Freyr - 01.04.1959, Blaðsíða 11
FRE YR
105
Landbúnaður á kjarnorkutímum
Grein þessi er útvarpserindi er flutt var i september 1958.
Um undanfarna mánuði og misseri hafa
dagblöðin rætt sitt af hverju um hinar
mestu nýjungar, sem nú eru uppi varðandi
tæknileg atriði, — kjarnorkuna, — sem
ýmsir eygja nú líklegasta orkulind framtíð-
arinnar, til góðs eða ills, hagnýtta eftir þvi
hvað mönnunum þóknast.
Um síðastliðna áratugi hafa fleiri og fjöl-
breyttari tæknileg hjálparmeðul verið tek-
in í þjónustu starfsins og framleiðslunnar,
á sviði landbúnaðarins, en menn til skamms
tíma hafði órað fyrir. í efnafræði og eðlis-
fræði, Jíffræði og lífeðlisfræði, hafa stór-
kostlegar nýjungar orðið aflvakar fjöl-
breytts framtaks, enda eru þessar greinar
frumatriði þau, sem meginþorri hlutverka
staðan til starfseminnar hin ákjósanleg-
asta. Húsið er tvær hæðir og kjallari, sam-
tals ca. 900 fermetrar.
Á efri hæð eru skrifstofur. Þar eru einnig
frysti- og kælirúm fyrir smjör og fullkom-
in aðstaða til smjörpökkunar með nýrri vél
af heimsþekktri gerð.
Á neðri hæð er móttöku- og afgreiðslu-
salur og fer varan þar út og inn. Jafnframt
eru þar frysti- og kæliklefar, einn fyrir
smjör og annar fyrir ost. í klefum þessum
eru geymdar vörur sem fara í hina daglegu
sölu. Einnig er á þessari hæð nýtízkuleg
sýningarbúð, búin kæliborðum og skápum.
í þeirri búð er mönnum gefinn kostur á að
velja úr, t. d. öllum þeim ostategundum,
sem framleiddar eru í mjólkursamlögunum,
og reynt að hafa til ost á ýmsum aldri, svo
menn geti valið eftir eigin óskum. í búðinni
eru aðeins seldir heilir og hálfir osar og
fæst þá afsláttur frá smásöluverði. Það verð
er auglýst af Framleiðsluráði landbúnaðar-
ins eins og raunar allt verð á mjólkuraf-
urðum.
Kjallarinn er allur ein ostageymsla. Hann
hefur verið settur hillum, sem ostinum er
raðað á og stendur hver ostur frí, þannig,
að enginn þungi hvílir á honum. Með þessu
er komið í veg fyrir að osturinn missi lag
eða skemmist í geymslu.
Hin fullkomna aðstaða til geymslu og
dreifingar mjólkurafurða, sem nú er fyrir
hendi að Snorrabraut 54, er stórt framfara-
spor. Meðferð viðkvæmrar og verðmikillar
vöru er vandasöm. Tilkoma Osta- og smjör-
sölunnar í hinum fullkomnu húsakynnum
ætti að geta tryggt mikið öryggi í sölu og
meðferð mjólkurafurðanna á aðalmarkaðs-
svæðinu. Ef þær vonir rætast, sem forráða-
menn fyrirtækisins hafa gert sér, ætti þessi
starfsemi að geta orðið framleiðendum og
neytendum til góðs og ávinnings.
Við undirbúning að stofnun þessa fyrir-
tækis hafa margir lagt þvi ágætt lið, en
fyrst og fremst Jónas Kristjánsson, mjólk-
ursamlagsstjóri á Akureyri, sem er einn af
brautryðjendum í íslenzkum mjólkuriðnaði,
svo og Stefán Björnsson, forstjóri Mjólkur-
samsölunnar. Hin langa reynsla, sem þessir
menn hafa af framleiðslu- og sölumálum
mjólkuriðnaðarins í landinu, hefur komið
að góðum notum við stofnun þessa fyrir-
tækis.
Stjórn Osta- og smjörsölunnar skipa:
Erlendur Einarsson, forstjóri, sem er for-
maður.
Egill Thorarensen, kaupfélagsstjóri, Sel-
fossi.
Einar Ólafsson, bóndi, Lækjarhvammi.
Helgi Pétursson, framkvæmdastjóri, Rvík.
Hjalti Pálsson, framkvæmdastjóri, Rvík.
Stefán Björnsson, forstjóri, Rvík.
Framkvæmdastjóri Osta- og smjörsöl-
unnar er Sigurður Benediktsson, sem um
mörg ár hefur haft með höndum störf hjá
Sambandi ísl. samvinnufélaga.