Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2006, Síða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2006, Síða 35
PV Helgin FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2006 55 Daður er lífslist, segir Heiðar Jónsson snyrtir í viðtali við DV í dag. En er fólk almennt á því að daður sé nauð- synlegt krydd í tilveruna? Hvar eru mörkin - getur daður beinlínis verið hættulegur leikur að eldi? Þessar og fleiri spurningar lagði DV fyrir þrjá þjóðþekkta einstaklinga, sem svöruðu af heiðarleika og einlægni. DAÐUR: LÍFSGLEÐI, HÆTTA EÐA NAUÐSYN? Getur verið eins og gott„show" „Já, daður er nauðsynlegt innan skynsamlegra marka!" segir Guðrún Möller, fegurðardrottning og verslun- areigandi. „Daður er ákveðin líkams- tjáning sem er að mínu mati nauð- synleg í samskiptum kynjanna... Það eiga ekki allir auðvelt með að „tala" við þann sem þeim líst vel á og geta því gefið ýmislegt í skyn með daðri." Getur daður orðið hœttulegt? „Já, sé ekki rétt að því staðið getur daður líka verið hættulegt. „Ekki leika þér að eldinum" er ágætis viðvörun!!" Hefurþú daðrað? „Já, já, ég hef alveg daðrað, en þar sem ég er afbrýðisöm kona verð ég að viðurkenna að daður getur valdið af- brýðisemi! Daður getur verið ansi gott „vopn" þegar þér líst vel eða illa á ein- hvem, en ég held jafnframt að daður geti verið gott fýrir sambönd þar sem ríkir mikið gagnkvæmt traust og virð- ing. Að fýlgjast með einhverjum daðra vel er bara eins og gott show!" Daður ber vott um lífsgleði og sjálfsöryggi „Já, ég myndi segjá að daður sé nauðsynlegt innan skynsamlegra marka," segir Elma Lísa Gunnarsdótt- ir leikkona. „Ég held að það sé öllum hollt að daðra soldið. Það er líka mun- ur á daðri og viðreynslu. Mér finnst daður oft bera vott um lífsgleði og sjálfsöryggi. Sumir em fæddir daðrar- ar og aðrir ekki. Það fólk sem að mér þykir vænst um er daðrarar af guðs náð. Þegar maður er farinn að vera óheiðarlegur við sjálfan sig og aðra þá hefur fólk farið yfir fínu línuna og dað- ur orðið hættulegt." Hejurþúdaðrað? „Já, ég held ég sé bara nokkuð góð í að daðra, jafnt við konur sem karla! Það er fín lína að daðra á réttan hátt og daður getur verið nægileg ástæða til að vekja afbrýðisemi. Það getur ver- ið gott trikk til að vekja athygli eða af- brýðisemi að daðra, en það getur líka virkað öfugt. Hins vegar tel ég að það sé engin spuming að daður getur verið gott til að viðhalda neistanum í sam- bandi!" Glettið innlegg í samskipti kynjanna „Daður telst nú tæplega til brýnustu lífsnauðsynja," segir Árni Þórarinsson, blaðamaður og rithöfundur. „En það getur ver- ið skemmtilegt sem glettið inn- legg í samskipti kynjanna og gagn- legt sem aðferð við að færa ný eða jafnvel eldri kynni á annað plan, leið til að láta hitt kynið vita að sá sem daðrar hafi áhuga á nánari kynnum ef um semst og áhuginn er gagnkvæmur. Daður þjónar því sem eins konar mæling á gengis- skráningu viðkomandi - fólk daðr- ar til að komast á séns, til að tékka á hversu mikinn séns það á eða hvort það á nokkurn séns yfirleitt. Fína línan færist til eftir tíðarandanum. Á fyrri tíð, áður en jafnréttisbar- áttan missti mesta húmorinn, var daður sjálfsagt stundum á mörk- um þess sem í seinni tíð er kallað kynferðisleg áreitni. Sumar svo- kallaðar pikköpplínur nútímans eru þó mun grófari en áður var og mér hefur sýnst að daður hjá fólki sé stundum, þrátt fyrir alla jafnrétt- isbaráttuna, ansi nálægt glennu- gangi og ribbaldastælum, sem eru til marks um skefjalausa athyglis- sýki og skort á sjálfsvirðingu. Dað- ur getur orðið dálítið vúlgart ef í því er ekki húmor fyrir sjálfum sér og öðrum. Og daður fer illa saman við mikla vímuefnaneyslu, langþreytta höfnunarkennd og örvæntingu. Ég held að daður sé jákvæðast þegar bak við það er bæði húmor, einlæg- ur áhugi og hrifning.“ Hefurþú daðrað? „Já, já, já, einkum á síðustu öld, og eflaust stundum farið yfir þau mörk hófsemi sem ég nefndi áðan." Er daður ncegileg ástœða til að vekja afbrýðisemi? „Að sjálfsögðu getur svo verið. Ef einhver daðrar af fullri alvöru frek- ar en í gríni við annan en þann sem viðkomandi er í sambandi við er það til marks um virðingarleysi fyr- ir því sambandi. Ég myndi segja að daður sé slæmt trikk til að vekja at- hygli eða afbrýðisemi og lýsi van- þroskaðri athyglisþörf. Daður getur hins vegar verið gott til að viðhalda neistanum í sambandi, en aðeins ef daðrið beinist að þeim sem við- komandi er í sambandi við en ekki einhverjum öðrum." annakristine@dv.is Diddú: „Daðrari per exellance!" Jónsi söngvari: „Held að margir | geri sér ekki grein i fyrir hversu góður ' söngvari hann er, því fólk hrífst fyrst og fremst af persón- unni. Hann daðrar svo mikið að margir halda að konan hans L eigi erfitt með að ■fþola það. En gott ®samband þolir H daður." Daðrarar listalífsins: Daðrarar Ijósvakamiðlanna: Jónas Jónasson útvarpsmaður: „Það er náttúrlega hrein snilld að geta daðrað í gegnum útvarp. Jónas getur hvorki beitt líkamstjáningu né augunum, en daðrið berst beint til þess sem á hann hlustar." Hermann Gunnarsson: „Ótvíræð- ur sigurvegari. Myndi sigra í hvaða daðrarakeppni sem er! Hann er snill- ingur í að daðra við þjóðina gegnum sjónvarp og útvarp, enda sér ekki fýr- ir endann á frægðarferli hans í þeim miðlum." Þórhallur Gunnarsson: „Ótrúlegur daðrari. Kem- ur daðrinu vel til skila gegnum vélarnar." Daðrarar fegurðardrottninga: Unnur Steinsson: „Ólíkt Bryn- dísi daðrar Unnur með því að ögra." Bryndís Schram: „Bryndís hefur þann eiginleika að daðra í gleði. Það er ekki öllum gefið." I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.