Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2006, Blaðsíða 58
Síðast en ekki sist DV
78 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER2006
DÓMSTÓLL
göturmor
Erukonur óhultarí
miðbæ Reykjavíkur?
* megakonurfaraaðpassasig."
Kjartan Guðjónsson tannlæknir
„Ég veit það ekki, þetta hefur aiitafgerst en er
bara f fjölmiðlum núna."
Bernharður Þórsson nemi
„Ég er helst á þvlen konur eiga að passa sig
að ráfa ekki inn I þessi dimmu sund."
Jónas Grétar Sigurðsson húsasmíða-
meistari á eftirlaunum
„Nei, þ ær eru það ekki.“
Jóhanna Pétursdóttir bankastarfsmaður
„Já, þær eru það nema á sunnudagsmorgn-
um þegar þær koma af djamminu."
Tim Bronson kokkur á veitingastaðnum
Itallu
„Nei, þær eru það ekki."
Ingunn Guðmundsdóttir atvinnurekandi
„Nei, ekki samkvæmt siöustu fréttum."
Hildigunnur Högnadóttir skrifstofustjóri
„Nei, mérsýnistþað ekki vera. Eru konur
almennt óhultar fyrir mönnum?"
Sigurður Tómasson endurskoðandi á
eftirlaunum
„Allavega að nóttu til eru þær það ekki."
Karen Halldórsdóttir háskólanemi
„Ég veitþað ekki, nei örugglega ekki."
Heimir Gylfason nemi
Páll Rósinkrans og Garðar Cortes á menningarhátíð í sveitinni
Davið Smári Sonur
Páll Rósinkrans
eigenda Kriunnar
Menning fyrir sveitavarginn
syngur og spilar á
laugardeginum.
Garðar Cortes
Stjórnar 18
mannakórá
októberhátiðinni.
Októberhátíð sveitakráarinn-
ar Kríunnar, rétt fyrir utan Selfoss,
stendur nú yfir með fjölda lista-
manna og uppákoma. Föstudag-
inn 27. október verður hljómsveit
úr sveitinni, Hitakútur, með dans-
leik ásamt spænsk-íslenska tríó-
inu Los tres Amigos. Garðar Cort-
es eldri ásamt 18 manna kór verður
með tónleika laugardaginn 28. okt-
óber og síðan mun Davíð Smári
Idol-stjarna spila og syngja. Aðal-
skemmtikraftur laugardagskvölds-
ins verður Páll Rósinkrans sem
mun syngja við undirleik Þóris Úlf-
arssonar hljómborðsleikara.
Þetta er í fyrsta sinn sem Krí-
an heldur þessa hátíð og ætla eig-
endur kráarinnar, María Davíðs-
dóttir og Hörður Harðarson að
gera þessa menningar- og bjór-
drykkjuhátíð að árlegum við-
burði. María og Hörður segjast
einnig ætla að vera með jóð-
larakeppni að hætti Þjóðverja
auk fjölda óvæntra uppákoma
og skemmtiatriða. Þýskar pylsur
verða bornar fram ásamt íslenskri
kjötsúpu. Ætla má að sveitungar
Kríunnar fjölmenni á þessa fyrstu
októberhátíð kráarinnar
sem menningarviðburðir
af þessu tagi eru sjald
séðir í nágrenni Sel-
fn.Q.Q
Syngur við undirleik
Þóris Úlfarssonar.
Tímaritið ísafold kemur út
Unnur Birna segir allt
Tímarit Reynis Traustasonar, ísa
fold, kemur út í næstu vikunni og
óhætt að segja að nokkur eftir-
vænting ríki með það. Blaðið
er heilar 212 síður og skipt í
fjóra meginhluta, hver með
sinni forsíðu. Það er Unn-
ur Birna Vilhjálmsdóttir
fegurðardrottning sem
prýðir aðalforsíðuna en
í tímaritinu er mjög
opinskátt viðtal við
hana þar sem hún
gerir upp feril
sinn og dregur
ekkert undan,
þar með talið
atvikið sem
olli sam-
bandssiit-
um henn-
ar og
Sigurðar
Straum-
fjörð.
Æg get
lofað því að
Unnur Birna
dregur ekkert und-
an í þessu viðtali,"
segir Reynir Trausta
son sem ritstýrir Isa-
fold ásamt syni sínum
Jóni Trausta. „Þetta er
jafnframt síðasta við-
talið sem hún gefur en
hún ætlar að einbeita sér
að lögfræðinámi sínu á
næstu árum. Unnur Birna
vildi ekki verða fegurðar
drottning og hafði raunar engan
áhuga á þessu fegurðardæmi öllu.
En hún hefur gengið í gegnum
mikla h'fsreynslu og á stund-
um fór hrollur um mig í
spjalli okkar."
Af hinum forsíðunum
þremur nefnir Reynir að
á lífsstílshluta Isafoldar
er Ragnhildur Steinunn
íKastljósinu.Þjóðmála-
hlutann prýðir forsíða
með Davíð Odds-
syni og menning-
arhlutinn er með
Ágústu Evu Er-
lendsdóttur.
„í þjóðmála-
hlutanum er
viðamikil úttekt
á undanfara
fjölmiðlafrum-
varpsmálsins
og falli Dav-
íðs Oddsson-
ar í framhaldi
af því, Það er Jó-
hann Hauksson
sem skrifar þessa
úttekt," segir Reynir.
„Annars er ég hvað
ánægðastur með að
í menningarhluta
blaðsins er Jón Við-
ar Jónsson leiklistar-
gagnrýnandi mætt-
ur til leiks á ný. Hann
fjallar meðal annars
ítarlega um Mýrina og
gagnrýnir hana ásamt
-
Reynir Traustason Fólkið á bak við Isafold er blanda afgömlum reynsluboltum og ungu og
efnilegu fólki.
leiklistargagnrýni eins og honum er
einum lagið. Eg held að margir séu
skjálfandi á beinum og bíði í ofvæni
eftir því hvað Jón Viðar hefur til mál-
anna að leggja í dag."
Reynir segir að starfsfólkið á
bak við ísafold sé blanda af göml-
um reynsluboltum og nýju efnilegu
fólki. Hann nefnir Björn Stefánsson
í Mínus sem einn af hinum ungu
og efnilegu. „Bjössi í Mínus skrifar
grein um Rúnar Gunnarsson, eina
af poppstjörnum okkar hér áður
sem dó ungur á voveiflegan hátt, en
Björn býr að þeirri reynslu hér að
faðir hans Stefán var trommuleik-
ari í Dátum þegar Rúnar söng með
þeirri sveit."
Hvað framtíðina varðar seg-
ir Reynir að ekki þýði að byggja út-
gáfufélag á bara einu tímariti. Fleira
verði að koma til og þegar séu uppi
áform um frekari útgáfur. Hann vill
þó ekki fara nánar út í þá sálma.
Foreldrar geta sparaö sér ómakið við að sannfæra börnin hvernig best sé að klæða sig
Krakkaveður aftur í loftið með Sigga stormi
„Veðurmaðurinn segir aö ég eigi
aö vera í gúmmístíguélum!" Setning-
ar sem þessa mátti heyra á mörgum
heimilum fyrir nokkrum árum þegar
Ari Trausti Guömundsson bauö upp
á sérstakar veöurlýsingar fyrir börn.
„Vegna fjölda fýrirspurna og
beiðna frá foreldrum og börnum,
höfum við ákveðið að endurvekja
Krakkaveður," segir Sigurður Þ.
Ragnarsson, Siggi stormur, veður-
fræðingur á Stöð 2. En hann frum-
sýnir Krakkaveðrið í þættinum fs-
land í bítið í næstu viku. „Við verðum
með veðurfréttirnar á hálftíma fresti
frá klukkan sjö til níu á morgnana."
Sigurður segir hér fyrst og fremst
vera á feröinni þjónustu viö yngstu
hlustendur og áhorfendur þáttarins,
jafnframt því sem markmiðið sé aö
auka áhuga yngsta hópsins á veður-
frœöi og veðri almennt.
„Það sem er líka mikilvægt er að
veðurfréttir af þessu tagi fela í sér
landafræðikennslu, þar sem börn-
in læra myndrænt á áttirnar. Það er
vitað að því fyrr sem börn fá innsýn
í veðurfræði, því meiri verður áhug-
inn."
Siggi stormur segist vera með gott
starfsfólk í liði með sér, sem vinnur
nú aö því að byggja upp nýtt og lif-
andi veðurstúdíó.
„Við verðum með hreyfanleg-
ar fígúrur sem fylgja nútímanum og
kennarar í leik- og grunnskólum geta
fengið þær sendar, ef þeir vilja auka
áhuga barnanna á veðurfræði," sagði
veðurfræðingurinn um leið og hann
smeygði sér í vetrargallann frá 66°
norður, enda veit hann ávallt hvaðan
vindar blása. annakristine@dv.is
C
&
■c
Q
Flottir feðgar Bessi Þór
Sigurðarson, átta ára sonur
Sigga storms, ktæðir afsér
veðrið elns og vera ber.