Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2006, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2006, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2006 i Fréttir DV Stefán Hjálmarsson kenndi í nær þrjátíu ár 1 Brekkubæjarskóla á Akranesi. Lögregl- an á Akranesi greip hann í skólanum fyrr i þessum mánuði þar sem hann var að prenta út klámfengnar myndir af börnum. Honum var umsvifalaust vikið úr starfi. Stefán segist hafa leitað til sálfræðings vegna gerða sinna. •Prófkjörsbaráttan er nú í al- gleymingi hjá sjálfstæðismönnum og í sumum tilvikum hlaupin pan- ík í kandídatana. Ásta Möller ku hafa brugðið á það ráð að 8fá markaðsfyrirtæki til að hringja út til kjós- enda þegar hún /'*'% frétti að lllugi L - * 9k Gunnarsson hefði ■ hringt n ú'eil- efu þúsund símtöl... ilUii f 1 illugi I— * rsson ' aa •Téður Illugi var á sínum tíma að- stoðarmaður Davíðs Oddssonar í ráðherratíð hans og því vel skól- aður í pólitískum hráskinnaleik. Annar prófkjörskandídat og fyrr- verandi aðstoðamaður ráðherra, Ármann Kr. Ólafsson forseti bæjarstjórnar Kópavogs, hefur ný- lokið viðlíka skólagöngu hjá Árna Matthiesen fyrst í sjáv- arútvegsráðuneytinu og síðar í fjármáíaráðu- neytinu en hann hafði áður lokið forskólagöngu hjá Halldóri Blöndal í samgönguráðuneyt- inu... •Árni var ekki lengi að flnna sér nýjan nemanda og sótú hann til Reykjanesbæj- ar en formað- ur bæjarráðs þar Böðvar lóns- son viðskiptafræðingur sest nú á skólabekk hjá Árna. Hvort hann þarf á 11 ára skólagöngu í ráðu- neyti að halda eins ogÁrmann til að þora í prófkjör er óvíst en ein- hver hætta mun á að ráðuneytis- skólarnir verði lagðir niður í vor... •Annar Möller er í hremmingum en fréttir berast af hat- rammri baráttu Kristjáns Möllers alþingismanns við Benedikt Sigurðsson aðjunkt við Háskólann á Akureyri og mun Kristján vera farinn að ótt- ast um þingsætið því Akureyringar eru staðráðnir í að ná sem flest- um Akureyringum inn fýrir Norð- austurkj ördæmið. •Eins og kunn- ugt er af fréttum hefur St. Martin Press í Bandaríkj- unum nú gefið út aðra bók eftir Amald Indriðason í Bandaríkjunum, Grafarþögn eða Silence of the Grave. Fyrsta bók- in, Mýrin eða Jar City, seldist ekki í neinum risaupplögum þama vestanhafs en þó þokkalega mið- að við fyrstu bók. Útgáfan sér eitt- hvað við Arnald og mun vera með langtímaáætlun í gangi um að koma honum á framfæri á þess- um markaði. Munu því samningar um útgáfu á fleiri bókum Amalds í Bandaríkjunum vera í bígerð... •Nýir eigendur Sportbarsins á Hverfisgötu Jón IJafnfjörö og Hjörleifur Hall- dórsson ætla að efna til mikils opnunarteitis á morgun laugardagskvöld en það verður jafnframt lokahóf fyrri eig- anda Björns Þórissonar. Þeir fé- lagarnir ætla að bjóða öllum fasta- gestum Grand Rokk í teitið í þeirri von að einhverjir þeirra ánetjist staðnum. Þorsteinn Þórsteinsson vert á Grand Rokk er hins vegar pollrólegur því óendanlega marg- ar slíkar tilraunir hafa verið gerðar án árangurs... Brekkubæjarskóli á Akranesi Samkennarar mannsins sáu hann prenta út barnaklám. DV-Mynd: Eirlkur Kristófersson „Ég tel mig ekki hættulegan börnum' „Ég hef aldrei gert bömum neitt, þetta var bara í tölvunni," segir Stefán Hjálmarsson, fyrrverandi grunnskólakennari í Brekkubæjarskóla á Akranesi. Stefán var staðinn að verki af lögreglu fýrr í þessum mánuði við að prenta út barnakláms- myndir af netinu. Lögreglufulltrúi segir grun- semdir hafa vaknað eftir að sam- kennari Stefáns tilkynnti að sést hefði til hans prenta efnið út. Stefán var handtekinn á staðnum og játaði verknaðinn. Honum var sleppt að loknum yfirheyrslum en umsvifa- laust vísað úr starfi sínu en því hafði hann gegnt í nær þrjátíu ár. Lögreglan á Akranesi hefur skýrt frá því að bamaklám hafi ekld verið vistað í vinnutölvu Stefáns heldur hafi hann aðeins notað hana til að prenta myndir út af netinu. Ekkert bendi til þess að bömin í skólanum hafi rekist á klámið eða tengist málinu. Vinsælasti kennarinn Haftvarsambandviðnokkranem- endur sem Stefán hefur kennt. Allir báru honum vel söguna. Sögðu hann hafa verið valinn vinsælasti kennari skólans ár eftir ár og bæjarbúar væm slegnir yfir þessu. Einn greindi frá því að það væri mál manna á Akranesi að útprentunin í skólanum hefði verið kall á hjálp. Þetta væri einfaldlega of klaufalegt til þess að geta staðist. í samtali við blaðamann DV vildi Stefán ekki staðfesta að útprentun- in hefði verið ákall á hjálp. ítrekaði hann að bömum hefði hann aldrei gert neitt. „Ég get ekki tjáð mig meira um þetta nema hvað ég hef aldrei gert bömum neitt og leitaði mér strax hjálpar hjá sálfræðingi eftir að þetta komst upp," segir Stefán sem kveðst líða mun betur eftir að hafa fengið aðstoð. „Ég tel mig ekki hættulegan bömum eða öðrum og ég veit að það sem ég gerði var rangt," segir hann. Það er hægt að leita sér aðstoðar Bjöm Harðarson sálfræðingur hefur reynslu af mönnum með kyn- ferðislegar kenndir til bama. Hann segir hægt að hjálpa mönnum sem þjást af slíkum hugmyndum með meðferð. Aftur á móti sé lítið gert af því þar sem þeir geri sér sjaldnast grein fyrir að það sem þeir gera sé rangt og leiti því ekki aðstoðar. Hinir sem átti sig á gjörðum sínum séu oft svo yfirkomnir af skömm að þeir geta það ekki. „Það sem ber að hafa í huga er að það fer ákveðin þróun í gang áður en menn brjóta af sér. Fólk sem finnur fyrir einhverri kynferðislegri örvun í tengslum við böm ætti samstund- is að leita aðstoðar," segir Bjöm sem leggur ríka áherslu á að ef hugsunin er til staðar séu líkur á að henni verði Björn Harðarson, sálfræðingur segir mikilvægt aö fólk sem fmnur fyrir kynferðislegri örvun gagnvart börnum leiti sér hjálpar sem fyrst þvl þróunin virðist oft vera sú að áhuginn ágerist og endar með afbroti. hrint í framkvæmd. Fólki sem einu sinni hafi fundið fyrir kenndum til bama sé nauðsynlegt að halda sig frá þeim, rétt eins og aðrir fíkiar halda sig frá því sem kveildr hjá þeim fíkn. karen@dv.is Linda Pétursdóttir er aö flytja út til Vancouver með dóttur sína ísabellu „Núna erum við mæðgurnar tilbúnar til aðfara" Fegurðardrotmingin og líkams- ræktarfrömuðurinn Linda Pétursdóttir er að flytja úr landi ásamt dóttur sinni ísabellu sem er fjórtán mánaða. Stefnan er sett á Vancouver í Kanada en þar bjó Linda einmitt áður en kom til íslands snemrna á síðasta ári til að fæða ísa- bellu. „Það var alltaf ætlunin að fara aftur út. Ég kom til að fæða ísabellu og njóta aðstoðar fyrstu mánuðina. Nú erum við mæðgurnar tilbúnar til að fara heim til Van- couver, þeirrar yndislegu borgar," sagði Linda Pét- ursdóttir í einkaviðtali við DV í gær. Linda er nú í óða önn að pakka og stefnir að því að flytja út nú í byrj- un nóvember. Linda á fallegt hús í Vancouver og á ekki eft- ir að væsa um þær mæðgur á vesturslóðum. Eins og áður sagði flutti Linda til landsins til að fæða ísabellu og bjó hún fyrstu mánuðina hjá foreldrum sín- urn í Grímsnesi. Þaðan lá leið- á Arnamesið en síðustu mánuði hafa þær mæðgur búið í Vogahverfinu. Linda Pétursdóttir Flytur til Vanœuverl Kanada meö dóttursína Isabellu nú I byrjun nóvember. Fallegt hús Eins og sést á þessari mynd þá er hús Lindu afar fallegt og á glæsilegum stað I Vancouver.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.