Freyr

Árgangur

Freyr - 01.04.1959, Síða 7

Freyr - 01.04.1959, Síða 7
á fyrsta lið tillagnanna, en tók vel á 2. og 3. tillögu, enda lýsti hann því yfir í þing- inu undir umræðum, að hann gæti fallizt á þær. Að af loknum viðræðum við forsætisráð- herra voru tillögurnar sendar til fjárhags- nefndar neðri deildar. Afdrif tillagnanna á Alþingi urðu þau, að 1. liður þeirra var felldur í neðri deild af stjórnarliðinu og Al- þýðubandalagsmönnum, en hinir llðirnir báðir samþykktir í aðalatriðum. í efri deild féll l. liðurinn með jöfnum atkvæðum. Að sjálfsögðu geta verið skiptar skoðanir um það, á hvern liðinn átti að leggja mesta áherzlu og hver liðurinn hefði mesta þýð- ingu í framtíðinni. Þeir, sem að hafa trú á því, að aðgerðir ríkisstjórnarinnar og Al- þingis séu uphaf að algerri stöðvun verð- bólgunnar, hljóta að harma það að fyrsti liðurinn var ekki samþykktur, því í falli hans er framið ranglæti gegn bændastétt- inni. En hinir, sem líta svo á, að þetta sé aðeins látalæti hjá Alþingi og ríkisstjórn, verðbólgan muni halda innreið sína enn á ný, þeir eru ánægðir með samþykkt 2. og 3. liðar, því þá skiptir miklu máli, að hafa fengið þá samþykkta sem lög. Ég mun þá að síðustu birta hér þaö verð, sem nú er á landbúnaðarvörum. í fyrsta lagi hvað framleiðendum er ætlað eftir það að lækkun sú, sem lögin um niðurfærslu verðlags og launa hefur verið framkvæmd, svo og um það, hve miklu niðurgreiðslurnar nema á hverri tegund landbúnaðarvara og hvað það verö er, sem neytandinn borgar fyrir vöruna. Sú lækkun, sem kom á bændur vegna lag- anna um niöurgreiðslu verðlags o. fl., var 13 aurar á mjólkurlítra og 86 aurar á kjöt- kíló. Það verð, sem bændur eiga nú að fá fyrir mjólkurlítrann, er kr. 3,79, en neyt- andinn greiðir kr. 2,95. Er það 84 aurum neðan við framleiðsluverðið. Niðurgreiðsl- an alls á mjólkurlítra kr. 2,44. Bændur eiga að fá nú kr. 21,34 fyrir dilkakjötið, en smásöluverðið er kr. 21,00 á súpukjöti. Er þá það, sem neytandinn borg- ar íyrir kíló dilkakjöts kr. 0,34 neðan við framleiðsluverð og niðurgreiðslan í heild kr. 11,61 á kíló dilkakjöts. Sverrir Gíslason. Þegar síðasta aukning niðurgreiðslnanna fór fram, 1. marz s.l., gerði framleiðsluráð eftirfarandi ályktun: „í tilefni af því að ríkisstjórnin hefur enn á ný ákveðið auknar niðurgreiðslur á kjöti og mjölk frá 1. marz n.k. vill fram- leiðsluráð taka fram, að það telur frá sjón- armiði framleiðenda mjög varhugavert, hve langt er gengið í tiltölulega einhliða niður- greiðslum á landbúnaðarvörum, er orðið geti landbúnaðinum hættulegt síðar, þegar að því kemur að dregið yrði úr þeim, að meira eða minna leyti, og þá torvelda sölu varanna innanlands. Einnig bendir framieiðsluráðið á það, að með niðurgreiðslum, eins og þeim er fyrir komið, orsaka þær stórfellt misræmi á út- söluverði hinna ýmsu tegunda landbúnað- arvara, þ. e. að óniðurgreiddar vörur verða óeðlilega dýrar s. s. stórgripakjöt, slátur, svið, egg o. fl. móts við kindakjöt, svo og ýmsar mjólkurvörur, t. d. ostur, þurrmjólk o. fl. samanborið við nýmjólk. Framleiðsluráðið telur sér skylt að taka þetta fram, og væntir þess jafnframt að mæta skilningi ríkisstjórnarinnar, ef vanda ber að höndum með sölu þeirra landbún- aðarvara, sem ekki eru greiddar niður. Þá vill framleiðsluráðið benda á það, að hinar miklu niðurgreiðslur á kjöti og mjólk valda því, að útsöluverð þeirra vara er kom- ið niður fyrir framleiðsluverðið (t. d. á mjólk um 84 aura á lítra) og verða því vör- ur þessar bændum almennt dýrari til neyzlu en öðrum landsmönnum, a. m. k. þar til endurskoðun á verðlagsgrundvellinum hef- ur farið fram“. Sverrir Gíslason.

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.