Freyr - 01.04.1959, Side 16
110
FREYR
Framleiðsla og verðlagsmál
landb únaðarins
Sveinn Tryggvason, framkvæmdastjóri Fram-
leiðsluráðs landbúnaðarins, flutti fyrir nokkr-
um dögum ýtarlegt erindi á Búnaöarþingi um
framleiðslu- og verðlagsmál landbúnaðarins. í
því rakti hann þróunina í þeim málum síðustu
10—12 árin og kom þar margt fróðlegt fram.
Sveinn Trygguason,
framkvœmdastjóri
Hér verður efni erindisins rakið í aðalatriðum.
RæSumaður hóf máls á því, að fram-
leiðslu- og verðlagsmálin væru mikilvægur
málaflokkur í málefnum bænda, því þótt
heyfengur sé mikill og búféð arðsamt, fari
þó afrakstur búsins að miklu leyti eftir því,
hvernig gangi með sölu afurðanna.
Sveinn kvaðst hafa valið sér til umræðu
tímabilið frá 1947 til 1957, því að Fram-
leiðsluráö landbúnaðarins hefði einmitt tek-
ið til starfa árið 1947, og mundi því mönn-
um e. t. v. þykja fróðlegt, ao vita nánar um
þá þróun, sem hefði orðið á þessu tímabili.
sveita og þorpa með innan við 300 íbúa um
4791, eða tæplega 12%.
Árið 1947 átti rúmlega þriðji hver íslend-
ingur heima í sveitum landsins, en 10 ár-
um seinna var fimmtungur þjóðarinnar bú-
settur í sveitunum.
Heyöflun.
Þá drap Sveinn á heyöflunina. Sam-
kvæmt búnaöarskýrslum, sagði hann, var
heyskapurinn 1947:
Taða ...... 1.583 þús. hestburðir
Úthey .... 552 þús. hestburðir
Mannfjöldi.
Þá vék ræðumaður að mannfjölgun og
búsetu í landinu. Árið 1947 voru íbúar alls
135.935, þar af í sveitum 41.146, en 1957 var
fólksfjöldinn orðinn 166.837, en sveitafólk
og íbúar minni kauptúna 36.355. Á þessum
10 árum fjölgaði þjóðinni um 30.902 manns
eða 22.7%. Á sama tíma lækkaði íbúatala
framsýnustu uggir. Því er ekki furða held-
ur eðlilegt, að æskan beini athygli sinni að
þessum greinum námsefna og verkefna.
Þau eru framtíðarinnar eins og unga fólk-
ið. Við, sem höfum lært önnur lögmál, sem
talin voru óyggjandi sannindi, hljótum að
láta í minni pokann þegar staðreyndirnar
tala.
G.
Alls 2.115 þús. hestburðir
Árið 1957 var heyfengurinn:
Taða ...... 2.947 þús. hestburðir
Úthey .... 385 þús. hestburðir
Alls 3.342 þús. hestburðir
Heyfengur landsmanna hefur því aukizt
á tímabilinu um rúmlega l.,2 millj. hest-
burði, eða nær 60%, og raunar allmiklu
meira, ef tekið er tillit til fóðurgildis, því
að útheyskapurinn hefur dregizt saman á
þessum árum, en töðufengur aukizt að sama
skapi.
Búfjárfjöldinn.
Ræðumaður sagði, að árið 1957 hefði tala
nautgripa verið 49.036, eða 7.403 fleiri en
1947, og væri það 17,8% fjölgun, sauðfé