. „Ég keppti meira að segja í keilu og fer af og til enn í dag með stráknum mínum og finnst það mjög gam- an,“ segir hún og bætir við að henni líði alltaf vel efdr að hafa hreyft sig. „Ég fór að fara í nudd einu sinni í viku fyrir nokkrum árum og finnst það alveg ómissandi sem og að teygja vel á eftir æfingamar," segir Svava að lokum. Svava Johansen „Ég held að það skipti þó miklu máli aðláta sér liða vel iæfingagall- anum, að maður sé sáttur við sig i honum. Við erum jú þarna til að láta okkur líða vel andlega og líkamlega og viljum lita vel út, hvort sem er þarna eöa úti á götu. “ DV-Mynd Stefán Elfn Reynisdóttlr og Am- hlldur María Reynisdóttlr Systurnar eru duglegar í Boot Camp. Elín smitaðist eftir að hafa séð glæsilegan árangur systur sinnar. DV-Mynd Teitur ALDREIIBETRA FORMI „Ég er búinn að vera í Boot Camp í rétt rúman mánuð og finnst þetta al- gjör snilld," segir dagskrárgerðarmaðurinn Sverrir Bergmann Magnússson. „Að mínu mati er þetta málið fyrir venjulegt fólk sem nennir ekki að fara í ræktina. Sérstaklega ef þú æfir einn því þá er gott að hafa þjálfarana til að píska þig áfram þótt þeir geti verið ansi ljúfir þessir drengir inn á milli," seg- ir Sverrir og bætir við að hann hafi verið með svo mikla strengi til að byija með að hann hafi varla getað gengið. „Ég hef alltaf verið í einhveijum íþrótt- um en þetta er skemmtilegasta hreyfingin sem ég hef prófað, kannsld fyrir utan körfuboltann. Manni líður svo vel á eftir, er dauðþreyttur og ánægður með sig.“ Sverrir segir engar afsakanir duga, nú ættu allir að drífa sig af stað. „Ég hef aldrei verið í betra formi og mæli með þessu fyrir alla. Það er um að gera að drífa sig af stað áður en fólk morknar í sófanum. Þetta er aðeins klukkutími þrisvar í viku og það er bara gott um þetta að segja," segir hann og bætir við að hann taki mataræðið með enda sé ekkert annað hægt. „Ef þú ætlar að ná árangri verðurðu að taka mataræðið í gegn líka. Þú getur hlaupið í klukku- tíma en það gerist ekkert ef þú dúndrar í þig einhverri óhollustu á eftir." „Ég byijaði í Boot Camp eftir að hafa séð árangurinn hjá systur minni," segir Elín Reynisdóttir förðunarfræðingur sem hefur stundað herþjálfunina núna af kappi í tvo mánuði hjá Hnefaleikafélagi Reykjavíkur. Elín kolféll fyrir þessari erf- iðu hreyfingu. „Þetta er frábært og ég mæÚ með að allir prófi. Ég er orðin alveg sjúk og búin að kaupa mér árskort," segir hún en viðurkennir að æfingamar séu svo erfiðar að það hálfa væri nóg. „Við erum til dæmis látin hlaupa þijá k£l<5- metra, gera 300 æfingar og hlaupa aftur 3 kílómetra. En maður getur þetta, það er það besta," segir hún brosandi og bætir við að hún hafi komið sjálfri sér mik- ið á óvart. „Ég myndi aldrei reyna svona mikið á mig í ræktinni enda er ég að sjá árangurinn. Við fáum aldrei frí, það er sama hvaða dagur er eða hvemig veður er og maður kemst í svona GI Jane fíling," segir Elín hlæjandi. Aðspurð segist hún ekki lengur fá strengi en að þeir hafi verið miklir til að byija með. „Ég var ábyggilega með strengi stanslaust í mánuð en þeir em að hverfa núna. f fyrstu fékk ég nýja og nýja strengi eftir hvem tíma en maður mæt- ir samt og þá fara þeir fljótt." Elín segir alls konar fólk í alls konar foimi mæta í Bootcamp. „Það er náttúrulega betra að vera í smá formi en þetta er svo snöggt að koma og það em allir svo ánægðir enda er Boot Camp langskemmtilegasta líkamsræktm sem ég hef komist í. Það getur verið erfitt að vakna á morgnana en það er bara fyrstu tíu mínútumar. Eftir nokkra daga ertu farin að finna fyrir svo miklum mun og byijuð að styrkjast, þetta er alveg ótrúlegt." V__________________________________________________J J indiana@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.