Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2006, Blaðsíða 58

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2006, Blaðsíða 58
70 FÖSTUDAGUR 23. JÚNl2006 Fréttir DV Bónus flytur inn þorsk frá Svíþjóð Þetta hlýtur að vera svipað og að selja sand í Sahara eða grjót á Grænlandi. Bónus býður nú við- skiptavinum sínum upp á þorsk P'gH sem verslunarkeðjan flytur UaáU inn frá Svíþjóð. Guðmund- ur Marteinsson framkvæmdastjóri Bónuss segir í samtali við Frétta- blaðið að þeir fái þorskinn á mun hagstæðara verði í Svíþjóð en niðri á höfn hér í Reykjavík. Þessi sænski þorskur selst víst eins og heitar lummur og ætlar Bónus að halda áfram að flytja hann inn. Það er eitthvað stórt ha? í þessu öllu því Svíar eru þekktir fyrir allt annað en að veiða þorsk. Raunar veiða þeir aðeins „örfá tonn" á ári úr Eystrasaltinu og dugir sá afli eng- an veginn fyrir innanlandsmark- að. Svíar flytja sum sé inn megnið af þeim þorski sem étinn er þar- lendis. Og einhvers dtaðar hljóta þeir að fá þennan þorsk á tombólu- verði ef það borgar sig fyrir Bónus að flytja hann svo hingað til lands en fá hann samt ódýrari en nið- ur á næstu bryggju. Og það er ekki bara þorskurinn sem er ódýrari í innflutningi frá Svíþjóð en keypt- ur úr næstu trillu. Laxasneiðar og fiskifingur eru einnig til sölu í Bón- us þótt flutningskostnaður yfir Atl- antshafið sé tekinn með í dæmið. Sænskur þorskur Starfsmaður Bónuss með sænskan þorsk sem Bónus selur á hagstæðu verði þessa dagana. V • Furðufréttin Ekki-fréttir nýjasta nýtt „Spears íhugar ekki að fæða barn sitt í Namibíu" var fyrirsögn fréttar í Morgunblaðinu í vikunni. Þessi frumlega fyrirsögn stendur fýllilega undir því ein og sér að fréttin öll geti talist furðufrétt vik- unnar. Og ekki bara það heldur opnar fyrirsögnin dyr fyrir hyskna blaðamenn sem nenna ekki að afla frétta: „Geir íhugar ekki af- sögn" - „Guðni ætlar ekki í Sjálf- stæðisflokkinn" - „Sveppi íhugar ekki kynskiptiaðgerð". Möguleik- arnir eru ótæmandi. Eina sem þarf er örlítið hugmyndaflug og svo er bara að skrifa það sem andinn blæs mönnum í brjóst. Þessi fyrirsögn leit dagsins ljós í þeim efnisþætti sem ber yfir- skriftina FóÚc og ætlar að reynast gamla, góða vammlausa Mogga hið mesta vandræðaspil. Þannig hefur verið bent á að á meðan fréttir af persónulegum högum Islendinga eru langt fyrir neð- an virðingu þeirrar ritstjórnar- stefnu sem Mogginn fýlgir þá er ekkert mannlegt óviðkomandi þeim sem skrifa í Fólk. Þá er í góðu lagi að vera með nefið ofan í hvers manns koppi og eru skiln- aðir fræga fólksins, áhugamál, barneignir og kynlíf þar ofarlega á blaði. En að því tilskildu að við- komandi frægðarfólk sé údenskt. Enda byggja fr éttirnar í Fólki á er- lendum tabloid-blöðum og gott að geta borið þau fýrir sig og jafn- vel fordæmt um leið og þau eru skálkaskjól til að segja sömu frétt- irnar. En tvíbent. Má þetta heita tvískinnung- ur en erfitt að sjá hvernig snúa má sig með góðu móti úr þessari stöðu. Því vitað er að þessi efnis- þáttur er með því vinsælla sem Mogginn býður upp á. Þannig að tvískinnunginn er ekki hægt að skrifa með öllu á Moggann sem þarna er að bjóða upp á það sem fólkið vill, heldur á lesendur. Eða hvað? Sprengdur í loft upp En starfið er spennandi Valdimar Jóhannsson áhættii- leikari eða „stuntman" eins og það kallast á fagmálinu hefur dvalið hér- lendis að undanförnu og unnið við áhættuatriðin í myndinni Köld slóð. Hann hefur unnið sem áhættuleikari í ýmsum þekktum og minna þekkt- um kvikmyndum erlendis og hitt ýmsar stjörnur á ferli sínum undan- farin áratug eða svo. Hann segist oft hafa verið sprengdur í loft upp en að starf sitt sé óneitanlega spennandi. Valdimar er fæddur í Lúxemborg en faðir hans var flugmaður hjá Cargolux. Hann flutti heim til Reykjavíkur 9 ára gamall. Þegar hann var um tví- tugt ákvað hann að fara í skóla fyrir áhættu- leikara í Flórída. „Ég hafði eiginlega ekkert að gera á þessum tíma og sá þennan skóla á netinu," segir Valdimar sem skömmu síðar var sestur á skólabekk í Kahanas-Stunt School. „Eftir að hafa stundað skólann og lokið námi þar hóf ég að vinna við áhættu- atriði í kvikmyndum. Ég fór svo aftur í skólann til að mennta mig betur í ýms- um sérhæfðum at- riðum auk þess sem nám kennsluréttindum í þessu fagi." Valdimar vinnur mest í New York og síðasta verkefni hans þar var í myndinni Little Children með Kate Winslet í aðalhlutverki. Aðspurður um hvort hann hafi hitt hana á töku- stað, segir Valdimar svo ekki vera. „Daginn sem við áttum kost á að sjá hana á tökustaðnum rigndi svo mik- ið að hún hélt sig inni í húsbíl sínum allan daginn." Af þekktum persónum sem Valdi- mar hefur rætt við á tökustöðum nefnir hann Martin Scor- sese, Oliver Stone, Jam- es Woods og Camer- on Diaz. Hann átti aðeins orðastað við leikstjórana tvo um vinnuna en minnist þess að hann ræddi við James Woods um daginn og veg- inn. „Woods er ein- hver kurteisasti maður sem ég hef kynnst, mjög lát- laus og blátt áfram," segir Valdimar. Af þeim erlendu myndum sem Valdimar hef- ur unnið við hérlendis er James Bond-mynd- in Die Another Day þekktust. Og þeir sem vilja sjá Valdimar „in act- ion" í þeirri mynd er bent á vélsleða- atriðið á jöklinum. Valdimar er einn af vondu gæjunum sem koma á eft- ir Bond á vélsleða þegar hetjan svíf- ur í fallhlíf niður á jökulinn. Bond strengir fallhlífasnúrur sínar á milli tveggja ísjaka og fellir Valdimar þannig af vélsleðanum. „Ég er á um 50 kílómetra hraða þegar ég skell á snúrunum og þeytist aftur á bak," segir Valdimar. „Þetta atriði hefur vakið nokkra athygli og ég hef séð umfjöllun um það á netinu." Á næstunni heldur Valdimar í frí til Bahamaeyja og bíður svo eftir næsta verkefni. Sjá einn- ig gömlu myndina hér á síð- James Woods Etnhver kurteisasti maðursem Valdimar hefurhitt. Die Another Day Svipmynd úr Bond-myndinni sem Valdimar vann við hér á landi. Atriði hans hefur vakið athygli og verið til umræðu á netinu. Britney Spears Lesendur Moggans vita nákvæmiega allt um ekkert þegar Spears er annars vegar. Selja þeir Svíagrýlur? Alelda fyrir utan Perluna Gamla myndin að þessu sinni er tekin fyrir utan Perluna árið 1998 og sýnir áhættuleikarana Valdimar Jó- hannsson og Brynjólf Einarsson al- elda í atriði sem þeir settu á svið. „Hugmyndin að þessu hjá okkur kviknaði út ffá Pink Floyd plötunni Wish You Were Here," segir Valdi- mar. „Mig langaði til að prófa þetta og við feng- um okkur jakkaföt og létum slag standa." Valdimar segir að þótt slökkviliðið hafi ekki verið til staðar hafi þeir gætt fyllsta ör- yggis við áhættuatriði þetta og að fé- lagar þeirra hafi verið reiðubúnir með handslökkvitæki ef eitthvað hefði far- ið úrskeiðis. Valdimar hefur unnið sem áhættu- leikari undanfarin áratug og ferðast víða um heiminn sökum starfa sinna. Af eftirminnilegum kvikmyndum sem hann hefur unnið við má nefna Gangs of New York og James Bond myndina Die Another Day. „Það er mjög upp og ofan hve mikið mað- ur hefur að gera sem áhættu- leikari enda er þetta ekki venjuleg átta til fimm vinna," segir Valdimar. „Undanfarið hef ég þó haft nóg að gera og það er einnig nóg að gera framundan," segir hann. „En það koma oft lengri og styttri tímabil þar sem ekk- ert er að gera." Valdimar hefur verið hér heima undanfarnar vikur og hefur með- al annars unnið við gerð myndar- innar Köld slóð og leikið í bflaaug- lýsingum. Hann reiknar ekki með að framkvæma Perluatriðið aftur. „Bensínverðið er orðið of hátt fyrir Eldsvoði Valdtmar Jóhannsson áhættuleikari ásamt félaga sinum alelda fyrir utan Perluna. Á innfelldu myndinni er Valdimar i dag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.