Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2006, Side 57

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2006, Side 57
DV Síðast en ekki sist FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2006 77 Nína í nýjum búningi Stebba og Eyfa „Við höfum verið að syngja sam- an annað slagið í 15 ár og það hefur alltaf staðið til að taka upp plötu. Við höfum bara ekki gefið oldcur tíma til þess fyrr en nú," segir Stefán Hilm- arsson um plötuna Nokkrar nota- legar ábreiður sem hann gefur út í næstu viku ásamt félaga sínum Eyj- ólfi Kristjánssyni. Platan hefur með- al annars að geyma nokkur banda- rísk tökulög frá 8. áratugnum en þeir félagar sömdu íslenska texta við mörg þeirra. „Eyjólfur er hafsjór af fróðleik um bandaríska tónlist frá 8. áratugnum enda er hann alinn upp með hana í eyrunum. Þetta er búið að vera fróðlegt ferli fyrir mig því þetta er músík sem ég hef ekki hlust- að mikið á áður." Það er nú oft þannig þegar fólk heyrir minnst á tökulagaplötu koma slagarar upp í hausinn á manni. „Þetta er ekki slagaraplata en það eru þó tvö lög sem fólk ætti að kann- ast við. Annað þeirra er þegar kom- ið í spilun og heitir Góða ferð en B.G. og Ingibjörg gerðu það vinsælt veturinn 1974-1975 og það stefnir í álíka vinsældir núna. Svo má ekki gleyma Nínu sem við Eyfi tókum í Evrópusöngvakeppninni árið 1991 og settum í nýjan búning fyrir þessa plötu," segir Stefán. Stefán segir að það verði ekki auðvelt að fylgja þessari plötu eftir enda þeir báðir á kafi í öðrum verk- efnum sem og þeir hljóðfæraleikar- ar sem spiluðu inn á plötuna. „Við ætlum að minnsta kosti að halda út- gáfutónleika þann 30. nóvember í Borgarleikhúsinu og svo sjáum við til." Hljóðheimur plötunnar er allur í anda 8. áratugarins og því voru not- uð gömul hljóðfæri og allir sampler- ar og sequenserar skildir eftir heima. Þeir sem vilja heyra tóndæmi er bent á síðuna ftt.is/stebbiogeyfi. Stefán Hilmarsson og Eyjólfur Kristjánsson gefa útplötuna Nokkrar notaiegar ábreiður I næstu viku Söng fyrir fullu húsi Birgitta Haukdal sló i gegn ÍKrossinum seinasta fös tudagskvöld þegar hún söng þar fyrir fullu húsi. DV-Mynd Vilhelm Birgitta í Krossinum Fullt hús og svaka stemming Krossinn heldur á hverju ári hátíð sem þeir kalla herkvaðningu. Gunnar Þorsteinsson hjá Krossinum segir að þessi hátíð sé í raun orðin stærri en jólin hjá Krossinum. Herbílar og hermannagallar eru hlutí af hátíðinni og segir Gunnar að það sé verið að minnast þess að safnaðarmeðlimir Krossins séu hermenn Krists. Krossinn heldur á hverju ári hátíð sem þeir kalla herkvaðningu. Gunn- ar Þorsteinsson hjá Krossinum segir að þessi hátíð sé í raun orðin stærri en jólin hjá Krossinum. Herbílar og hermannagallar eru hluti af hátíð- inni og segir Gunnar að það sé ver- ið að minnast þess að safnaðarmeð- limir Krossins séu hermenn Krists. „Þetta var alveg virkilega gaman. Það mættu líka alveg rosalega marg- ir á tónleikana. Ég hef ekki upplifað svona stemmingu áður." segir Birg- itta Haukdal en hún söng fyrir fullu húsi seinasta föstudagskvöld á sam- komu í Krossinum. „Ég hef aldrei sungið hjá svona söfnuði áður. Ég hef sungið í Hall- grímskirkju og Grafarvogskirkju á tónleikum en aldrei hjá Krossinum eða öðrum söfnuði áður," segir Birg- itta sem er alveg í skýjunum yfir tón- leikunum. „Ég söng Angels eftir Robbie Willams, í bljúgri bæn og svo Son of a Preacherman. Þau báðu mig um að vera með í sumar og ég sagði hvaða lög hvað ég vildi syngja og svo æfði ég með sönghópnum Gig sem er sönghópur Krossins, þar eru sko stelpur sem kunna að syngja. Ég er viss um að þar eru söngkonur sem eru með þeim bestu á landinu," segir Birgitta kát. Foringinn Gunnar Þorsteinsson íKrossinum segir aö hann eigi eftir að vera lengi aðná sér eftir þessa tónleika, þeir hafi verið svo stórkostlegir. „Við verðum lengi að ná okkur eftír þetta," segir Gunnar Þorsteins- son, kenndur við Krossinn, um tón- leikana. „Það var alveg troðið út úr dyrum og alveg mögnuð stemming. Við erum með það sem við köllum herkvaðningu á hverju ári hjá okk- ur en þá fáum við vandaða og góða söngvara tíl okkar. I fýrra var það Jónsi í í svörtum fötum og núna fengum við Birgittu „Við erum ekki að sprengja turna eða skjóta gamlar nunnur í bakið heldur að elska menn einlægt." til liðs við okkur. Birgitta er alveg yndisleg stúlka og er til fyrirmyndar fyrir ungar stúlkur,” segir Gunnar og ánægja hans með Birgittu leynir sér ekki. „Þessi herkvaðning er þannig að allir eru klæddir í hermannabúninga og það eru herbílar íyrir utan hjá okk- ur. Það er til þess að minna okkur á að við erum hermenn Krists. Við erum ekki að sprengja tuma eða skjóta gamlar nunnur í bakið heldur að elska menn einlægt," segir Gunnar. myrdal@dv.is Þorsteinn Guðmundsson hefur samtöl Jóns Baldvins undir höndum „Ég er búinn að gera 13 svona pistla," segir Þor- steinn Guðmundsson um pistlana sem hann er með á þriðjudögum á Rás 2 og ganga undir nafninu Frétta- lygi. Það var þannig að Freyr Eyjólfsson hafði samband við mig og bað mig um að gera pistlana fýir síðdegis- útvarpið. Jón Baldvin Hannibals- son Samkvæmt fréttalygi Þorsteins þá heyrðiJón Baldvin bara skrýtin hljóð I símanum þegar hann var fuliuraðvinna. „Það var þannig að ég las fyrir- sagnir úr blöðum og bjó til almenn leiðindi og bull út frá þeim. Svo- leiðis byrjaði þetta hjá mér. Fólk hef- ur verið að tala aðeins um þetta en þá aðallega Gillzenegger-kaU- ar og treflar," segir Þor- steinn en sérstaklega er skemmtilegur pistill sem Þorsteinn kallar Hlerunardaginn. Þar segist hann hafa kom- ist yfir hieranir frá Birni Bjamasyni. í þeim pistli er hlerun þar sem Jón Baldvin hring- ir í Heymar- og talmeina- stöð íslands. Jón er þar að kvarta yfir hljóðum í símanum en viðmælandinn spyr hvort hann heyri þetta ekki bara þegar hann sé fullur í vinnunni. Hægt er að mæla með því að fólk lilustí á þennan pistil. „Fólk má ekki taka þetta of alvar- lega," segir Þorsteinn og bætir við að hann ætli að halda áfram að gera þessa pistla fram að áramótum en þá ætlar hann í barneignarffí. „Ég ætla að skeina rassgöt eft- ir áramót og hugsa um bömin mín. Ég er að fara að eignast fjórða bam- ið mitt," segir Þorsteinn sem situr líka sveittur þessa dagana við að skrifa áramótaskaupið. Þorsteinn skrifar það ásamt Hug- leiki Dagssyni, Úlfi Eldjárn, Ara Eld- Þorsteinn Guðmundsson Þorsteinn hefur verið aðsláfgegnmeð fréttalygi sinni á Rás 2 og honum er ekkert heilagt. jám og Margrétí Ömólfs. Það verður því eflaust skemmtilegt gamlárskvöld fram undan á Ríkissjónvarpinu. • Nokkrar deilur eru um framboð Benedilcts Sigurð- arsonar í prófkjöri Samfylkingarinn- ar. Benedikt var stj órnarformaður KEA á sínum tíma og rak fram- kvæmdastjóra fyrirtækisins fyrir að taka sér lögbundið fæðingar- orlof. Benedikt sagði þessi fleygu orð um framkvæmdastjórann frá- farandi: „Menn á góðum launum eiga ekki að fara í fæðingarorlof." Þessi orð eru varla það sem góðir jafnaðarmenn kvitta upp á... • Á vefnum betriborg.is/betri- borg/xd/skulda- klukka/ er svoköll- uð skuldaklukka Sjálfstæðisflokksins. ICluklcuna settu þeir upp til að benda á þá skuldaaukningu semR-listínn hafði staðið fyrir. Það er spuming hvort það væri ekki rétt hjá þeim *. sem standa að þessari klukku að stöðva hana því samkvæmt henni þá aukast skuldir Reykjavíkur- borgar um 34 milljónir á dag... • Ásgeir Koibeinsson er kominn á fullt aftur með þáttínn sinn Sirk- us Reykjavík. Brynja Björk blaða- maður Séð og heyrt var hægri hönd Ásgeirs í nokkrum þáttum seinast þegar þeir voru á dagskrá en nú hefur Ásgeir ráðið fimm stelpur í hennar stað. Þær eru Eva Dögg Sigurgeirsdóttir, Hel- ena Eufemía Snorradóttir, Karen Lind Tómasdóttir, Manu- ela Ósk Harðardóttir og , Ragnhildur Magnús- dóttir. Þetta er því einn r ^ fjölmennastí þáttur sem * sést hefur í íslensku ^ sjónvarpi... V • Smá fféttír úr prófkjörunum en margir eru sveittír við að opna kosn- ingaskrifstofur þessa dagana. Nokkuð góð mæt- ingvarhjá Jakobi Frímanni þegar hann opnaði sína skrifstofu enda þeklctur plöggari. Fá- mennt var hjá Stein- " unni Valdísi en þó elcki eins vand- ræðalegt og hjá Ástu Ragnheiði en þangað mættu færri en voru í kórnum sem söng við opnunina... • Kántrísöngvarinn Hallbjöm Hjartarson rekur með mildum myndarskap Útvarp Kántríbæ. Þegar blaðamaður sló á þráðinn til Hallbjörns sagði hann að það væri lítíð að frétta. Það keyptu ekki neinir auglýsingar hjá sér og það væru margir að spyrja hvem- ing þetta gæti gengið. Hann hefði ekki nein svör því hann vissi það

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.